Græni draumurinn: „Við höfum enga aðra valkosti“

Sam­fé­lags­sátt­máli Alexöndru Ocasio-Cortez um aðgerðir í lofts­lags­málum, að ráð­ist verði í aðgerðir gegn fátækt sam­hliða rót­tækum aðgerðum gegn loft­lags­breyt­ingum.

Græni draumurinn: „Við höfum enga aðra valkosti“
Vill aðgerðir gegn ham­fara­hlýnun og fátækt The New Green Deal er lang­sam­lega metn­að­ar­fyllsta til­laga sem Demókra­ta­flokk­ur­inn hefur lagt fram í lofts­lags­málum en í til­lög­unni fel­ast líka aðferðir gegn fátækt.

Ekkert laga­frum­varp á Banda­ríkja­þingi hefur fengið jafn mikla athygli síð­ustu mán­uði og þings­á­lykt­un­ar­til­laga Alex­andriu Ocasio-Cortez og Ed Markey, öld­unga­deild­ar­þing­manni frá Massachusetts um The Green New Deal. Álykt­unin kallar á umfangs­mikla ætlun í fjórtán liðum um rót­tækar aðgerðir í lofts­lags­málum, algert kolefn­is­hlut­leysi banda­rískrar orku­fram­leiðslu fyrir árið 2030 og efna­hags­lífs­ins alls árið 2050 sem yrði náð með risa­vax­inni fjár­fest­ingu í grænum innviðum og orku­spar­neytn­ari bygg­ingum.

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan kallar á að gerð verði raun­hæf áætlun um hvernig hægt sé að ná fram þeim grund­vall­ar­breyt­ingum á banda­ríska hag­kerf­inu sem eru nauð­syn­legar ef afstýra á því vist­kerf­is­hruni sem nýleg lofts­lags­skýrsla Sam­ein­uðu þjóð­anna kallar á.

Áætlun um að afstýra vistkerfishruni

The New Green Deal er lang­sam­lega metn­að­ar­fyllsta til­laga sem Demókra­ta­flokk­ur­inn hefur lagt fram í lofts­lags­málum. Aðgerðir Obama, sem sner­ust um að hrinda í fram­kvæmd svo­kall­aðri „Step It Up“ áætlun sem flokk­ur­inn lagði fram 2007, um að draga úr kolefn­islosum um 80% fyrir árið 2050, duga ekki til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár