Pálmi tekur 370 milljóna arð til félags í Lúx

Góðærið á Íslandi hefur skotið traustum fótum undir ferða­skrifstofu Pálma Haralds­sonar enda hafa Íslendingar aldrei ferðast meira til útlanda.

Arður í góðæri
Arður í góð­æri Ferða­skrif­stofa Pálma Har­alds­sonar hefur greitt 370 millj­óna króna arð til eign­ar­halds­fé­lags hans í Lúx­em­borg á síð­ustu þremur árum enda hefur ríkt góð­æri á Íslandi sem sést meðal ann­ars á utan­lands­ferðum lands­manna.

Ferða­skrifstofa Pálma Haralds­sonar, sem yfirleitt var kenndur við eignarhalds­félagið Fons, skilar stöðugum hagnaði ár eftir ár. Í fyrra skilaði fyrirtæki hans, Ferða­skrifstofa Íslands, tæplega 40 milljóna króna hagnaði og var greiddur 27 milljóna arður til fyrir­tækis Pálma í lágskatta­ríkinu Lúxemborg, Academy Sarl. Árið þar á undan, 2015, var greiddur 170 milljóna króna arður úr félaginu, eða 35 prósent af hlutafé félagsins, eftir að félagið hafði skilað rúmlega 130 milljóna króna hagnaði. Árið 2014 nam arðgreiðslan ríflega 172 milljónum. Undir Ferða­skrifstofu Íslands heyra meðal annars ferða­skrif­stofurnar Úrval Útsýn, Sumar­ferðir og Plús­ferðir.

Mikil uppsveifla hefur verið í ferðum Íslendinga til útlanda síðastliðin ár í því góðæri sem ríkt hefur í landinu og sést þess stað í rekstri Ferða­skrifstofu Íslands. Samkvæmt frétta­síðunni túristi.is var júlí síðastliðinn næst­stærsti ferða­mánuður Íslendinga frá upphafi mælinga en þá flugu tæplega 62.500 Íslendingar til útlanda, eða um tvö þúsund manns á hverjum degi. Á vefsíðunni kemur fram …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár