Kaþólskt barnaníð og frönsk stéttaskipting

Fyrir Guðs náð fjallar um atburði sem hafa skekið kaþ­ólsku kirkj­una. Ásgeir H. Ing­ólfs­son sett­ist niður með François Ozon, einum þekktasta leik­stjóra Frakka, og Swann Arlaud, einum aðal­leik­ar­anna þriggja, stuttu eftir frum­sýn­ing­una og spurði þá út í mynd­ina og málið sem var kveikjan að henni.

Sameinaðir
Sam­ein­aðir Fórn­ar­lömb prests­ins berj­ast í sam­ein­ingu fyrir því að mál hans verði tekið fyrir.

Mis­notk­un­ar­hneyksli hefur skekið frönsku kirkj­una und­an­farin miss­eri. Nú í mars síð­ast­liðnum var Philippe Barbarin, erki­bisk­upinn í Lyon, fund­inn sekur um að hafa hylmt yfir með barn­a­níði í kaþ­ólsku kirkj­unni – en prest­ur­inn Bernard Preynat þvæld­ist lengi á milli sókna með hans vit­und og mis­not­aði þar ítrekað barn­unga pilta. Aðeins mán­uði áður en að dómur féll var hins vegar frum­sýnd mynd um atburð­ina á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín. Hún vann Silf­ur­björn­inn sem næst­besta myndin í aðal­keppn­inni og heitir Fyrir Guðs náð (Grâce à Dieu) og fjallar fyrst og fremst um fórn­ar­lömb prests­ins alræmda.

Ég sett­ist niður með François Ozon, einum þekktasta leik­stjóra Frakka, og Swann Arlaud, einum aðal­leik­ar­anna þriggja, stuttu eftir frum­sýn­ing­una og spurði þá út í mynd­ina og málið sem var kveikjan að henni. 

François Ozon hampar Silf­ur­birn­inum Fyrir Guðs náð hlaut Silf­ur­björn­inn sem næst­besta myndin á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár