Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins fjárfestu ekki í GAMMA

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, LSR og Gildi fjár­festu ekki í sjóðum GAMMA.

Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, LSR og Gildi, hafa ekki fjár­fest í sjóðum GAMMA.

Á vef­síðu Gildis kemur fram að „í ljósi fjöl­miðlaum­fjöll­unar síð­ustu daga um mál­efni Gamma Capital Mana­gement og fyr­ir­spurna sem Gildi hafa borist þykir sjóðnum rétt að upp­lýsa að Gildi hefur ekki fjár­fest í sjóðum Gamma.“

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til LSR og Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna segir að þeir hafi heldur ekki fjár­fest í fyrr­nefndum sjóðum.

Trygg­inga­fé­lagið VÍS sendi frá sér afkomu­við­vörun í gær­kvöldi þar sem gert var grein fyrir því að afkoma félags­ins til árs­loka verði óhag­stæð­ari en spá hafði gert ráð fyr­ir. Sam­kvæmt drögum að árs­hluta­upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung verður afkoman nei­kvæð um 370 til 420 millj­óna króna en áður hafði verið gert ráð fyrir því að hagn­aður upp á 138 millj­ónir króna yrði af starf­semi VÍS á árs­fjórð­ungn­um.

Í til­kynn­ing­unni segir að marg­þættar ástæður séu fyrir þess en að mest vigti verri afkoma af skráðum hluta­bréfum í eigu félags­ins. Einnig skiptir máli að VÍS átti hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum GAMMA: Novus, sem var færður niður í fyrra­dag um millj­arða króna. Nið­ur­færsla VÍS vegna þessa nemur 155 millj­ónum króna.

Þar með hafa öll þrjú skráðu trygg­inga­fé­lög lands­ins fært niður eignir vegna GAMMA: Novus. Bók­fært tap TM vegna fjár­fest­inga í sjóðnum nemur um 300 millj­ónum króna og Sjóvá bók­færði tap upp á 155 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár