Sálufélagar á netinu reyndust erlendir svikahrappar

Íslensk kona tap­aði 180 þús­und krónum í sam­skiptum við mann á Tinder sem sigldi undir fölsku flaggi. Annar svindl­ari vildi gift­ast henni áður en hann sagð­ist vera í vanda og þurfa fé. Lög­reglan á Íslandi hefur tak­mark­aða mögu­leika á að draga erlenda net­glæpa­menn til ábyrgðar nema um risaupp­hæðir sé að ræða.

Sálufélagar á netinu reyndust erlendir svikahrappar
Svindl­ar­inn Anthony Bayley Fjall­mynd­ar­legi lúx­us­bíla­mó­gúll­inn náði að plata 180 þús­und krónur út úr íslenskri konu.

Íslensk kona hefur tvisvar á und­an­förnum mán­uðum verið dregin inn í netsvindl þar sem mynd­ar­legir erlendir menn lýstu yfir ást sinni á henni og vildu heim­sækja hana. Í fyrra skiptið tap­aði hún 180 þús­und krónum, en í það síð­ara lét hún lög­reglu vita. Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður segir marga Íslend­inga hafa tapað millj­ónum á svip­uðu svindli og að erfitt sé að draga ger­end­urna til ábyrgðar.

Konan, sem kýs að koma ekki fram undir nafni af til­lits­semi við fjöl­skyldu sína, segir mik­il­vægt að fólk læri af reynslu hennar. „Ég er alveg viss um að það er fjöldi fólks að lenda í þessu af því að það er ekk­ert fjallað um þetta,“ segir hún. „Og ég sé fyrir mér fólkið úti í horni sem dauð­skamm­ast sín fyrir að hafa látið plata sig. Þeir þríf­ast í skjóli þagnar, þessir gaurar.“

Svindl af þessu tagi eru á ensku kölluð „romance scam“, þar sem glæpa­menn sigla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár