Orkunotkun heimila fer minnkandi og rafbílavæðingin breytir litlu

Hlýrra loftslag, loðnu­brestur og rekstrar­vandi álversins í Straumsvík eru meðal þeirra þátta sem urðu til þess að raforku­notkun á landinu í fyrra dróst saman frá fyrra ári.

Stórnotkun minnkaði mest hjá álverunum á síðasta ári eða um 3,4 prósent frá fyrra ári.
Stór­notkun minnk­aði mest hjá álver­unum á síð­asta ári eða um 3,4 pró­sent frá fyrra ári. Mynd: Bára Huld Beck

Samdráttur í raforku­notkun eldri stór­notenda – aukin notkun gagnavera

Hlýrra loftslag, loðnu­brestur og rekstrar­vandi álversins í Straumsvík eru meðal þeirra þátta sem urðu til þess að raforku­notkun á landinu í fyrra dróst saman frá fyrra ári. Einnig spila inn í miklar breytingar á orkuþörf til lýsingar og ýmissa raftækja. Rafbíla­væðing með hleðslu á heimilum hefur ekki komið neitt að ráði á móti þessari minnkun.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinar­gerð orkuspár­nefndar um raforku­notkun á Íslandi árið 2019.

Árið 2019 nam raforku­vinnsla á landinu samtals 19.489 GWh og minnkaði um 1,7 prósent frá fyrra ári. Notkun stór­notenda minnkaði um 0,7 prósent milli ára og almenn notkun um 4,7 prósent.

Í greinar­gerð orkuspár­nefndar er raforku­notkun greind niður á tvo megin­þætti, þ.e. í forgangs­orku (stór­notendur) og skerðanlega orku. Megin­hluti notkunarinnar er forgangs­orka en með skerðanlegri orku er átt við notkun þar sem samið hefur verið um að skerða megi notkunina svo sem vegna flutnings­takmarkana.

Til stór­notenda teljast sjö stór­iðju­fyrirtæki (álver, járn­blendi, kísilver) og þrjú gagnaver. Samtals nýttu þessi tíu fyrirtæki 78 prósent allrar raforku sem framleidd var í landinu í fyrra. Álverin þrjú, Norðurál, Fjarðaál og Rio Tinto, notuðu stærstan hluta þessarar forgangs­orku eða um 84 prósent. Um 6 prósent fór til gagnavera og um 2 prósent til kísilvera en aðeins eitt slíkt er starfandi hér á landi. Becromal og Íslenska járnblendi­félagið nýttu svo það sem útaf stendur.

Stór­notkun minnkaði mest hjá álverunum á síðasta ári eða um 3,4 prósent frá fyrra ári. Megin­ástæða þessa samdráttar voru rekstrar­vandamál hjá álverinu í Straumsvík. Einnig var samdráttur hjá öðrum eldri stóriðju­notendum sem nam 14,3 prósentum. Nýjustu stór­notendurnir juku aftur á móti notkun sína og eru gagnaver með tæplega ¾ þeirrar aukningar. Þessi aukning fer því langt með að mæta samdrætti hjá eldri notendum, segir í greinar­gerð orkuspár­nefndar.

Ástandið sem nú hefur skapast í samfélaginu vegna kórónu­veirunnar hefur haft alvarlegar afleiðingar fyrir atvinnu­lífið. Lands­virkjun, sem fram­leiðir um 80 prósent allrar raforku landsins, mun þess vegna veita viðskipta­vinum sínum tíma­bundin úrræði til að koma til móts við hugsanlega rekstrar­erfiðleika, m.a. vegna hruns á mörkuðum með afurðir stór­iðju­fyrirtækja. Stór­notendur fá því tíma­bundna sex mánaða lækkun sem getur þýtt allt að 25 prósenta lækkun raforku­verðs.

Lands­virkjun hefur kynnt ýmsar aðrar aðgerðir og er meðal annars til skoðunar að flýta framkvæmdum við fyrir­hugaða Hvamms­virkjun í Þjórsá. Myndu þá undir­búnings­framkvæmdir hefjast árið 2021. Virkjunar­hugmyndin er ekki óumdeild. Fyrir eru þegar sjö virkjanir á Þjórsár- og Tungna­ársvæðinu og eru stækkanir fyrir­hugaðar á þremur þeirra. Þá eru tvær virkjanir til viðbótar áformaðar í Þjórsá: Holta­virkjun og Urriða­fossvirkjun.

Fjölmörg vindorku­verkefni eru nú til meðferðar í fjórða áfanga ramma­áætlunar. Eitt slíkt verkefni sem Lands­virkjun fyrir­hugar, Blöndu­lundur, er í orku­nýtingar­flokki þriðja áfanga áætlunarinnar sem enn hefur ekki verið afgreiddur á Alþingi.

Vind­orkuver hafa ekki sambærileg umhverfis­áhrif og vatnsafls­virkjanir, engar stíflur þarf að reisa eða lón að gera. Umhverfis­áhrif af vind­myllum eru fyrst og fremst sjónræn auk þess sem þau hafa áhrif á fuglalíf. Mjög lítil reynsla er hins vegar af vind­orkuverum hér á landi, aðeins eitt slíkt er rekið og telur það tvær myllur.

Í greinar­gerð orkuspár­nefndarinnar segir að loðnu­brestur síðasta árs hafi leitt af sér verulega minnkun í raforku­notkun fiskimjöls­verksmiðja sem er orku­frekasta almenna iðnaðar­starfsemin (iðnaður utan stóriðju) hér á landi. Þetta hefur mest áhrif á skerðanlega raforku­notkun sem minnkaði um 36 prósent í þessum geira. Loðnu­bresturinn olli einnig minnkun forgangs­orku svo sem vegna frystingar á loðnu.

Samdráttinn í raforku­notkun telur nefndin einnig skýrst af því að hagvöxtur var minni í fyrra en árin á undan. Minnkandi hagvöxtur kemur að sögn nefndarinnar fljótt fram í raforku­notkun og að undan­förnu hefur ýmiss smáiðnaður átt í erfiðri samkeppnis­stöðu við innflutning og því dregist saman svo sem prent­iðnaður.

Hlýrra veður minnkar orkunotkun

Fleira hefur svo áhrif á raforku­þörf. Árið 2019 var um 0,7°C hlýrra miðað við lofthita í Reykjavík sem leiðir af sér minni almenna raforku­notkun svo sem til hitunar húsnæðis og dælingar hjá hita­veitum. Slík hitaáhrif eru metin vera lækkun á raforku­notkun um 45 GWh í fyrra. Áhrif veðurfars voru veruleg á öðrum og þriðja ársfjórðungi sem báðir voru tæpum 2°C hlýrri en árið á undan.

Á undan­förnum árum hefur orðið mikil breyting á orkuþörf til lýsingar og mörg tæki hafa orðið orku­grennri. Þetta kemur að sögn Orkuspár­nefndar mjög skýrt fram í orku­notkun heimila, sem hefur farið minnkandi. Rafbíla­væðing með hleðslu á heimilum hefur ekki komið neitt að ráði á móti þessari minnkun. Í atvinnu­fyrirtækjum hefur notkun til lýsingar einnig minnkað af þessum sökum og einnig vegna betri stýringar á lýsingunni.

Flotinn allur þyrfti 3 prósent af orkunni

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku­veitunnar, sagði í viðtali við mbl.is árið 2017 að ef allur fólks­bílafloti landsins yrði rafvæddur myndi hann nýta um 3 prósent af öllu rafmagni sem hér er framleitt. Hann benti ennfremur á að á rafbíla mætti nota umfram­orku kerfisins að hluta, sem fellur til á nóttunni og færi annars til spillis. „Við það eitt að breyta allri götu­lýsingu í landinu og skipta yfir í led-perur myndi svo sparast orka sem dygði til að knýja 5–10.000 bíla,“ sagði Bjarni.

Niður­staða rann­sóknar Orku nátt­úrunnar á kolefnis­fótspori rafbíla við íslenskar aðstæður er að heildar­losun rafbíls sé 4-4,5 sinnum minni en heildar­losun bíla sem nota jarðefna­eldsneyti. Við útreikningana var miðað við kolefnis­fótspor frá fram­leiðslu bifreiðar og 220 þúsund km. akstri við íslenskar aðstæður.

Rafbílum mun fjölga hratt

Í uppfærðri raforkuspá sem orkuspár­nefnd birti í lok síðasta sumar kom fram að þar sem orku­skipti í samgöngum hefðu gengið heldur hraðar fyrir sig að undan­förnu en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri spám var þeim flýtt um þrjú ár í endur­reikningi sem hefur þau áhrif að orku­notkun á heimilum og þjónustumun mun að mati nefndarinnar aukast á árunum 2020 til 2030. Telur nefndin að aukin raforku­notkun heimila vegna samgangna aukist um um 130 GWh til loka spátímabilsins en raforku­notkun í samgöngum í heild verður alls rúm 1 TWh við lok spátímabilsins.

Í spánni var gengið út frá því að hlutur rafbíla í nýskráningum muni aukast verulega á næsta áratug. Á næsta ári verði hlut­fallið orðið 26 prósent, yfir 55 prósent árið 2024 og 87 prósent árið 2030. Á því ári verður heildar­fjöldi rafbíla orðinn tæp 140 þúsund samkvæmt spánni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár