Dæmdir innflytjendur sjálfkrafa sendir úr landi

Allir innflytj­endur sem eru dæmdir í fangelsi í Svíþjóð verða sjálf­krafa reknir úr landi, samkvæmt nýju laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar.

Ulf Kristersson
Ulf Kristers­son For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar hér á neyð­ar­fundi Evr­ópu­leið­toga fyrir mán­uði síðan eftir hót­anir Banda­ríkja­for­seta um að taka yfir Grænland. Mynd: AFP

Sænska ríkis­stjórnin tilkynnti í dag að hún vildi fjölga verulega brott­vísunum innflytjenda sem hafa hlotið dóm og sagði að öll brot sem varða þyngri refsingu en sektum ættu að leiða til brott­vísunar að jafnaði.

„Allt of lengi hefur verið dekrað við erlenda glæpamenn í Svíþjóð sem hafa framið alvarlega glæpi í landinu,“ sagði Johan Forssell, ráðherra innflytjenda­mála, á blaðamanna­fundi. Forssell, eins og forsætis­ráðherrann Ulf Kristersson, er úr miðhægri flokknum Moderatarna, sem þýða mætti sem Hófsama flokkinn.

Nýja frum­varpið myndi innleiða nokkrar aðgerðir til að fjölga brott­vísunum glæpa­manna, þar á meðal skyldu fyrir saksóknara til að krefjast brott­vísunar sem hluta af dóms­uppkvaðningu í stað þess að láta það vera ákvörðun saksóknara.

Ríkis­stjórnin sagðist telja að nýja löggjöfin myndi leiða til um 3.000 brott­vísana á ári – sex sinnum fleiri en núverandi meðaltal sem er um 500 á ári.

Frum­varpið verður fyrst sent til lagaráðs Svíþjóðar, sem …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár