Segir endurheimt raunlauna leiða af sér minni hagvöxt, meiri verðbólgu og hærri stýrivexti

Ef kjara­samningar skila til baka þeim raun­launum sem tapast hafa vegna verðbólgu telur Seðla­bankinn að hagvöxtur á næsta ári verði sá minnsti síðan 2002, ef frá eru talin samdráttar­árin í kjölfar banka­hrunsins og kórónu­veiru­faraldursins.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýjasta riti Peninga­mála, sem birt var á miðvikudag, er sérstök ramma­grein þar sem spáð er í hvað gerist ef komandi kjara­samningar feli í sér meiri launa­hækkanir en nú sé gert ráð fyrir í grunnspá Seðla­bankans.

Í ramma­greininni segir að núgildandi kjara­samningar, sem undir­ritaðir voru í apríl 2019, hafi skilað launa­fólki því að raunlaun hafi heilt yfir hækkað um 7,2 prósent og kaup­máttur ráðstöfunar­tekna á mann hafi hækkað um ríflega 13 prósent frá undir­ritun og fram á mitt ár 2022. Raunlaun hafa hins vegar gefið eftir undan­farið og Seðla­bankinn telur að ætla megi að þau hafi hækkað minna en lagt var upp með við undir­ritun samninganna þar sem verðbólga hefur verið langt umfram spár. „ Ummæli forystu­manna verkalýðs­félaga undan­farið virðast m.a. snúa að því að vinna upp þá hækkun raunlauna sem á vantar. Í ljósi þess að spenna er á vinnu­markaði og kjölfesta verðbólgu­væntinga hefur veikst gætu laun því hækkað nokkru meira á spátímanum en núverandi grunnspá gerir ráð fyrir.“

Dregur upp svarta mynd ef endurheimta eigi raunlaunastig

Til að kanna hver áhrif þeirra launa­hækkana gætu orðið notaðist Seðla­bankinn við hið svokallaða DYNIMO-líkan sitt og gerði þar ráð fyrir að nafnlaun hækki um liðlega fimm prósentu­stig meira á næsta ári „í þeirri viðleitni að endur­heimta sambærilegt raun­launastig og var í upphafi ársins, áður en verð­bólgan tók að grafa undan kaupmætti.“

Því er gert ráð fyrir að laun hækki þá um ellefu prósent á næsta ári í stað þeirra sex prósenta sem grunnspá Seðla­bankans reiknar með og samtals um 24 prósent á næstu þremur árum í stað 18 prósent.

Þetta telur Seðla­bankinn að muni hækka jaðar­kostnað fyrir­tækja töluvert meira en í grunn­spánni sem leiði til þess að þau bregðast „bæði við með því að ganga á hagnaðar­hlutdeild sína og hagræða í rekstri, m.a. með því að stytta vinnutíma starfs­fólks eða með uppsögnum. Það dugar þó ekki til samkvæmt líkaninu og því bregðast þau einnig við með því að hækka afurða­verð sitt.“

Afleiðingin yrði meðal annars hægari vöxtur á einka­neyslu, hagvöxtur dregst saman, verðbólga verður meiri og stýri­vextir hærri.

Sá minnsti frá 2002 utan hamfaratíma

Raunar segir Seðla­bankinn að hagvöxtur á næsta ári, sem yrði 1,75 prósentu­stigum minni á árinu 2023, yrði sá minnsti hérlendis síðan 2002 ef frá eru talin samdráttar­árin í kjölfar banka­hrunsins og kórónu­veiru­faraldursins.

Seðla­bankinn segir að þrátt fyrir lakari hagvaxtar­horfur yrði verðbólga samt sem áður meiri á spátímanum, sem nær út árið 2025, en samkvæmt fyrir­liggjandi grunnspá. Til að tryggja að verð­bólgan verði í samræmi við verðbólgu­markmið Seðla­bankans til lengri tíma þyrfti auk þess að hækka stýri­vexti enn frekar, en þeir hafa nú þegar verið hækkaðir tíu sinnum í röð og standa í sex prósentu­stigum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár