Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg

Íbúum á Granda­vegi 47 barst nýlega orðsending frá sóttvarnar­lækni og Heilbrigðis­eftirliti Reykja­víkur þess efnis að mikið magn hermanna­veikis­bakteríunnar hefði fundist í einni íbúð blokkarinnar. Dóttir níræðrar konu í blokkinni hefur verulegar áhyggjur af móður sinni en hermanna­veiki er bráð­drepandi fyrir fólk sem er veikt fyrir.

Í síðustu viku sendu sóttvarna­læknir og Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur íbúum í fjölbýlis­húsi eldri borgara á Granda­vegi 47 orðsendingu þar sem íbúarnir voru varaðir við því að töluvert magn af umhverfis­bakteríunni Legionella hefði fundist í vatnssýni sem Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur tók úr sturtu­haus í einni af íbúðum hússins. Umrædd baktería er þekkt undir heitinu hermanna­veiki og getur verið bráð­drepandi, sérstak­lega fyrir þá sem eru veikir fyrir eða komnir á háan aldur. Sólveig Bjarna­dóttir, dóttir níræðrar konu sem býr á Granda­vegi 47, furðar sig á orðsendingunni sem hafi skilið eftir sig mun fleiri spurningar en svör á meðal íbúa. Árný Sigurðar­dóttir, framkvæmda­stjóri hjá Heilbrigðis­eftirliti Reykja­víkur, segir ekkert athuga­vert við vinnu­brögðin.

Kanna útbreiðslu bakteríunnar

„Sóttvarna­læknir vill vekja athygli á að nýlega greindist töluvert magn af umhverfis­bakteríunni Legionella í vatnssýni sem Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur tók úr sturtu­haus í einni af íbúðum í Granda­vegi 47. Þessi baktería er stundum kölluð hermanna­veikis­baktería eftir að hafa valdið hópsýkingu meðal hermanna á ráðstefnu í Banda­ríkjunum 1976,“ segir meðal annars í  orðsendingu sóttvarna­læknis og heilbrigðis­eftirlitsins sem er dagsett þann 28. febrúar síðastliðinn og var sett í alla póstkassa hússins og hengd upp á veggi þess.

Orð­send­inginHér gefur að líta orð­send­ingu þá sem sótt­varn­ar­læknir og heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur sendi íbúum Granda­vegi 47 í síð­ustu viku.

Þá kemur fram að full­frískir einstaklingar geti fengið bakteríuna í öndunarveg án þess að veikjast en aðra sögu megi segja um þá sem eru veikir fyrir. „Alvarleg veikindi, lungna­bólga, verða einna helst hjá einstaklingum með undir­liggjandi áhættu­þætti en þeir eru helstir hár aldur, reykingar, lang­vinnir lungna­sjúkdómar, ónæmis­skerðing, áfengis­sýki og nýrna­bilun.“ Íbúum er jafnframt greint frá því að Legionella sé baktería sem lifi í vatni og algeng um allan heim. „Hún þolir hitastig frá 0–63°C en lifir best í 30–40°C,“ segir í tilkynningunni, en þar eru íbúar meðal annars hvattir til þess að láta vatnið í sturtum sínum renna af fullum krafti í 2–3 mínútur áður en þeir fari í sturtu, til þess að koma í veg fyrir mögulegt smit.

„Til að gæta fyllsta öryggis þar til niður­stöður frekari rannsókna liggja fyrir er íbúum ráðlagt að skrúfa frá vatninu í sturtunni af fullum krafti og láta renna í 2–3 mínútur áður en þeir fara undir sturtuna. Ef bakterían er til staðar minnkar rennslið magn hennar í vatns­pípum og sturtu­hausum og dregur þar með úr líkum á að smit eigi sér stað. Þetta á sérstak­lega við ef sturtan er sjaldan notuð,“ segir jafnframt í tilkynningunni, en þar eru þessar leið­beiningar sagðar eiga við á meðan verið sé að kanna mögulega útbreiðslu „bakteríunnar í pípunum og hvað er helst til ráða til að losna við hana úr vatns­pípunum“.

Furðar sig á vinnubrögðunum

„Ég er alveg gapandi yfir þessu vegna þess að þetta er alveg hræðilegur sjúkdómur,“ segir Sólveig, sem gagnrýnir meðal annars að í orðsendingunni komi ekkert fram um það hvenær búið verði að kanna mögulega útbreiðslu. „Það er engin nánari skýring, sem mér finnst fyrir neðan allar hellur, ekkert símanúmer og enginn tölvu­póstur.“ Þá tekur hún fram að móðir hennar sé mjög óörugg vegna þessa en Sólveig, sem er búsett erlendis og á leiðinni aftur út í bráð, hefur sjálf áhyggjur af því að skilja aldraða móður sína eftir í þessari aðstöðu. „Svo er þeim bara sagt að láta vatnið renna og ekkert meira en það. Er þetta bara eitthvað sem er almennt gert?“ spyr Sólveig sem furðar sig á vinnu­brögðunum. 

Árný Sigurðar­dóttir, framkvæmda­stjóri hjá Heilbrigðis­eftirliti Reykja­víkur, segir að þeim finnist miður ef íbúar upplifi það þannig að þeir séu illa upplýstir. Hins vegar komi skýrt fram í orðsendingunni hvaða embætti komi að málinu og hvert eigi að leita. Þá séu símanúmer til dæmis aðgengileg á ja.is og víðar ef þörf sé á því. „Heilbrigðis­eftirlitið var kallað til af sóttvarna­lækni varðandi sýnatöku­hlutann og til samráðs sem og að kort­leggja útbreiðslu,“ segir Árný í skriflegu svari við spurningum Stundarinnar, en hún segir eftir­litið ekki geta svarað fyrir þann hluta sem snýr að sótt­vörnum, eða mögulega hættu fyrir íbúana, og vísar á lækna og heilsu­gæslu líkt og gert er í orðsendingunni.

Árný segir jafnframt að verið sé að skoða lagna­kerfi hússins í samráði við húsvörð og hvar mögulega þurfi að grípa til aðgerða af hálfu húseigenda. Þá sé heilbrigðis­eftirlitið í þéttu samstarfi við sóttvarna­lækni varðandi málið. „Það er svo sóttvarna­læknis og heilbrigðis­eftirlitsins að meta hvort einhverra frekari viðvarana sé þörf eða upplýsinga til íbúa en þegar hafa komið fram, og eins ef nýjar upplýsingar koma fram,“ segir Árný sem tekur fram að íbúar skuli áfram fylgja þeim leið­beiningum sem fram komi í orðsendingunni.

Ekki náðist í sóttvarna­lækni við vinnslu þessarar fréttar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár