Kristján Þór hringdi í Þor­stein Má: „Ég var bara að spyrja hvernig honum liði einfald­lega“

Kristján Þór Júl­í­us­son seg­ist hafa heyrt í nokkrum starfs­mönnum Samherja und­an­farna daga vegna umfjöll­unar um mútu­greiðslur í tengslum við Namib­íu­veiðar fyr­ir­tæk­is­ins.

Kristján Þór hringdi í Þor­stein Má: „Ég var bara að spyrja hvernig honum liði einfald­lega“
Kristján Þór og Þor­steinn Már Ráð­herr­ann og for­stjóri hafa talað saman í síma um málið.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, seg­ist hafa taugar til Samherja, en að fyr­ir­tækið þurfi að svara fyrir mútu­greiðslur til namibískra stjórn­mála­manna til að tryggja sér veiði­heim­ildir. Hann hefur haft sam­band við nokkra starfs­menn, meðal ann­ars Þorstein Má Bald­vins­son for­stjóra, að því fram kemur hjá RÚV.

„Ég hef ekki haft afskipti af þessu fyr­ir­tæki, rekstri eða öðru, frá því að ég hætti í stjórn fyrir tæpum tveimur ára­tugum, nítján árum,“ sagði hann. „En auð­vitað hefur maður taugar til fyr­ir­tæk­is­ins og starf­sem­innar fyrir norðan. Eðlilega, þetta er stór partur af  norð­lensku sam­fé­lagi.“

Kristján Þór er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja. Þegar Stundin hafði sam­band við Kristján Þór fyrir birt­ingu sagð­ist hann ekki hafa setið fund með mönn­unum. „Ég minn­ist þess ekki að Þor­steinn Már hafi kynnt mig fyrir umræddum mönnum,“ sagði hann. Í sam­tal­inu við RÚV seg­ist hann ekki hafa verið boð­aður til fund­ar­ins. „Þannig hitt­ist bara á í þessu til­felli að ég á per­sónu­legan fund með ein­stak­lingi sem ég hef þekkt í langan tíma um allt önnur mál að þá rekst ég á þessa ein­stak­linga.“

Í frétt RÚV seg­ist Kristján hafa heyrt í nokkrum starfs­mönnum Samherja und­an­farna daga. Meðal ann­ars Þor­steini Má. „Ég var bara að spyrja hvernig honum liði ein­fald­lega,“ sagði Kristján.

Aðspurður um hvað Þor­steinn Már hafi átt við þegar hann sagði namibísku þre­menn­ing­unum að Kristján Þór væri „sinn maður“ segir hann Þorstein þurfa að svara því sjálfur. „Ég hef hingað til bara litið á mig sem minn eigin og minnar fjöl­skyldu og er þekktur fyrir flest annað en að vera mjög und­an­láts­samur. Ég hef nú frekar orð á mér fyrir að vera frekar stífur í fram­göngu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár