Verkstjórn samstarfsaðila GAMMA var verulega ábótavant og kostnaður vanmetinn

GAMMA segir að það verði for­gangs­verk­efni hjá sér að hámarka end­ur­heimtur í sjóði sem félagið stofn­aði í Bret­landi, og hefur verið færður veru­lega niður. Verk­stjórn sam­starfs­að­ila hafi verið ábóta­vant og kostn­aður van­met­inn.

Við mat á sjóðnum GAMMA: Anglia, sem fjár­festir í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efnum í Bret­landi, kom í ljós að „verk­stjórn eins sam­starfs­að­ila sjóðs­ins var veru­lega ábóta­vant og kostn­aður var van­met­inn. Hefur sjóð­ur­inn fært fjár­fest­ingar sem gerðar voru í sam­starfi við umræddan aðila niður, auk kostn­aðar við und­ir­bún­ing bygg­ingar fjöl­býl­is­húss sem hafnað var af skipu­lags­yf­ir­völdum.“

Nýir aðilar hafa verið ráðnir til að hafa umsjón með verk­efnum GAMMA: Anglia í Bret­landi og for­gangs­verk­efni hjá þeim verður að hámarka end­ur­heimtur hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í sjóðnum, en gengi hans var fært niður úr 105 í 55 í fyrra­dag.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu sem nýr fram­kvæmda­stjóri GAMMA, Máni Atlason, hefur sent frá sér vegna end­ur­mats á stöðu tveggja sjóða í stýr­ing hjá félag­inu.

Hinn sjóð­ur­inn sem var færður niður, GAMMA: Novus, var sagður eiga 4,4 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót og um 3,8 millj­arða króna fyrir þremur mán­uðum síðan. Eftir end­ur­mat á eignum hans er eigið fé sjóðs­ins metið á 42 millj­ónir króna.

Í til­kynn­ing­unni segir að á síð­ari hluta árs­ins 2019 hafi stjórn GAMMA ráðið inn nýtt teymi sér­fræð­inga, í kjöl­far þess að Kvika eign­að­ist allt hlutafé félags­ins. Í kjöl­far vinnu sér­fræð­ing­anna hafi gengi GAMMA: Novus og GAMMA: Anglia verið fært niður í sam­ræmi við stöðu að mati núver­andi stjórn­enda GAMMA. Samhliða nið­ur­færslu var skip­aður nýr sjóð­stjóri í báðum sjóðum.

Í til­kynn­ing­unni er farið yfir að við mat á stöðu GAMMA: Novus hafi komið í ljós að eigið fé Upphafs fast­eigna­fé­lags, sem er í eigu sjóðs­ins, hafi verið veru­lega ofmetið. „Fyrir liggur að kostn­aður við fram­kvæmdir verk­efna á vegum félags­ins er van­met­inn. Jafn­framt var raun­fram­vinda verk­efna félags­ins ofmetin. Sú staða sem upp er komin kallar á end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­hag félags­ins og nýja fjár­mögnun til að tryggja fram­gang verk­efna og hámarka virði eigna.“

Inni í félag­inu séu hins vegar veru­legar eignir, þar á meðal 277 íbúðir í bygg­ingu. „Með sölu full­bú­inna fast­eigna verður hægt að ná veru­legum end­ur­heimtum af fjár­munum kröfu­hafa félags­ins. Boðaður hefur verið fundur með skulda­bréfa­eig­endum og við­ræður hafa átt sér stað við aðra kröfu­hafa um björgun félags­ins.“ Á meðal þeirra sem hafa fært mikið bók­fært tap vegna eignar sinnar í sjóðnum eru þrjú skráð trygg­inga­fé­lög, TM, Sjóvá og VÍS. Sam­an­lagt nemur tap þeirra 610 millj­ónum króna, mest hjá TM sem færði niður sína eign um 300 millj­ónir króna. Á meðal stærstu eig­enda þeirra allra eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Auk hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa, sem hafa sett millj­arða króna í sjóð­inn, þá lán­aði hópur fjár­festa GAMMA: Novus 2,7 millj­arða króna í júní síð­ast­liðnum í skulda­bréfa­út­boði. Bréfin voru til tveggja ára, áttu upp­haf­lega að bera 11 pró­sent vexti en end­uðu í 15 pró­sentum. Þær upp­lýs­ingar sem þátt­tak­endur í skulda­bréfa­út­boð­inu fengu á þeim tíma um stöðu sjóðs­ins voru allt aðrar en sú staða sem nú blasir við, eftir end­ur­mat á eignum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár