Núllstefna kínverskra yfirvalda gegn COVID-19 virðist óhagganleg

Kínversk yfirvöld hafa frá upphafi heims­faraldurs COVID-19 sýnt veirunni lítið umburðar­lyndi. Ólíkt öðrum löndum ætlar Kína ekki að „lifa með veirunni“ og svokölluð núll­stefna yfirvalda virðist óhagganleg þrátt fyrir víðtæk efnahagsleg áhrif.

Sýnataka vegna COVID-19 í Beijing. Smitum hefur farið fjölgandi í Kína og Hong Kong upp á síðkastið, þrátt fyrir að harðar sóttvarnaraðgerðir séu enn í gildi.
Sýnataka vegna COVID-19 í Beijing. Smitum hefur farið fjölg­andi í Kína og Hong Kong upp á síðkastið, þrátt fyrir að harðar sótt­varn­ar­að­gerðir séu enn í gildi. Mynd: EPA

Kórónu­veirusmitum fer fjölgandi í Kína og Hong Kong og hafa ekki verið fleiri í tvö ár, þrátt fyrir að sótt­varnar­aðgerðir séu hvergi jafn harðar í heiminum.

Flest lönd fylgja þeirri stefnu í dag að „lifa með veirunni“. Annað er uppi á teningnum í Kína þar sem veirunni hefur ekki verið sýnd neitt umburðar­lyndi frá því að hún braust fyrst út þar í landi, og í heiminum öllum, undir lok árs 2019. Yfirvöld hafa rekið eins konar núll­stefnu (e. zero-tolerance) gegn heims­faraldrinum og gripið til harðra aðgerða, svo sem útgöngu­banns, í hvert sinn sem ný smit­bylgja gerir vart við sig.

4.770 smit greindust í Kína síðasta sólar­hring. Langflest smitin má rekja til héraðanna Jilin og Liaoning í norð­austurhluta landsins. Níu milljónir búa í iðnaðar­borginni Sjenjang í Jilin-héraði þar sem allsherjar­lokun og útgöngu­bann tók gildi í öllu héraðinu á mánudag.

Ómíkron reynst núllstefnunni áskorun

Xi Jinping, forseti Kína, hefur lofsamað núll­stefnu yfirvalda og segir að með útgöngu­bönnum og umfangs­mikilli sýnatöku hafi Kína farið þá leið í barátt­unni við faraldurinn sem virkar best.

Ómíkron-afbrigði kórónu­veirunnar hefur hins vegar reynst ákveðin áskorun gegn núll­stefnunni. Veiran hefur ekki náð jafn mikilli útbreiðslu í Kína í tvö ár og þetta er í fyrsta sinn sem yfirvöld hafa gripið til þess að setja á útgöngu­bann í héraði eins og það leggur sig síðan útgöngu­bann var sett á í Wuhan-héraði í upphafi faraldursins í ársbyrjun 2020.

Staðan er enn verri í Hong Kong, sem hefur hingað til nánast verið laust við veiruna, en nú greinast yfir 30 þúsund smit daglega og um 200 hafa látið lífið á degi hverjum síðustu daga. Heilbrgiðiskerfi borgarinnar er komið að þolmörkum og hefur sjúklingum verið raðað á sjúkra­börur utandyra á meðan það bíður eftir þjónustu.

Núll­stefna kínverskra yfirvalda í barátt­unni við COVID-19 er enn í gildi en ýmis teikn eru á lofti um vilja til að slaka á takmörkunum. Raddir þess efnis að ekki sé hægt að halda stefnunni áfram endalaust eru farnar að heyrast, sérstak­lega vegna neikvæðra efnahagslegra áhrifa sem það hefur að setja á hvert útgöngu­bannið á fætur öðru. Sjö daga útgöngu­bann sem sett var á í hafnar­borginni Shenzhen í síðustu viku er til að mynda talið geta valdið miklu hökti í alþjóð­legum vöru­flutningum og fram­leiðslu á raftækjum. Og dæmin eru miklu fleiri.

Smituðum ekki lengur skylt að leggjast inn á spítala

Stefnu­breytingu er farið að gæta meðal stjórn­valda, sem vilja þó fara mjög hægt í sakirnar. Í þessari viku greindi heilbrigðis­nefnd Kína frá reglu­breytingum þess efnis að sjúklingar með væg einkenni þurfa ekki að leggjast inn á spítala heldur verði þeim sinnt utan hans í smærri hópum. Reglur um sóttkví hafa einnig verið rýmkaðar.

„Hér áður fyrr var hver einasti sem smitaðist af veirunni lagður inn á spítala, hvort sem um var að ræða mikil eða væg einkenni,“ segir Jin Dong-yan, prófessor við háskólann í Hong Kong, í samtali við BBC. Jin segir að yfirvöld séu smám saman að gera sér grein fyrir að margir sem smitast þurfa ekki á mikilli aðhlynningu eða umönnun að halda.

Á síðasta ári sagði Zhang Wenhong, einn fremsti faraldurs­fræðingur Kína, að Kína yrði á endanum að marka sér þá stefnu að lifa og starfa með veirunni. Orð hans mættu harðri gagnrýni og var Zhang kallaður svikari og sakaður um að vera í vitorði með ríkjum sem vildu grafa undan aðgerðum kínverskra yfirvalda gegn faraldrinum.

Fyrsta skrefið að losna við óttann

Færsla sem Zhang birti á samfélags­miðlum nýlega fékk hins vegar önnur viðbrögð frá yfir­völdum. Í henni segir hann að yfirvöld ættu sannarlega að viðhalda núll­stefnu sinni gegn faraldrinum en á sama tíma ættu þau ekki að hræðast það að færast smám saman í áttina að lang­varandi aðgerða­áætlun.

„Að losna við óttann er fyrsta skrefið sem við verðum að taka,“ segir Zhan meðal annars í færslu sinni. Þar bendir hann einnig á að ómíkron-afbrigðið sé vægara en þau sem á undan hafa komið og í löndum þar sem bólu­setningar­hlutfall er hátt og ákveðið hjarð­ónæmi til staðar sé hefð­bundin flensa í raun banvænni en ómíkron-afbrigðið. Orðum faraldurs­fræðingsins var betur tekið í þetta sinn, hann var að minnsta kosti ekki gagn­rýndur opinber­lega af yfir­völdum.

Hversu lengi mun núllstefnan halda út?

Huang Yanzhong, prófessor í hnattrænni heilsu og nefndar­maður í alþjóða­tengsla­nefnd Kína, segist skynja minnkandi stuðning almennings við núll­stefnu yfirvalda. „Mín tilfinning er sú að fólk sé einfald­lega komið með nóg, sérstak­lega í stærri borgum eins og Shanghai. Fólk styður núll­stefnuna almennt en á sama tíma grefur útbreiðsla ómíkron-afbrigðisins undan stuðningnum.“

Stóra spurningin er hversu lengi Kína getur haldið út? Sérfræðingar telja að ekki sé von á stórum stefnu­breytingum á þessu ári, sérstak­lega þar sem hver smit­bylgjan á fætur annarri virðist vera að ná fótfestu víðsvegar í landinu. Auk þess óttast margir að heilbrigðis­kerfið ráði ekki við afléttingu sóttvarna­aðgerða og að slíkt myndi leiða til fjölda dauðsfalla, líkt og er að gerast í Hong Kong.

„Erum við tilbúin að takast á við vandann í skamman tíma með fjölgun tilfella og dauðsfalla til að öðlast stöðug­leika til lengri tíma?“ spyr Huang. Sérfræðingar telja litlar sem engar líkur á að svo sé, að minnsta kosti ekki á þessum tíma­punkti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár