Sakar nemendur um ofbeldi og falskar ásakanir

Helga Dögg Sverr­is­dóttir, sem situr í vinnu­um­hverf­is­nefnd Kenn­ara­sam­bands­ins, heldur því fram að nem­endur ljúgi ofbeldi upp á kenn­ara án þess að geta lagt fram rann­sóknir eða gögn þar að lút­andi. Fram­kvæmda­stjóri UNICEF undr­ast skrifin og segir þau til þess fallin að auka van­trú á frá­sagnir barna af ofbeldi.

Sakar nemendur um ofbeldi og falskar ásakanir
Segir börn leggja fram falskar ásak­anir Helga Dögg Sverr­is­dóttir, grunn­skóla­kenn­ari og full­trúi í Vinnu­um­hverf­is­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands, hefur að und­an­förnu skrifað greinar þar sem hún heldur því fram að nem­endur skáldi upp ásak­anir um ofbeldi á hendur kenn­urum sínum og að beiti þá sjálfir ofbeldi. Fá ef nokkur gögn eru til­tæk sem styðja við þessar full­yrð­ingar og Helga Dögg sjálf neit­aði að tjá sig um málið við Stundina.

Fulltrúi grunn­skóla­kenn­ara í vinnu­um­hverf­is­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands, Helga Dögg Sverr­is­dóttir, hefur und­an­farnar vikur birt greinar á vefrit­inu Kjarn­anum þar sem hún full­yrðir að ofbeldi og hót­anir barna gagn­vart kenn­urum séu vanda­mál hér á landi og að nem­endur beiti upp­lognum ásök­unum í garð kenn­ara um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi með mark­vissum hætti til að ná sér niðri á þeim. Ekki er þó bent á rann­sóknir á stöðu mála hér á landi sem skjóta stoðum undir slíkar full­yrð­ingar. Fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi segir slíkar full­yrð­ingar, án þess að þær séu studdar gögnum, til þess fallnar að veikja stöðu barna sem verða fyrir ofbeldi. Formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands segir ekki hægt að alhæfa um mál af þessu tagi.

Glannalegar fullyrðingar rökstuddar með dæmum úr kvikmynd

Fyrsta grein Helgu Daggar, sem skrifar undir sem grunn­skóla­kenn­ari og sem full­trúi grunn­skóla­kenn­ara í vinnu­um­hverf­is­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands,  af þremur sem birst hafa á Kjarn­anum að und­an­förnu, birt­ist 22. maí síð­ast­lið­inn. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heimilisofbeldi

Segir heimilisofbeldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í myndbandinu: „Við erum bara að grínast“
FréttirHeimilisofbeldi

Segir heim­il­is­of­beldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í mynd­band­inu: „Við erum bara að grín­ast“

Myndband þar sem gróft heim­il­is­of­beldi er svið­sett og sprellað með að ofbeldið geti hjálpað konu að grenn­ast hefur verið fjar­lægt af Facebook. „Ég vann í lög­regl­unni í mörg ár. Ekki man ég eftir ein­hverju svona heim­il­is­of­beldi, þar sem and­lit­inu hennar er skellt í elda­vél­ina og svo gólfið,“ segir Jón Viðar Arn­þórs­son í sam­tali við Stundina. „Það er ekki verið að gera grín að heim­il­is­of­beldi.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár