Vann launakröfu í héraðsdómi en er óviss um að fá borgað

Sara Qujakitsoq vann nýverið launamál í Héraðs­dómi Vestfjarða. Hún kom til Íslands frá Grænlandi árið 2017 og vann á gistiheimili um sumarið en fékk aðeins hluta launa sinna útborguð. Eigandi gisti­heim­il­isins mætti ekki fyrir dómi og hefur gefið út að hann ætli aldrei að borga henni.

Sara Qujakitsoq kom til landsins til að fjármagna nám í heima­landi sínu. Hún vann á Hnjót Guesthouse, gistiheimili á Vestfjörðum, frá 18. maí til 21. júlí árið 2017. Að eigin sögn vann hún þar frá morgni til nætur, en fékk aðeins 270.305 krónur útborgaðar fyrir það. Verkalýðs­félag Vestfirðinga tilkynnti mál hennar til lögreglu sem mögulegt mansal. Lögreglan mat það ekki sem svo, en verkalýðs­félagið hefur unnið í máli hennar síðan þá og uppskar sigur fyrir hennar hönd í héraðs­dómi. Eigandi gistiheimilisins hefur látið verkalýðs­félagið vita að hann hafi ekki litið á hana sem starfs­kraft og ætli því ekki að borga launa­kröfuna.

Mál Söru var rakið í Stundinni í október 2017, en þá hafði henni fyrir skömmu verið „bjargað“ úr því sem vinur hennar á Grænlandi taldi vera nauðungar­vist. Sara ólst upp á Qaanaaq á Norður-Grænlandi en flutti til Nuuk árið 2013 í leit að tækifærum. Þaðan heyrði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár