Cell7 skaraði fram úr á Iceland Airwaves

Ragna Kjart­ans­dóttir hefur lagt mikla vinnu í rapp­verk­efnið sitt Cell7, en hún skil­aði sér í glæsi­legum tón­leikum sem skildu eftir sig mikil hug­hrif.

Cell7 skaraði fram úr á Iceland Airwaves
Best á Airwaves Að mati pistla­höf­undar bauð Ragna, eða Cell7, uppá bestu tón­leik­ana á Airwaves í ár. Mynd: Ian Young / Nounpusher

Airwaves-hátíðin í ár mark­aði ákveðin tíma­mót, því ráð­ist var í tals­verðan nið­ur­skurð á fjölda hljóm­sveita sem spil­uðu og staða sem spilað var á. Ekki liggja enn fyrir tölur úr miða­sölu og búast má við því að þær verði ekki aug­lýstar í bráð, en ljóst er að ekki seld­ust 9.000 miðar eins og fyrri ár, þegar hátíðin var sem sterk­ust.

Jákvæða hliðin á þess­ari þróun er sú að sjaldan mynd­uð­ust langar raðir. Á fyrri árum þurftu skipu­leggj­endur að stilla upp vin­sælum tón­leikum á sama tíma, þannig að þeir myndu tvístra gestum á tvo eða þrjá mis­mun­andi staði. Það virð­ist ekki hafa verið nauð­syn­legt í ár. Aðal­númer hátíð­ar­innar voru sýni­lega lát­laus­ari en fyrri ár, en engin ein sveit var til­kynnt sem „hea­d­line“ hljóm­sveit í ár. Eiginleg aðal­númer voru banda­ríski kán­trí­söngv­ar­inn Orville Peck, kanadíski indí­strák­ur­inn Mac DeMarco, list­ræna rokksveitin Mammút, gjörn­ing­ar­sveitin Hatari og popp­stór­sveitin Of Monsters and Men.

Nóg af áhugaverðum tónleikum

Úrval af tón­list­ar­stefnum var tak­mark­aðra en fyrri ár og var aðal­lega að finna popp­legar og meg­in­straums­legar sveitir frá Íslandi, Norð­ur­lönd­unum og Bret­landi. Að því sögðu var ekki skortur á áhuga­verðum tón­leikum til að kíkja á. Kælan Mikla sýndi til dæmis frá­bær til­þrif á opn­un­ar­tón­leikum hátíð­ar­innar, en sveitin fyllti Hafn­ar­húsið með drunga­legum og til­finn­inga­ríkum got­neskum synth-hljómum og takt­föstum bassa­dr­unum. Mammút spil­aði aðeins full­orð­ins­legri til­finn­inga­rús­sí­bana, en á þeim tón­leikum mynd­að­ist hvað lengsta röð hátíð­ar­innar þar sem hund­ruð gesta komust ekki inn í tæka tíð.

Grísalappalísa kvaddi hátíð­ina, og hugs­an­lega alla tón­list­ar­sen­una, með ærsla­fullum tón­leikum sínum þar sem þeir fóru í gegnum úrval af helstu slög­ur­unum af öllum þremur plötum sínum. Hatari flutti glæsi­lega tón­leika í Hafn­ar­hús­inu og end­ur­tók þá síðan aftur að mestu leyti á Gauknum; þeim fyrri fylgdi mikil sýn­ing með sam­ræmdum dans­at­riðum og myndefni sem varpað var á þrjá skjái. Þeir seinni voru mun sveitt­ari.

Aðrar sveitir sem vöktu mikla kátínu gagn­rýn­anda voru pönk­tón­leikar skosku sveit­ar­innar Shame, þar sem bassa­leik­ari hljóp fram og aftur á svið­inu út alla tón­leik­ana, fór í koll­hnísa og sleit ítrekað bassaól sína. aYia fluttu hlust­endur inn í draum­kennda raf­magn­aða hug­ar­heim sinn, JFDR tog­aði í hjarta­strengi allra og JóiPé og Króli komu ungum aðdá­endum sínum í gott stuð með gáska­fullum tón­leikum.

Erfiðisvinna sem hefur skilað sér

Í fyrra var eins og skipu­leggj­endur Airwaves hefðu ofur­trú á vin­sældum íslenska rapps­ins og var mikil áhersla lögð á þá senu, en sú áhersla var hvergi sjá­an­leg í ár. Meg­in­straums­sveitir eins og Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur voru enn til staðar en engar Reykja­vík­ur­dætur – eða atriði tengd þeim – spil­uðu á hátíð­inni. Aðeins örfáar öðru­vísi rappsveitir fengu aðgang í ár, þar á meðal Cell7, en föstu­dags­tón­leikar hennar voru ekk­ert hæpaðir eða sér­stak­lega aug­lýstir, en slógu algjör­lega í gegn.

Best á AirwavesAð mati pistla­höf­undar bauð ragna, eða Cell7, upp á bestu tón­leik­ana á Airwaves í ár.

Ragna Kjart­ans­dóttir er einn af braut­ryðj­endum rapp­sen­unnar á Íslandi, en hún var stofn­með­limur fyrstu alvöru rappsveit­ar­innar Subterra­nean á 10. ára­tugnum. Hún tók sér síðan langt leyfi en steig aftur inn í sviðs­ljósið árið 2013 sem Cell7 með plöt­una Cellf. Platan fór á móti meg­in­straumnum í rapp­senu Íslands þar sem hún fjall­aði ekki um vímu­efna­neyslu, efna­hyggju, stæla eða frægð.

Þess í stað var hún yfir­full af raun­veru­legum kvört­un­ar­efnum sem Ragna, sem bland­aður Íslend­ingur og ung móðir hefur upp­lifað í gegnum lífs­leið­ina. Og þessi erindi voru síðan umvafin kynn­gi­mögn­uðu flæði og töktum, og töff fram­komu. Á plöt­unni Is anybody listen­ing? sem kom út í ár var Ragna síðan óhrædd við að kafa dýpra í lífs­reynslu sína.

Ég hef lengi dáðst að Rögnu og því sem hún gerir úr fjarska, en lengi vel fannst mér eitt­hvað vanta. Augljóst er að hún hefur varið síð­ustu árum í að slípa tón­leika­fram­komu sína þar sem áhorf­endur voru algjör­lega hel­teknir á þessu kvöldi. Flæðið var til fyr­ir­myndar, hljóð­færa­leikur lif­andi og takt­fastur og flutn­ingur til þess fall­inn að fá alla til að dansa og skemmta sér. Næsta dag vorum við vin­irnir ennþá að tala um hversu marg­slungnir og áhuga­verðir og skemmti­legir tón­leik­arnir voru.

Það er aug­ljóst að Ragna á margar sögur að segja og að öll vinnan sem hún hefur lagt í tón­list­ina hefur marg­borgað sig. Nú má bara vona að hún haldi áfram að semja, spila og heilla aðdá­endur upp úr (dans)skónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár