Kjaradeilan í Straumsvík: Eigandi álversins hreykir sér af því að ódýrt sé að framleiða ál

Kostnaðar­lækkun hjá Rio Tinto eitt af aðal­atriðunum á fjárfesta­kynningu sem haldin var í London í gær. Lækkun á kostnaði í álframleiðslu­hluta Rio Tinto nemur 1,1 milljarði Bandaríkja­dala á árunum 2013 til 2015. Deutsche Bank mælir með kaupum á hluta­bréfum í fyrir­tækinu. Á sama tíma kvartar Rio Tinto á Íslandi undan væntanlegum taprekstri og segist þurfa að skera niður auk þess sem það sé réttlætismál að fyrir­tækið sitji við sama borð og önnur þegar kemur að mögu­leikanum á því að bjóða verk út í verktöku.

Móðurfélagið ánægt
Móð­ur­fé­lagið ánægt Móð­ur­fé­lag álverk­smiðj­unnar í Straums­vík, sem Rannveig Rist sem for­stjóri, skil­aði um 380 millj­arða hagn­aði á fyrstu sex mán­uðum. Á fjár­festa­kynn­ingu í London í gær bentu stars­menn Rio Tinto á hversu mikil hag­ræð­ing hefði verið hjá fyr­ir­tæk­inu og að til stæði að fara í frek­ari hag­ræð­ing­ar­að­gerðir til að auka hagn­að­inn. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix (Ásgeir Ásgeirsson)

Þýski bankinn Deutsche Bank segir fjár­festum að kaupa hlutabréf í Rio Tinto Group, móður­félagi álversins í Straumsvík, eftir fjárfesta­kynningu sem forsvars­menn Rio Tinto héldu í London í gær. Niður­staða Deutsche Bank byggir meðal annars á árangri Rio Tinto við að ná niður kostnaði á fram­leiðslu áls í álverksmiðjum sínum en fyrir­tækið er stærsta náma­fyrirtæki í heimi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu sem þýski bankinn vann um fjárfesta­kynninguna og kynnti í morgun en Stundin sagði meðal annars frá fjárfesta­kynningunni í gær. Greining Deutsche Bank heitir „Árangur álframleiðslu­hlutans verður framar væntingum - aftur“. 

Í skýrslunni er meðal annars haft eftir Rio Tinto að þeir séu ánægðir með hversu ódýrt það sé fyrir fyrir­tækið að framleiða ál og að þetta gefi því forskot á markaði: „Rio Tinto bendir á að það hversu ódýrt það sé fyrir það að framleiða ál gefi fyrir­tækinu samkeppnis­forskot. Álbransinn er iðnaður þar sem stöðugur þrýstingur er á fyrir­tækin um að vera eins nálægt botni kostnaðar­kúrvunnar og mögulegt er með því að tileinka sér nýjustu tækni. Lykil­atriðið er hins vegar ódýrt rafmagn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár