Kushner bað Kislyak um að koma á leynisamskiptum við Kremlin

Washington Post greindi frá því að tengda­sonur Donalds Trumps, og ráðgjafi hans, hefði beðið um að koma á leyni­samskiptum við Rússa.

Jared Kushner, eigin­maður Ivönku Trump dóttur Donalds Trump Bandaríkja­forseta, er sagður hafa óskað eftir því í samtölum við Sergey Kislyak, sendi­herra Rússa í Banda­ríkjunum, að leyni­legum samskiptum við stjórn­völd í Rússlandi yrði komið á. 

Washington Post greindi frá þessu í gær, en samkvæmt heimildum blaðsins bað Kushner um þetta á fundi með Kislyak í Trump turninum við 59. stræti á Manhattan í New York í byrjun desember, eða skömmu áður en Trump tók formlega við sem forseti.

Kushner óskaði eftir því að samskipta­línurnar yrðu lagðar í húsa­kynnum rússneskra stjórn­valda í Banda­ríkjunum til þess að forðast hleranir. Ekki kemur fram í grein Washington Post hvort Rússar hafi orðið við beiðni Kushners. Kislyak er sagður hafa orðið undrandi á hugmyndinni og sagt stjórn­völdum í Kreml frá henni.

Alríkis­lögreglan FBI vinnur að rannsókn á tengslum framboðs Trumps við Rússa. Einn þeirra sem er miðpunkturinn í rann­sókninni er þjóðar­öryggis­ráðgjafinn fyrr­verandi, Michael Flynn, en hann hefur meðal annars neitað að afhenda þingnefnd Banda­ríkjaþings gögn um viðskipta­samninga sem tengjast Rússum. 

Þá beinist rann­sóknin einnig að sjálfum dómsmála­ráðherranum, Jeff Sessions, en hann átti í tvígang fundi með fyrr­nefndum Kislyak í fyrra, í aðdrag­anda þess að Trump sigraði í kosningunum í Banda­ríkjunum.

Hann kom meðal annars fyrir þingnefnd og fullyrti þar, eiðsvarinn, að hann hefði ekki átt í neinum samskiptum við Rússa, sem reyndist rangt, eftir að leyni­þjónustan CIA upplýsti um fundina tvo sem hann átti með Kislyak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár