Tillaga um rammaáætlun verður lögð fram í óbreyttri mynd

Þrettán virkj­ana­kostir í orku­nýt­ingar- og bið­flokki til­lög­unnar myndu falla innan marka fyr­ir­hug­aðs hálend­is­þjóð­garðs. Heimila á nýjar virkj­anir innan hans en með strang­ari skil­yrðum. „Klárlega mála­miðlun,“ segir umhverf­is­ráð­herra.

Tillaga til þings­á­lykt­unar um áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar, verður lögð fram á Alþingi í febr­úar. Um óbreytta til­lögu er að ræða frá því að hún var fyrst lögð fram af Sigrúnu Magn­ús­dóttur, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, þing­vet­ur­inn 2015-2016 og síðar af Björt Ólafs­dóttur 2016-2017.

Í til­lög­unni eru sam­tals þrettán virkj­ana­kostir í orku­nýt­ing­ar­flokki og bið­flokki sem falla innan marka fyr­ir­hug­aðs hálend­is­þjóð­garðs. Í drögum að frum­varpi um garð­inn, sem nú eru til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, er lagt til að innan hans verði leyfðar þær virkj­anir sem verði í nýt­inga­flokki 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Áfram yrði svo opið fyrir þann mögu­leika að virkj­anir í bið­flokki fær­ist yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk og komi þar með til fram­kvæmda síðar meir. Í báðum til­vikum yrðu skil­yrði fyrir nýjum virkj­unum innan garðs­ins þó strang­ari en þau eru almennt í dag.

„Þetta nátt­úr­lega passar ekki saman,“ segir Auður Önnu Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, í sam­tali við Kjarnann. „Það er vart hægt að vera með starf­semi innan þjóð­garðs, eins og hann er skil­greindur í okkar nátt­úru­vernd­ar­lögum, sem þjónar ekki mark­miðum hans. Ef mark­mið hans er vernd nátt­úru þá gefur auga leið að ekki er hægt að vera með risa­stór ný mann­virki innan hans marka.“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, var fram­kvæmda­stjóri Land­verndar er hún gaf álit sitt á til­lög­unni árið 2017. Þar var lögð sér­stök áhersla á að allar virkj­un­ar­hug­myndir á mið­há­lendi Íslands færu í vernd­ar­flokk og þar yrði stofn­aður þjóð­garður.

Í sam­tali við Kjarnann nú segir hann að „klár­lega“ sé um mála­miðlun að ræða. „Ef að ég réði einn þá myndi ég kjósa að það yrði ekki um frek­ari virkj­anir inni á mið­há­lend­inu. Það eru líka margir sem myndu vilja virkja margt af því sem þarna er lagt til að verði verndað, eins og Skjálf­anda­fljót, Jök­ulsárnar í Skaga­firði og Skaftá. Ég er í þeirri stöðu núna að bera ábyrgð á því að reyna að klára þessa ramma­á­ætlun og ég tek þá ábyrgð mjög alvar­lega. Ekki síst vegna þess að ég held að nátt­úru­verndin sé betur stödd ef að við stöndum vörð um ferli ramma­á­ætl­unar til að kom­ast að nið­ur­stöðu um þessi mál.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti drög að frumvarpi að hálendisþjóðgarði fyrir forsvarsmönnum náttúruverndarsamtaka í gær.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, kynnti drög að frum­varpi að hálend­is­þjóð­garði fyrir for­svars­mönnum nátt­úru­vernd­ar­sam­taka í gær.

Nokkrir nýir virkjanakostir

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni, sem nú verður lögð fram í þriðja sinn, er lagt til að setja nokkra nýja virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokk, m.a. Aust­ur­gils­virkjun á Vest­fjörðum og Urriða­foss­virkjun og Holta­virkjun í Þjórsá.

„Í þess­ari til­lögu er svo Skrokkalda í nýt­ing­ar­flokki, svæði sem er akkúrat í miðju Íslands,“ bendir Auður á. Hún segir að sú virkjun „yrði hræði­legt sár“ í land­inu. Skrokköldu­virkjun, sem Lands­virkjun hefur hug á að reisa, yrði á Sprengisandi, mitt á milli Hofs­jök­uls og Vatna­jök­uls.

Í rök­stuðn­ingi í til­lög­unni um að setja hana í nýt­ing­ar­flokk segir m.a. að hún yrði á mið­há­lend­inu „en þar sem nú þegar er búið að gera miðl­un­ar­lón (Hágöngu­lón), stíflur og til­rauna­bor­holur er ekki lengur um óraskað svæði að ræða“. Mann­virki virkj­un­ar­innar yrðu að mestu neð­an­jarðar og því lítt sýni­leg, að frá­töldu hlað­húsi, spenni og 1 km löngum skurði vestan við núver­andi Sprengisands­leið. Þá segir í grein­ar­gerð virkj­un­ar­að­ila að raf­orkan yrði flutt með jarð­streng.

Hvað til­lögur að verndun svæða varðar segir Auður að vissu­lega séu stórir sigrar að nást í nátt­úru­vernd. „Í Skjálf­anda­fljóti eru til dæmis Ald­eyj­ar­foss og Hrafna­bjarga­foss sem eru gíf­ur­lega fal­legir og myndu sam­kvæmt þessu njóta verndar fyrir virkj­ana­hug­myndum sem uppi hafa verið.“

Frá Sprengisandi og áhrifasvæði fyrirhugaðrar Skrokkölduvirkjunar. Mynd: Ingibjörg Eiríksdóttir
Frá Sprengisandi og áhrifa­svæði fyr­ir­hug­aðrar Skrokköldu­virkj­unar. Mynd: Ingi­björg Eiríks­dóttir

Standa beri vörð um rammaáætlun

„Ég tel það gríð­ar­lega mik­il­vægt að við stöndum vörð um ramma­á­ætl­un­ina sem stjórn­tæki,“ segir Guð­mundur Ingi í sam­tali við Kjarnann.

„Það er ekki æski­legt að mínu mati að hún leys­ist í sundur og við förum aftur að nálg­ast virkj­ana­mál með þeim hætti að það þurfi að takast á við eina og eina virkjun í einu. Það væri ekki gott fyrir neinn. Það er betra að hafa ein­hvern fyr­ir­sjá­an­leika. Auðvitað munum við alltaf deila um ákveðnar hug­myndir, hvort sem þær lenda í nýt­ing­ar­flokki eða vernd­ar­flokki. En ég tel það mik­il­vægt að klára þetta mál. Ég hef því ákveðið að leggja til­lög­una fram á þingi í sam­ræmi við nið­ur­stöðu verk­efna­stjórn­ar­innar á sínum tíma.“

Spurður hvort að honum finn­ist ramma­á­ætlun þá gott stjórn­tæki seg­ist hann alltaf hafa sagt að hún væri mik­il­vægt stjórn­tæki sem flokki virkj­ana­kosti eftir ákveðnum for­sendum. „En hún er ekki galla­laus,“ segir hann og bendir á að hið umtal­aða 10 MW við­mið sé t.d. eitt­hvað sem hann vilji end­ur­skoða. Stærð virkj­unar segi langt frá því alla sög­una um umhverf­is­á­hrif hverrar fram­kvæmdar fyrir sig. Virkj­unum rétt undir 10 MW, sem þá þurfa ekki að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar, hefur fjölgað síð­ustu ár.

Hann seg­ist ekki sann­færður um að stærð­ar­við­mið sé heppi­leg­asta leiðin. „Einhver ein tala, um ákveðið mörg megawött, er það endi­lega rétti mæli­kvarð­inn? Ég tel að það séu frekar áhrifin sjálf sem skipti mestu. Við þurfum að skoða það með opnum huga að finna betra fyr­ir­komu­lag.“

Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti myndi hljóta vernd samkvæmt tillögu að rammaáætlun.
Ald­eyj­ar­foss í Skjálf­anda­fljóti myndi hljóta vernd sam­kvæmt til­lögu að ramma­á­ætlun.

Lína dregin í sandinn

Hvernig rímar það við hug­myndir þínar um Hálend­is­þjóð­garð að yfir tugur virkj­ana­kosta í nýt­ingar-eða bið­flokki sam­kvæmt til­lög­unni séu innan marka hans?

„Í drög­unum að frum­varpi um hálend­is­þjóð­garð er ákveðin stefna lögð til fyrir virkj­ana­kosti innan hálend­is­þjóð­garðs. Við erum með þessar leik­reglur sem ramma­á­ætl­unin er og Alþingi hefur sett. Við erum sam­kvæmt henni að flokka í nýt­ingu og vernd og svo í bið þær hug­myndir sem við þurfum frek­ari upp­lýs­ingar um. Við þurfum hins vegar þegar um þjóð­garð er að ræða að draga ein­hverja línu í sand­inn. Við getum ekki til fram­tíðar litið alltaf verið að skoða nýja virkj­ana­kosti innan þessa svæðis. Þess vegna er í frum­varps­drög­unum gert ráð fyrir því að lína verði dregin í sand­inn við þennan 3. áfanga ramma­á­ætl­unar sem verður lagður fram á þingi nú í febr­úar ásamt frum­varp­inu um hálend­is­þjóð­garð­inn.“

Eyrarrósardalurinn sunnan í Skrokköldu á hálendinu. Lagt er til að setja Skrokkölduvirkjun í nýtingarflokk.
Eyr­ar­rós­ar­dal­ur­inn sunnan í Skrokköldu á hálend­inu. Lagt er til að setja Skrokköldu­virkjun í nýt­ing­ar­flokk.

Samkvæmt frum­varps­drög­unum verður heim­ilt að ráð­ast í þær virkj­ana­hug­myndir sem falla munu í nýt­ing­ar­flokk í 3. áfanga nú að und­an­gengnu mati á umhverf­is­á­hrifum og lög­bundnum leyf­is­veit­ingum. „Þó með þeim for­merkjum að þær virkj­anir hafi lág­marks rask í för með sér og lág­marks sýni­leika á yfir­borði.“ Skrokköldu­virkjun er eini nýi virkj­ana­kost­ur­inn innan marka fyr­ir­hug­aðs þjóð­garðs sem er í nýt­ing­ar­flokki sam­kvæmt til­lög­unni.

Að sama skapi verður sam­kvæmt drög­unum leyfi­legt að þær hug­myndir sem enda í bið­flokki nú geti verk­efna­stjórn tekið til skoð­unar í næstu áætl­unum sínum. „En vegna þess að við erum innan þjóð­garðs þá gildi um þær strang­ari skil­yrði en nú er.“ Líta þurfi m.a. til þess hvort virkj­ana­kostur er á rösk­uðu eða órösk­uðu svæði. „Síðan verður ekki hægt að koma fram með nýjar til­lögur innan þessa svæðis.“

Málamiðlun að sögn ráðherrans

Guð­mundur Ingi segir að þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sé „klár­lega mála­miðlun“ enda séu mjög skiptar skoð­anir um virkj­ana­mál og nátt­úru­vernd í sam­fé­lag­inu. „En þarna værum við að búa til ferli og kerfi sem mun veita meiri vernd heldur en að er í dag.“

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan um verndun og nýt­ingu land­svæða verður lögð fram á þing­inu í febr­úar. Í þeim mán­uði er einnig stefnt á að leggja fram frum­varp um hálend­is­þjóð­garð. Umsagna­frestur um drög þess frum­varps er til 15. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár