Framboðshökt væntanlegt vegna smitbylgju í Kína

Kín­verska rík­is­stjórnin hefur sett á sjö daga útgöngu­bann í hafn­ar­borg­inni Shenzhen vegna nýrrar smit­bylgju af kór­ónu­veirunni. Bannið, ásamt öðrum sótt­varn­ar­að­gerðum í land­inu, gæti haft tölu­verð áhrif á vöru­flutn­inga á heims­vísu.

Frá Yantian-höfninni í Shenzhen.
Frá Yantian-höfn­inni í Shenzhen. Mynd: EPA

Kór­ónu­veirusmitum hefur fjölgað hratt í tveimur kín­verskum borgum á síð­ustu dögum og hafa stjórn­völd þar í landi brugð­ist við þeim með umfangs­miklum sótt­varn­ar­að­gerðum. Samkvæmt sér­fræð­ingum gæti bannið valdið miklu hökti í alþjóð­legum vöru­flutn­ingum og fram­leiðslu á raf­tækjum.

New York Times greindi frá því á sunnu­dag­inn að útgöngu­banni hafi verið komið á í hafn­ar­borg­inni Shenzhen vegna mik­illar fjölg­unar smita þar á síð­ustu dögum. Nýgreind smit voru þó ein­ungis 66 tals­ins í gær, en kín­versk stjórn­völd hafa áður gripið til umfangs­mik­illa aðgerða í land­inu til þess að kæfa far­ald­ur­inn niður í fæð­ingu.

Shenzhen, sem hefur alls 17,5 millj­ónir íbúa, er mið­stöð kín­verskra tækni­fyr­ir­tækja og raf­magns­tækja­fram­leið­enda, auk þess sem hún hefur að geyma Yantian-höfn­ina, sem er fjórða stærsta gáma­höfn í heimi. Um 90 pró­sent af öllum raf­tækjum frá land­inu fara um þá höfn.

Útgöngu­banni var komið á fót í borg­inni í fyrra­vor, en í kjöl­farið á því urðu miklar trufl­anir í vöru­flutn­ingum á milli landa, sem leiddi til vöru­skorts og skarpra verð­hækk­ana á Vest­ur­löndum. Marga mán­uði tók að vinda ofan af þeim

Á meðal fyr­ir­tækja sem eru í borg­inni er Foxconn, sem er stærsti fram­leið­andi iPhone síma frá Apple. Í kjöl­far til­kynnts útgöngu­banns ákvað Foxconn að stöðva fram­leiðslu sína í tveimur af verk­smiðjum félags­ins í gær, en fyr­ir­tækið sagð­ist ætla að bíða eftir ráð­gjöf frá

Nýjum smitum hefur einnig fjölgað í Shanghai, sem hefur að geyma stærstu gáma­höfn í heimi. Rík­is­stjórn Kína hefur þó ekki enn sett á útgöngu­bann þar, en bannar þó íbúum borg­ar­innar að ferð­ast úr henni að nauð­synja­lausu.

Í við­tali við Associated Press sagði Albert Au, sem er sér­fræð­ingur hjá sótt­varn­ar­stofnun Kína, að það væri alls ekki búið að koma böndum á veiruna. „Um leið og við hættum að vera var­kár er mögu­legt að sýk­ingar muni aukast aftur,“ bætti hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár