Tvær íslenskar konur í haldi Ísraela

Björk Vil­helms­dóttir og Tinna Eyberg voru hand­teknar í morgun þegar þær aðstoð­uðu Palest­ínu­menn við ólífu­tínslu. Sveinn Rúnar Hauksson, eig­in­maður Bjarkar, segir aðal­á­hyggju­efnið vera að þeim verði hugs­an­lega vísað úr landi.

Tvær íslenskar konur í haldi Ísraela
Björk hand­tekin Björk Vil­helms­dóttir hefur að und­an­förnu dvalið í Palest­ínu og veitt vernd­andi við­veru til hjálpar Palest­ínu­mönnum við dag­leg störf. Myndin hér að ofan er frá 17. októ­ber en þá rak ísra­elsk lög­regla Björk og aðra sjálf­boða­liða í burtu af akri palest­ínsks bónda. Mynd: Úr einkasafni

Tvær íslenskar konur, Björk Vil­helms­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, og Tinna Eyberg, voru í morgun hand­teknar af ísra­elskum yfir­völdum í þorp­inu Burin á Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu. Þær Björk og Tinna voru við ólífu­tínslu í þorp­inu á vegum Alþjóða frið­ar­starfs kvenna í Palest­ínu. Ásamt þeim voru tvær franskar konur, sem einnig voru á svæð­inu sem sjál­boða­liðar, hand­teknir.

Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og eign­maður Bjarkar, greindi frá þessu í morgun á Facebook. Þær Björk og Tinna voru hand­teknar á níunda tím­anum að íslenskum tíma og hringdi Björk sjálf í Svein Rúnar til að segja honum frá stöðu mála. „Ég hef ekki heyrt í henni aftur, ég hef líka ekki reynt því ég vildi ekki trufla. Hún hefur þurft að heyra í ýmsum líka ef tæki­færi hefur gef­ist, borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og kon­súl okkar Íslend­inga á svæð­inu,“ sagði Sveinn Rúnar í sam­tali við Stundina. Þess ber að geta að Björk svar­aði ekki þegar Stundin reyndi að hringja í hana í morgun.

Björk og Tinna hafa verið í Palest­ínu til að veita það sem kallað er vernd­andi við­veru, það er að vera til staðar og aðstoða íbúa Palest­ínu á þeim svæðum þar sem gera má ráð fyrir afskiptum ísra­el­skra yfir­valda eða ísra­el­skra land­töku­manna. Þær hafa aðstoðað við olífu­tínslu og á dög­unum urðu þær meðal ann­ars vitni að alvar­legu ofbeldi ísra­el­skra land­töku­manna á hendur Palest­ínu­mönnum, í nágrenni land­töku­byggð­ar­innar Yitzhar. Þar var bæði kveikt í olífutrjám svo yfir þús­und þeirra eyðilögð­ust í eld­inum og einnig var ráð­ist á fólk sem var við ólífu­tínslu.

„Þetta eru engir mömmu­strákar svo sem og við höfum lent í því að vera sett í nið­ur­lægj­andi aðstæður og setið undir hót­unum“

Sveinn Rúnar segir að það hafi kannski verið við­búið að eitt­hvað af þessu tagi myndi koma upp enda ísra­elsk yfir­völd, her­inn og landamæra­lög­reglan með mikla við­veru á svæð­inu og hafi áður haft afskipti af sjálf­boða­lið­unum og Palest­ínu­mönnum. „Í þessu til­viki er aðal­á­hyggju­efnið hvort að þær hafi aðeins verið teknar í hald eða hvort að þær hafi verið form­lega hand­teknar, sem gæti leitt til mála­til­bún­aðar og brott­vikn­ingar frá Ísrael. Það hefur ítrekað komið fyrir konur úr þessum hópi.“

Sveinn Rúnar segir að Björk hafi borið sig vel og hún hafi verið í á leið inn til Ariel, land­töku­borgar á her­tekna svæð­inu á Vest­ur­bakk­anum. „Þetta eru engir mömmu­strákar svo sem og við höfum lent í því að vera sett í nið­ur­lægj­andi aðstæður og setið undir hót­unum. Ég hef ekki svo miklar áhyggjur af því að hún verði beitt ofbeldi en mögu­lega mun hún sitja undir ein­hvers konar hót­unum. En hún er sterk og stendur undir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár