Ríkisstjórnin dró upp villandi mynd af skattatillögum

Ef miðað er við tölur Hag­stof­unnar fyrir árið 2017 og kynn­ing­ar­efni fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um áhrif skatta­lækk­un­ar­innar virð­ist lækkun skatt­byrðar hjá fisk­vinnslu­fólki, ræst­ing­ar­starfs­mönnum og verka­fólki í bygg­ing­ar­iðn­aði verða að með­al­tali nær einu pró­sentu­stigi en tveimur.

Fjár­mála­ráðu­neytið full­yrti í frétta­til­kynn­ingu í gær að skatt­byrði lág­tekju­fólks myndi lækka um 2 pró­sentu­stig ef fyr­ir­ætl­anir rík­is­stjórn­ar­innar í skatta­málum yrðu að veru­leika. Bjarni Bene­dikts­son hélt þessu einnig fram á blaða­manna­fundi og hefur stað­hæf­ingin end­u­r­ómað í fjöl­miðlum.

Ef marka má það talna­efni sem varpað var upp á blaða­manna­fund­inum er það hins vegar aðeins hluti lág­tekju­fólks fær 2 pró­sentu­stiga lækkun á skatt­byrði sinni. Þetta eru einkum þeir full­vinn­andi launa­menn sem eru með í kringum 300 þús­und króna tekjur á mán­uði. Tug­þús­undir fram­telj­enda sem sann­ar­lega telj­ast lág­tekju­fólk munu fá tals­vert minni lækkun skatt­byrðar, t.d. lág­tekju­fólk sem vinnur mikla yfir­vinnu.

Ef miðað er við tölur Hag­stof­unnar fyrir árið 2017 og þau áhrif skatta­lækk­un­ar­innar sem sýnd eru í kynn­ing­ar­efni fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins virð­ist lækkun skatt­byrð­innar hjá fisk­vinnslu­fólki, ræst­ing­ar­starfs­mönnum og verka­fólki í bygg­ing­ar­iðn­aði verða að með­al­tali nær einu pró­sentu­stigi en tveimur.

Í talna­efn­inu kemur fram að fram­telj­endur sem eru með árs­tekjur á bil­inu 2 til 2,5 millj­ónir fái 0,92 pró­sentu­stiga lækkun á skatt­byrði sinni og fram­telj­endur með 2,5 til 3 millj­óna árs­tekjur fái 1,48 pró­sentu­stiga lækkun. Auk þess fái fólk með 375 þús­und króna mán­að­ar­laun aðeins 1,69 pró­sentu­stiga lækkun skatt­byrðar. Að þessu leyti stang­ast kynn­ing­ar­efnið um áhrif skatta­lækk­un­ar­innar á við full­yrð­ing­una sem birt­ist í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. 

Úr glæru­sýn­ingu fjár­mála­ráð­herra

Í glæru­sýn­ingu fjár­mála­ráð­herra eru mán­að­ar­legar tekjur hópa bornar saman við þá árlegu lækkun skatta sem felst í til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar. Með þessu er dregin upp vill­andi mynd af áhrifum fyr­ir­hug­aðra breyt­inga, skatta­lækk­unin í raun tólf­földuð.

Flestir fram­telj­endur sem eru með mán­að­ar­tekjur yfir 325 þús­und krónum fá sömu skatta­lækk­un­ina ef til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar verða að veru­leika en skattar hinna tekju­lægri lækka minna. Engu að síður eru skatta­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar kynntar undir yfir­skrift­inni „Skatt­byrði minnkuð á lág­tekju­fólk“ á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.  

Fjár­mála­ráðu­neytið áætlar að skatt­kerf­is­breyt­ing­arnar muni kosta rík­is­sjóð 14,7 millj­arða. Í ljósi þess hvernig skatta­lækk­unin teygir sig upp tekju­stig­ann er ljóst að drjúgur hluti þess­ara 14,7 millj­arða mun renna til fólks sem er vel yfir með­al­tekjum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár