Aðeins 27 greiddu atkvæði í prófkjöri Pírata

Þrír í framboði á Akureyri. Einar Brynjólfsson, fyrr­verandi þingmaður, vildi fyrsta sæti en fékk ekki.

Náði ekki efsta sætinu
Náði ekki efsta sæt­inu Einar Brynj­ólfs­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, sótt­ist eftir efsta sæti á lista flokks­ins í próf­kjöri fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á Akureyri. Hann hafn­aði hins vegar í öðru sæti. Mynd: Píratar

Aðeins 27 manns tóku þátt í prófkjöri Pírata fyrir komandi sveitar­stjórnar­kosningar á Akureyri. Einar Brynjólfsson, fyrr­verandi þingmaður Pírata, sóttist eftir því að leiða lista flokksins en lenti í öðru sæti. Þrír gáfu kost á sér.

Níutíu manns höfðu kosninga­rétt í próf­kjörinu og því var það tæpur þriðjungur félags­manna sem tók þátt. Halldór Arason varð efstur í próf­kjörinu, Einar annar og Guðrún Ágústa Þórdísar­dóttir í þriðja sæti.

Bjarki Hilmarsson, formaður Pírata á Akureyri, segir að vissulega séu þetta ekki margir þátt­takendur. „Vanda­málið okkar er að það eru ekkert allt of margir formlega skráðir í félagið. Félagið er ekki gamalt, það var stofnað í haust en fram að því var þetta allt undir hatti Pírata á Norð­austurlandi. Félagið hefur  dálítið undir radarnum, við hefðum viljað hafa haustið til uppbyggingar en þá skullu auðvitað Alþingis­kosningar á. Orkan fór ansi mikið í þær og tíminn hljóp frá okkur.“

Bjarki segir að þrátt fyrir að aðeins þrír hafi gefið kost á sér og þátttaka hafi ekki verið meiri en raun bar vitni þá sé engan bilbug á Pírötum á Akureyri að finna. „Við stefnum alveg ótrauð á framboð, við erum bara að leita að fólki sem vill gefa kost á sér og höfum þegar hafið málefna­vinnu.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár