365 miðlar selja allt hlutafé sitt í Sýn - Kaupa þrjú prósent í Högum

365 miðlar selja stóran hlut sinn í fjar­skipta­fyr­ir­tæki og kaupa í Högum. Gamla Baugs­fjöl­skyldan verður aftur á meðal stærstu eig­enda Haga eftir við­skiptin. Þurfa ekki lengur að selja Frétta­blaðið.

Bónus er stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Bónus er stærsta dag­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

365 miðlar hefur selt 10,92 pró­sent hlut sinn í Sýn sem félagið fékk þegar það seldi ljós­vaka- og fjar­skipta­starf­semi sína til Sýnar í lok síð­asta árs. Sölu­verðið er um tveir millj­arðar króna. Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins en eig­endur þess mið­ils eru 365 miðlar. Eigandi félags­ins er Ingi­björg Pálma­dóttir og félag­inu er einnig stýrt af eig­in­manni hennar, Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni.

[links]Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að í 365 miðlar hafi í staðin keypt ríf­lega þriggja pró­senta hlut í Högum og greitt fyrir það tæp­lega 1,8 millj­arða króna. Félög Ingi­bjargar áttu fyrir meira en tveggja pró­senta hlut í Högum. Frétta­blaðið segir að þau kaup hafi verið fjár­mögnuð af Kviku banka.

Þurfa ekki að selja Fréttablaðið lengur

Greint hefur verið frá því að und­an­förnu að Kvika banki sé að reyna að selja Frétta­blaðið fyrir hönd hjón­anna. Þetta er meðal ann­ars vegna skil­yrða sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti þegar eig­end­urnir seldu ofan­greindir eignir til Sýnar í fyrra.

[adspot]Þá fékk eig­and­inn, 365 miðl­ar, 30 mán­uði, frá og með 8. októ­ber 2017, til að selja annað hvort Frétta­blaðið eða hlut sem hann fékk afhentan í Sýn, fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tækis sem skráð er á mark­að.

Nú er ljóst að 365 miðlar hefur selt hlut sinn í Sýn og getur þar með átt Frétta­blaðið og tengda miðla áfram.

Hagar áður í eigu Baugsfjölskyldunnar

Hagar er stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi. Krúnu­djásn félags­ins eru Bón­usversl­an­irnar, sem eru með stærstu mark­aðs­hlut­deild í dag­vöru á Íslandi. Jón Ásgeir og faðir hans Jóhannes Jónsson stofn­uðu Bónus árið 1989 en misstu Haga úr höndum eftir hrunið og gjald­þrot Baugs Group, fjár­fest­inga­fé­lags fjöl­skyld­unnar.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um end­ur­komu hjón­anna inn í hlut­hafa­hóp Haga í frétta­skýr­ingu fyrir tæpum tveimur árum síðan. Hana má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár