Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson kaupir þrjár Bónusverslanir

Samningur vegna kaupa á þremur Bónus­verslununum á Hall­veigarstíg, í Faxafeni og Skeifunni hefur verið undir­ritaður og vinnur Samkeppnis­eftirlitið nú að því að meta hæfi kaupenda að eignunum.

Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Sports Direct á Íslandi og annar eigenda Boxins, er að ganga frá kaupum á þremur Bónus­verslunum á höfuð­borgar­svæðinu af smásölu­risanum Högum. Þetta kemur fram á vef Frétta­blaðsins í dag.

Í fréttinni segir að til standi að halda þar áfram sambærilegum rekstri en ekki liggi fyrir undir hvaða merki verslanirnar verða reknar.

„Þær Bónus­verslanir sem um ræðir eru stað­settar á Hall­veigarstíg, í Faxafeni og Skeifunni. Sala á verslunum var á meðal þeirra fjölmörgu skilyrða Samkeppnis­eftirlitsins sem Hagar samþykktu að undir­gangast í síðasta mánuði í tengslum við kaup félagsins á Olís. Þá setti Samkeppnis­eftirlitið kaupunum einnig þau skilyrði að Högum yrði gert að selja fimm eldsneytis­stöðvar Olís og ÓB,“ segir í fréttinni.

Samningur vegna kaupanna á Bónus­verslununum hefur þegar verið undir­ritaður, samkvæmt fréttinni, en segir jafnframt að Samkeppnis­eftirlitið vinni nú að því að meta hæfi kaupenda að eignunum. Vonir standi til að því hæfismati verði lokið í síðasta lagi um miðjan nóvember næst­komandi.

Sigurður Pálmi er sonur Ingibjargar Pálma­dóttur, aðal­eigenda 365 miðla en félaginu er einnig stýrt af eigin­manni hennar, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Í frétt Frétta­blaðs­ins frá því í gær segir að 365 miðlar hafi keypt ríf­lega þriggja pró­senta hlut í Högum og greitt fyrir það tæp­lega 1,8 millj­arða króna. Félög Ingi­bjargar áttu fyrir meira en tveggja pró­senta hlut í Hög­um. Frétta­blaðið segir að þau kaup hafi verið fjár­mögnuð af Kviku banka.

Hagar er stærsta smásölu­fyrirtæki á Íslandi. Krúnu­djásn félagsins eru Bónus­verslanirnar, sem eru með stærstu markaðs­hlutdeild í dagvöru á Íslandi. Jón Ásgeir og faðir hans Jóhannes Jónsson stofnuðu Bónus árið 1989 en misstu Haga úr höndum eftir hrunið og gjaldþrot Baugs Group, fjár­festinga­félags fjöl­skyldunnar.

Kjarninn fjallaði ítarlega um endurkomu hjónanna inn í hluthafahóp Haga í frétta­skýringu fyrir tæpum tveimur árum síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár