Toyota fjárfestir í Uber

Japanski bíla­fram­leiðandinn Toyota mun fjárfesta fyrir 500 milljónir Bandaríkja­dollara í Uber og stefna fyrir­tækin á að þróa sjálf­keyrandi bíla.

Japanski bíla­fram­leiðandinn Toyota mun fjárfesta 500 milljónum Bandaríkja­dollurum í Uber, eða það sem samsvarar 53 milljörðum íslenskra króna, og stefna fyrir­tækin á að þróa sjálf­keyrandi bíla. Þetta kemur fram í frétt BBC í dag.

Forsvars­menn Toyota segja að í þessu felist stór­framleiðsla á sjálf­keyrandi bílum sem Uber myndi nota í sinni starfsemi. Bíla­flotinn mun vera byggður á Toyota Sienna Minivan en til stendur að prufu­keyrsla hefjist árið 2021.

Í frétt BBC segir að bæði fyrir­tækin, Toyota og Uber, séu talin eftir á í þróun slíkrar tækni og að fyrirtæki á borð við Waymo, sem er í eigu Alphabet, standi þeim mun framar. Með þessu samstarfi væri verið að brú það bil sem myndast hafi milli þessara tveggja fyrir­tækja og annarra á markaðinum.

Markaðs­virði Uber hefur hækkað um 15 prósent síðan í maí síðastliðnum og er nú metið á svipuðu verði og í febrúar, fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár