Að rita nafn sitt með blóði

28 ára gam­all Ástrali réðst á dög­unum inn í tvær moskur í Nýja-Sjálandi og skaut 50 manns til bana af póli­tískum ástæðum um leið og hann streymdi myndum af hörm­ung­unum á sam­fé­lags­miðlum. Maðurinn lítur sjálfur á sig sem hluta af vest­rænni hefð sem þurfi að verja með ofbeldi. Voða­verkum hans var fagnað víða um heim, meðal ann­ars í athuga­semda­kerfum íslenskra fjöl­miðla.

Að rita nafn sitt með blóði
Óþekktur nýnas­isti Fjöldamorð­ingjar hafa þann til­gang að dreifa ótta og vilja gjarnan öðl­ast heims­frægð. Mynd: Wikimedia Commons / Froofroo

Áður en hryðju­verka­mað­ur­inn lét til skara skríða hafði hann varið drjúgum tíma í að rita stefnu­skrá sína og koma henni á netið. Fjöldamorðin voru enda hugsuð til að vekja athygli á mál­staðnum og skrifa nafn ger­and­ans á spjöld sög­unnar. Fimm skot­vopn fund­ust í fórum hans en á hvert þeirra hafði hann málað nöfn og dag­setn­ingar sem veittu honum inn­blástur fyrir verkn­að­inn.

Þar á meðal voru nöfn ann­arra evr­ópskra hryðju­verka­manna sem hafa framið ódæði í nafni hug­mynda­fræði nýnas­ista eða þeirra sem fyr­ir­líta svo­kall­aða útlend­inga og berj­ast gegn fjöl­menn­ingu. Í stefnu­skránni kemur skýrt fram að höf­und­ur­inn var inn­blás­inn af verkum norsks kollega síns, Anders Behring Breivik, og seg­ist hafa átt ein­hver tak­mörkuð sam­skipti við hann í gegnum tíð­ina. Þær full­yrð­ingar er auð­vitað ómögu­legt að stað­festa á þessu stigi máls­ins en stefnu­skrár og yfir­lýs­ingar þeirra tveggja eru að mörgu leyti svip­aðar.

Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, hefur beðið fjöl­miðla um að birta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár