Stórnotendur fá afslátt og framkvæmdum við Hvammsvirkjun mögulega flýtt

Viðhalds- og nýfram­kvæmdum Lands­virkj­unar verður flýtt og stórnot­endur fá tíma­bundna afslætti til að mæta þreng­ingum á mörk­uðum sínum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem nema um 1,5 millj­örðum króna.

Unnið verður að ýmsum viðhaldsverkefnum á virkjunum Landsvirkjunar næstu árin.
Unnið verður að ýmsum við­halds­verk­efnum á virkj­unum Lands­virkj­unar næstu árin. Mynd: Landsvirkjun

Lands­virkjun hyggst leggja um 12 millj­arða króna til ýmissa nýfram­kvæmda, end­ur­bóta og við­halds á orku­vinnslu­svæðum á næstu þremur árum, veita tíma­bundna afslætti af raf­orku­verði til við­skipta­vina meðal stórnot­enda sem nema um 1,5 millj­örðum króna, und­ir­búa rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efni á Suð­ur­landi og Norð­ur­landi í sam­starfi við hag­að­ila í nær­sam­fé­lag­inu og flýta verk­efnum á sviði staf­rænnar þró­unar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun.

Nýlega var til­kynnt að Lands­virkjun myndi greiða 10 millj­arða króna í arð til rík­is­sjóðs í ár, eða meira en tvö­falt hærri upp­hæð en á síð­asta ári. „Með þessum hætti ætlar eitt stærsta fyr­ir­tæki þjóð­ar­innar að taka þátt í öfl­ugri við­spyrnu atvinnu­lífs­ins í því átaki sem er fram undan í atvinnu- og efna­hags­málum eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Á sama tíma verður áfram lögð áhersla á ráð­staf­anir til að tryggja örugga orku­vinnslu í afl­stöðvum, en orku­vinnslan hefur gengið áfalla­laust,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Lands­virkjun mun veita tíma­bundin úrræði til að koma til móts við hugs­an­lega rekstr­ar­erf­ið­leika vegna ástands á mörk­uðum í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Stórnot­endur fá tíma­bundna sex mán­aða lækkun af kostn­að­ar­verði Lands­virkj­unar. Átta af tíu stórnot­endum fá lækkun sam­kvæmt þessu sem getur þýtt allt að 25% lækkun raf­orku­verðs. Kostn­aður Lands­virkj­unar vegna afslátta er áætl­aður um 1,5 millj­arðar króna.

Þá verður fram­kvæmdum flýtt og ráð­ist í atvinnu­skap­andi end­ur­bóta- og við­halds­verk­efni á næstu þremur árum. Meðal nýrra verk­efna eru mögu­legar und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir vegna Hvamms­virkj­unar í neð­an­verðri Þjórsá, s.s. við vega­gerð, brú­ar­smíði og aðstöðu­sköpun. Þær fram­kvæmdir myndu þó ekki hefj­ast fyrr en á árinu 2021.

[links]Fleiri verk­efni eru í und­ir­bún­ingi svo sem sam­starfs­verk­efni um orku­tengda nýsköpun og orku­skipti. Þá munu um 220 nemar fá sum­ar­störf víðs vegar um landið á vegum fyr­ir­tæk­is­ins í sumar.

Lands­virkjun vinnur yfir 70% af raf­orku lands­manna og rekur fimmtán vatns­afls­stöðvar, þrjár jarð­varma­stöðvar og tvær vind­myllur á fimm starfs­svæðum fyr­ir­tæk­is­ins víðs vegar um landið. Öll raf­orku­vinnsla Lands­virkj­unar hefur gengið eftir áætlun.

Um 80% orkunnar til stórnotenda

Um 80% allrar raf­orku­fram­leiðslu Lands­virkj­unar er seld til stórnot­enda. Stórnot­endur Lands­virkj­unar eru m.a. Alcoa Fjarðaál, Elkem á Grund­ar­tanga, Norðurál á Grund­ar­tanga, PCC BakkiSilicon, Rio Tinto Alcan í Straums­vík auk nokk­urra gagna­vera.

Þjóðin þarf að lyfta grettistaki á kom­andi mán­uðum og árum, til að vinna upp efna­hags­legan skaða af heims­far­aldr­inum,“ er haft eftir Herði Arn­ar­syni, for­stjóra Lands­virkj­unar, í til­kynn­ing­unni.„Við hjá Lands­virkjun ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að auð­velda eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins þá bar­áttu. Lands­virkjun stendur vel að vígi og mun áfram geta tryggt örugga orku­vinnslu með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum og unnið að kolefn­is­hlut­leysi 2025. Því til við­bótar grípum við til ýmissa ráð­staf­ana til að styðja við við­skipta­vini okkar, ráð­ast í atvinnu­skap­andi verk­efni og stuðla að orku­tengdri og lofts­lagsvænni nýsköpun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár