Vantar 350 kíló af kannabis

Danska ríkis­stjórnin hefur ákveðið að 1500 danskir sjúklingar fái að taka þátt í sérstöku tilrauna­verkefni og nota kannabis í lækninga­skyni. Um það bil 200 Danir hafa um nokkurra ára skeið fengið að nota kannabis til að lina þrautir, hráefnið hefur verið keypt frá fram­leiðanda í Þýska­landi en blandað og sett saman í apóteki í Danmörku. Þýska fyrir­tækið getur ekki selt Dönum meira kannabis en það gerir nú þegar. Dönsk heilbrigðis­yfirvöld telja að árlega þurfi 350 til 400 kíló af kannabis til að þeir sjúklingar sem taka þátt í tilrauna­verkefninu fái það magn sem þeir þurfa en verkefnið á að hefjast 1. janúar 2018.

Margir kannast við þetta orð, kannabis, og þegar fjallað er um það í fjöl­miðlum tengist það oftast ólöglegri iðju, sölu, ræktun eða neyslu.

Kannabis er hins vegar ekki bara eitthvað eitt ef svo mætti segja enda ganga plantan og „afurðirnar“ undir ýmsum nöfnum t.d. hass, hampur, marijúana, gras, jóna o.fl. Skilgreiningarnar eru þó nokkuð á reiki. Áður fyrr kölluðust t.d afurðir kannabis­plöntunnar einu nafni hampur en í dag er orðið einkum notað um afurðir sem ekki tengjast vímuefnum með neinum hætti. Flestir Íslendingar kannast líklega við Hamp­iðjuna, gamalt og rótgróið fyrirtæki (stofnað 1934) sem fram­leiðir margskonar vörur, einkum tengdar sjávar­útvegi. Hampiðjan notaði einkum hamp í fram­leiðsluna fyrstu áratugina en um 1960 tóku önnur efni við.

Kannabis hefur verið notað um aldir

Vísinda­menn hafa lengi rannsakað áhrif kannabis­plöntunnar á manns­líkamann en alda­gamlar heimildir frá Kína og Indlandi benda til að kannabis (hampur) hafi verið notað í lækninga­skyni. Notkun kannabis hefur löngum mætt mikilli andstöðu en á undan­förnum árum hefur umræðan hinsvegar breyst.

Hollendingar hafa verið framarlega í rann­sóknum og notkun á kannabis til lækninga. Þar er kannabis framleitt undir ströngu eftirliti, kallað læknandi kannabis.

Dönsk heilbrigðis­yfirvöld hafa falast eftir kaupum á efninu frá hollenska fram­leiðandanum, sem segist einungis geta selt Dönum 35 kíló á ári. Sem sé einungis 10 prósent þess sem danskir sjúklingar þurfa á að halda.

Bændur tilbúnir ef leyfi fæst

Þegar það spurðist út að heilbrigðis­yfirvöld væru í vandræðum með að útvega kannabis létu danskir bændur strax í sér heyra. Kváðust tilbúnir að taka að sér þessa ræktun. Talsmaður bænda­samtakanna sagði að auk þess að framleiða fyrir heilbrigðis­yfirvöld væru margir aðrir mögu­leikar í boði. „Kannabis­plantan er merkilegt fyrirbæri sem æ fleiri hafa nú komið auga á,“ sagði tals­maðurinn og nefndi bygginga­iðnaðinn, snyrtivöru­fram­leiðendur, bíla­fram­leiðendur og margt fleira. 

Vilja kannabisráð á Kristjánsborg

Bænda­samtökin hafa lagt til að danska þingið, Folketinget, skipi sérstakt kannabisráð til að skipuleggja fram­leiðslu og eftirlit. Þeir bændur sem fá leyfi til fram­leiðslunnar verði að uppfylla margs konar skilyrði, einsog í öllum greinum land­búnaðarins. Margir þingmenn hafa tekið vel í þessa hugmynd sem ennþá er á byrjunar­stigi.

Frjálsræðis­bandalagið,Liberal Alliance, sem á 13 fulltrúa á danska þinginu efnir í febrúar næst­komandi til ráðstefnu um ræktun kannabis í Danmörku. Þangað koma sérfræðingar frá mörgum löndum. Þessi ráðstefna var löngu ákveðin og stendur ekki í beinu sambandi við tilrauna­verkefni danskra heilbrigðis­yfirvalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár