Álverið í Straums­vík Íslenska ríkið þurfti að gefa eftir meinta skatta­skuld rekstr­ar­fé­lags álvers­ins í Straums­vík á níunda ára­tugnum. Mynd: Pressphotos

Þegar stórfyrirtæki draga ríki fyrir dóm

Gerð­ar­mál­sóknir einka­að­ila valda ríkjum ekki aðeins fjár­hagstjóni heldur hafa kæl­ing­ar­á­hrif þegar kemur að stefnu­mótun og reglu­setn­ingu á sviði umhverfis-, lýð­heilsu- og vel­ferð­ar­mála. Alþingi hefur beint því til stjórn­valda að fjár­festa­vernd­ar­sátt­málum verði fjölgað en nær engin lýð­ræð­is­leg umræða hefur farið fram um hætt­urnar sem þessu fylgja, stöðu Íslands í heimi þar sem ríkir stöðug tog­streita milli lýð­ræðis og sér­hags­muna.

Öll ríki Evr­ópu­sam­bands­ins hafa skuld­bundið sig til að segja upp tví­hliða fjár­festa­vernd­ar­samn­ingnum sín á milli fyrir 6. des­em­ber á þessu ári. Ástæðan er dómur sem Evr­ópu­dóm­stóll­inn kvað upp í fyrra um að ákvæði þjóð­rétt­ar­samn­inga sem gera fjár­festum frá aðild­ar­ríkjum kleift að höfða gerð­ar­mál gegn öðrum aðild­ar­ríkjum séu ósam­rým­an­leg ESB-rétti. 

Und­an­farna ára­tugi hefur færst í vöxt að einka­að­ilar höfði mál gegn ríkjum fyrir alþjóð­legum gerð­ar­dómum. The Guardian fjall­aði ítar­lega um þró­un­ina árið 2015 og benti á að mörg mál­anna lúti að ákvörð­unum sem lýð­ræð­is­lega kjörnar rík­is­stjórnir hafa tekið í þágu umhverf­is­verndar, vel­ferðar- eða lýð­heilsu­sjón­ar­miða en erlendir fjár­festar telja að raski hags­munum sínum eða eigna­rétt­indum.

Mál­sókn­irnar hafa valdið ríkjum gríð­ar­legu fjár­tjóni, ekki aðeins vegna bóta­skyld­unnar þegar mál tap­ast heldur einnig vegna máls­kostn­aðar og greiðslna sem inntar eru af hendi þegar málum lýkur með sátt. Þá hafa gerð­ar­mál­sóknir og hót­anir um þær kæl­ing­ar­á­hrif þegar kemur að stefnu­mótun, reglu­setn­ingu og laga­fram­kvæmd; hættan á því að fjár­festar fari í hart og dragi ríki fyrir gerð­ar­dóm fælir stjórn­völd frá því að beita þeim tækjum sem þau hafa til að standa vörð um almanna­hags­muni. Þetta á við um þróuð ríki jafnt sem van­þróuð.

Nýleg ákvörðun ESB-ríkj­anna er ein af mörgum birt­ing­ar­myndum þeirrar óvissu sem nú ríkir um fram­tíð alþjóð­legrar fjár­festa­verndar. Hávær umræða hefur farið fram úti í heimi um þær lýð­ræð­is­legu áskor­anir sem fjár­festa­vernd og gerð­ar­mál­sóknir fela í sér og mörg ríki kosið að segja upp fjár­festa­vernd­ar­samn­ingum. 

Þessi umræða hefur aðeins að tak­mörk­uðu leyti skilað sér til Íslands og fræði­leg grein­ing á stöðu lands­ins í þessu sam­hengi er af skornum skammti. Þetta er sér­kenni­legt í ljósi þess að Ísland er lítið og við­kvæmt hag­kerfi þar sem reglu­lega gjósa upp harðar póli­tískar deilur um fjár­fest­ing­ar­á­form og auð­linda­nýt­ingu erlendra fyr­ir­tækja. 

Gerðardómsákvæði geta orðið smáríkjum skeinuhætt

Ágústa Lyons Flosa­dóttir varði nýlega meist­ara­rit­gerð í lög­fræði um alþjóð­lega fjár­festa­vernd og gerð­ar­mál­sóknir fjár­festa gegn þjóð­ríkjum. Hún segir mik­il­vægt að Ísland drag­ist ekki aftur úr þeirri alþjóð­legri þróun sem nú er hafin og miðar að því að koma betra jafn­vægi á fjár­festa­vernd­ar­kerfið. 

Ágústa Lyons Flosa­dóttirlög­fræð­ingur.

Í rit­gerð sinni beinir Ágústa sér­stak­lega sjónum að stöðu Íslands og bendir á að gerð­ar­dómar sem skera úr ágrein­ingi vegna fjár­fest­ing­ar­verk­efna hafi hneigst til að taka sér víð­tæka lög­sögu á kostnað lands­dóm­stóla. Mörg dæmi séu um að þetta hafi bitnað harka­lega á smá­ríkjum. 

Máls­höfðun einka­að­ila gegn ríkjum er í raun tvenns konar und­an­tekn­ing frá meg­in­reglum þjóða­réttar, ann­ars vegar frá því að almennt eru einka­að­ilar ekki aðild­ar­hæfir að þjóða­rétti og hins vegar að venju­lega er litið svo á að full­veldi ríkja leiði af sér að ekki sé hægt að stefna þeim fyrir rétt utan eigin dóm­stóla án sam­þykkis þeirra sjálfra.

Gerð­ar­málin grund­vall­ast á sér­stökum heim­ildum sem ríki veita fjár­fest­ingar- eða fram­kvæmd­ar­að­ilum til að leggja mögu­legan ágrein­ing í gerð á alþjóð­legum vett­vangi. Slíkar heim­ildir eru ýmist bundnar í lög, veittar með tví­hliða eða fjöl­þjóð­legum sátt­málum, svo sem frí­versl­un­ar­samn­ingum, eða með samn­ingum við ein­stök fyr­ir­tæki. Á Íslandi hafa til að mynda slík gerð­ar­dóms­á­kvæði lengi tíðkast í stór­iðju­samn­ingum við erlenda fjár­festa.

Markaður með gerðardómskröfur

Meiri­hluti ríkja heims hefur þurft að verj­ast gerð­ar­mál­sóknum á grund­velli fjár­festa­vernd­ar­samn­inga. Samkvæmt World Invest­ment Report 2018 voru alls 855 opin­ber­lega þekkt gerð­ar­mál höfðuð gegn ríkjum á tíma­bil­inu 1987 til 2017 en fjöldi slíkra mála var mestur árin 2015 og 2016.  

Gríð­ar­legar fjár­hæðir og stór­kost­legir hags­munir eru í húfi. Ætti því engan að undra að sprottið hafi upp mark­aður með dóm­kröf­urnar þar sem fjár­festar fjár­magna mála­rekstur einka­fyr­ir­tækja á hendur ríkjum gegn því að öðl­ast hlut­deild í vænt­an­legum fébótum. 

Dæmi um þetta er mál sem breska fyr­ir­tækið Rurelec höfð­aði gegn Bólivíu árið 2010 eftir að stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins, í 50 pró­senta óbeinni eigu Rurelec, var þjóð­nýtt. Rurelec not­aði kröfu sína gegn rík­inu sem veð fyrir 15 milljón doll­ara láni frá fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Burford Capital. Báðir aðilar græddu umtals­vert á mála­rekstr­inum gegn Bólivíu, einu fátæk­asta ríki Suður-Ameríku, sem féllst að lokum á að reiða fram 31 millj­ónar doll­ara sátta­greiðslu til Rurelec. 

Annað dæmi um gerð­ar­mál sem er fjár­magnað af þriðja aðila er mál sem breska olíu­fé­lagið Rockhopper rekur nú gegn Ítalíu eftir að þar­lend stjórn­völd synj­uðu fyr­ir­tæk­inu um nýtt leyfi til olíu­vinnslu við strendur Abruzzo-hér­aðs­ins. Málið er ekki síst eft­ir­tekt­ar­vert í ljósi þess að það var höfðað á grund­velli ECT-orku­samn­ings­ins eftir að Ítalía hafði sagt upp samn­ingnum og upp­sögnin tekið gildi. „Rockhopper telur enn sterkar líkur á því að hægt verði að sækja mjög háar skaða­bætur á grund­velli hagn­að­ar­missis vegna brots Ítalíu á orku­samn­ingnum,“ segir í til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér nú í febr­úar.

Engin lýðræðisleg umræða um hætturnar

Í dag eru tví­hliða fjár­fest­inga­sátt­málar í gildi milli Íslands og níu ann­arra ríkja og eru sátt­málar við fleiri ríki í und­ir­bún­ings­ferli. Þá hafa sumir þeirra frí­versl­un­ar­samn­inga sem Ísland er aðili að í gegnum EFTA að geyma ákvæði um fjár­festa­vernd og lausn deilu­mála fyrir gerð­ar­dómi. Ísland full­gilti ECT-orku­samn­ing­inn árið 2015 en þar er að finna ströng og gam­al­dags ákvæði um fjár­festa­vernd sem hafa sætt harðri gagn­rýni. Loks er Ísland aðili að ICSID-samn­ingnum, líkt og flest ríki heims, og New York-sátt­mál­anum um við­ur­kenn­ingu og fulln­ustu erlendra gerð­ar­dóms­úr­skurða. 

Með aðild að ICSID-sátt­mál­anum hefur Ísland skuld­bundið sig til að við­ur­kenna gerð­ar­dóma kveðna upp á grund­velli sátt­mál­ans og full­nægja dómum með aðför sem þeir væru fulln­að­ar­dómar lands­dóm­stóls. Ísland er hins vegar ekki aðili að sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna um gagn­sæi í gerð­ar­málum fjár­festa gegn ríkjum sem gekk í gildi árið 2017.

Stefnt að auk­inni fjár­festa­verndAlþingi sam­þykkti þings­á­lyktun árið 2011 um að fjár­festa­vernd­ar­samn­ingum Íslands við önnur ríki yrði fjölgað. 

Aug­ljósir kostir fylgja alþjóð­legum gerð­ar­sátt­málum fyrir íslensk fyr­ir­tæki og fjár­festa sem standa í fjár­fest­ing­ar­verk­efnum erlendis. Að sama skapi hafa margir bundið vonir við að slíkir sátt­málar geri Ísland að væn­legri kosti fyrir erlenda fjár­festa og geti þannig stuðlað að auknum fjár­fest­ingum á Íslandi. Hvort tveggja var á meðal helstu rök­semd­anna árið 2010 þegar Alþingi sam­þykkti þings­á­lyktun um að tví­hliða fjár­festa­vernd­ar­sátt­málum Íslands yrði fjölgað. 

„Mik­il­vægt er að stjórn­völd sæki fram og end­ur­veki traust á Íslandi erlendis, slíkt ger­ist ekki af sjálfu sér, stjórn­völd verða að grípa til aðgerða sem sýna að alvara fylgi máli þegar talað er um að efla erlenda fjár­fest­ingu hér­lendis,“ segir meðal ann­ars í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar sem þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu fram. Samtök atvinnu­lífs­ins tóku undir þessi sjón­ar­mið í umsögn sinni. Slíkt hið sama gerðu Seðla­bank­inn, iðn­að­ar­ráðu­neytið og utan­rík­is­ráðu­neytið. 

Alþingi sam­þykkti til­lög­una mót­at­kvæða­laust (aðeins tveir þing­menn tóku til máls) án þess þó að nein umræða færi fram um þær hættur sem fylgt geta skuld­bind­ingum um fjár­festa­vernd. Í þings­á­lykt­un­inni var full­yrt að gerð fjár­festa­vernd­ar­samn­inga stuðl­aði að auk­inni milli­ríkja­verslun. Fræði­menn greinir hins vegar á um hvort merkj­an­legt orsaka­sam­band sé milli samn­ings­gerðar um fjár­festa­vernd og auk­innar erlendrar fjár­fest­ingar. 

Kostnaður gæti hlaupið á tugum milljarða

Íslandi hefur aðeins einu sinni verið stefnt fyrir alþjóð­legan gerð­ar­dóm. Þetta gerð­ist árið 1983 eftir að fram komu upp­lýs­ingar sem bentu til þess að ÍSAL, dótt­ur­fé­lag hins sviss­neska Alusu­isse sem rak álverið í Straums­vík, hefði notað milli­verð­lagn­ingu aðfanga til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi. Stjórn­völd brugð­ust við með því að end­ur­á­kvarða gjöld á félagið fjögur ár aftur í tím­ann. Eftir að Alusu­isse höfð­aði mál gegn Íslandi fyrir gerð­ar­dómi féllst íslenska ríkið á að gefa eftir um fjórar millj­ónir banda­ríkja­dala af skatt­skuld fyr­ir­tæk­is­ins. 

Ef mál sem vörð­uðu missi hagn­aðar af olíu­vinnslu, sæstrengjum, norð­ur­slóða­sigl­inga­höfnum eða öðrum stór­verk­efnum hér á landi færu fyrir gerð­ar­dóm gæti orðið um gríð­ar­legar fjár­hæðir að tefla. Fjölmörg dæmi eru um að fjár­fest­inga­gerð­ar­dómar hafi gert ríkjum að greiða tugi eða hund­ruð millj­óna banda­ríkja­dala. Í þessu sam­hengi verður einnig að hafa í huga að for­dæmi eru fyrir því að eignir ríkja og jafn­vel gjald­eyr­is­sjóða þeirra séu kyrr­settar til að fram­fylgja nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms. Þetta hlýtur að hringja var­úð­ar­bjöllum fyrir land eins og Ísland sem er háð inn­flutn­ingi á nauð­synja­vörum.  

Erlendir landeigendur gætu notið sterkari réttarverndar

Huang NuboAthygli vakti þegar kín­verski fjár­festir­inn vildi kaupa Gríms­staði á Fjöllum en ekk­ert varð af því. Ísland hefur samið um gagn­kvæma fjár­festa­vernd við Kína.

Á síð­ustu miss­erum hafa erlendir auð­menn sýnt íslenskum jörðum tals­verðan áhuga. Skömmu eftir hrun sótt­ist Kín­verj­inn Huang Nubo eftir kaupum á Gríms­stöðum á Fjöllum til að byggja upp ferða­þjón­ustu en mætti and­stöðu þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Ögmundar Jón­as­sonar. Árið 2017 var svo greint frá áhuga kín­verskra fjár­festa á 1200 hekt­ara jörð í Bisk­ups­tungum, rétt við Geys­is­svæðið í Haukadal.

Nú síð­ast hafa Stundin og fleiri fjöl­miðlar fjallað ítar­lega um jarða­kaup James Ratcliffe, rík­asta manns Bret­lands og eig­anda efna­fram­leiðsluris­ans Ineos, á tugum jarða á Norð­aust­ur­landi. Nokkrir af lyk­il­starfs­mönnum fyr­ir­tækis hans hafa komið að jarða­kaup­unum á Íslandi, meðal ann­ars sem stjórn­ar­menn í félög­unum sem hafa eign­ast jarð­irnar. 

Í ljósi þeirra skuld­bind­inga sem Ísland hefur und­ir­geng­ist um gagn­kvæma fjár­festa­vernd og rétt fyr­ir­tækja til að leggja ágrein­ing í gerð á alþjóð­legum vett­vangi má ætla að erlendir eig­endur íslenskra jarða geti í vissum til­vikum haft sterk­ari rétt­ar­stöðu gagn­vart skipu­lags­yf­ir­völdum og öðrum stjórn­völdum heldur en íslenskir land­eig­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár