Sjálfakandi bílar til þjónustu reiðubúnir

Uber er á fullri ferð með þróun sjálfa­kandi bíla.

Uber, sem hefur komið eins og storm­sveipur á leigu­bíla­markað um allan heim, er komið langt með að þróa sjálfa­kandi bíla og er þessa dag­ana að prófa þá þjón­ustu á við­skipta­vinum sínum í Pitts­burgh. Tækni­vef­ur­inn The Verge greindi frá því í síð­ustu viku að Uber væri nú komið með sjálfa­kandi bíla á göt­una sem myndu skutla ein­staka við­skipta­vinum á milli staða á næstu mán­uðum, undir ströngu eft­ir­liti við­skipta­þró­un­ar­sviðs Uber.

Sjálfakandi Volvo-ar

Bílarnir sem not­aðir eru í þessa til­rauna­starf­semi eru Volvo XC90 jebbar. Ökumenn verða undir stýri og annar til við­bótar mun fylgj­ast með að allt fari rétt fram. Flóknast í þess­ari þróun er hug­bún­aður sem not­aður er til að meta umferð­ina og umhverfið, í sam­hengi við nákvæmt kor­ta­kerfi sem bíl­arnir búa yfir.

Fari svo að þetta gangi vel, þá mun ekki líða langur tími þar til fleiri borgir bæt­ast við. Uber er nú aðgengi­legt í flestum stærstu borgum heims­ins og hefur sér­stak­lega haft mikil áhrif í stærstu borgum heims­ins.

Tveggja ára ferli

Frá því árið 2014 hefur þróun Uber á sjálfa­kandi bílum verið unnin að miklu leyti í Pitts­burgh, í sam­vinnu við verk­fræð­inga við Carnegie Mellon Uni­versity. Þar hefur á und­an­förnum árum verið sér­stak­lega metn­að­ar­full vinna við að þróa gervi­greind og ákvað Uber að stað­setja kjarna­starf­semi sína í tækni­þróun í nálægð við skól­ann (Advanced Technologies Center).

Eftir að hafa sótt mikið fjár­magn til fjár­festa á árunum 2013 og 2014 var settur mik­ill kraftur í að þróa sjálfa­kandi bíla sem eru með hátækni­legan hug­búnað sem gerir hina sjálf­virku þjón­ustu mögu­lega.

Samkvæmt skrifum The Verge þá er Uber með meira en hund­rað verk­fræð­inga í vinnu við að þróa þessi mál áfram. Ekki er vitað hvenær Uber hyggst vera búið að þróa hug­bún­að­inn, og hefja þá um leið að not­ast við sjálfa­kandi bíla fyrir fólk og vöru­flutn­inga, en aug­ljóst er að fyr­ir­tækið leggur mikla áherslu á að flýta ferl­inu sem mest og vera leið­andi á þessu sviði á heims­vísu.

Google hefur lengi unnið að þróun lausna á þessu sviði, og verið með sjálfa­kandi bíla á göt­unni í Kali­forníu und­an­farin tvö ár. Uber hefur ekki verið með sín áform á yfir­borð­inu fyrr í vor að fólk í Pitts­burgh tók eftir því að Ford Fusion bíll, sem virt­ist vera stjórnað með sjálfa­kandi hug­bún­aði, sást á göt­unum í borg­inni. Þetta reynd­ist vera rétt og sendi Uber frá sér fyrstu opin­beru mynd­ina af sjálfa­kandi bíl fyr­ir­tæk­is­ins í maí á þessu ári.

Gjörbreyttur bílaiðnaður

Í síð­ustu viku til­kynnti Uber um samn­ing við Volvo upp á 300 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem 36 millj­örðum króna, þar sem fyr­ir­tækin vinna í sam­ein­ingu að því að þróa sjálfa­kandi bíla. Volvo stefnir að því að hafa lokið við þróun á sjálfa­kandi bíl fyrir opin­beran markað árið 2021 sem er sam­bæri­legt mark­mið og Ford, Toyota og Honda hafa sett sér. Er sam­hliða þessum mark­miðum unnið að fram­þróun raf­tækn­innar, og eru nú flestir stærstu bíla­fram­leið­endur heims­ins að vinna mark­visst að því að þróa raf­bíla af öllum stærðum og gerðum.

„Fram­tíðin, eins og hún birt­ist okkur, er að nálg­ast hratt,“ segir í lok umfjöll­unar The Verge um áform Uber, en fyr­ir­tækið er nú metið á um 62,5 millj­arða Banda­ríkja­dala, miðað við verð­mið­anna sem not­aður var í síð­ustu fjár­mögnun fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár