Framboð á fasteignum eykst verulega

24 þús­und fast­eignir voru aug­lýstar til sölu í fyrra, nær 50% fleiri en árið á undan. Með­al­sölu­tími þeirra helst óbreyttur.

Framboð á fasteignum eykst verulega

24 þús­und fast­eignir voru aug­lýstar til sölu á öllu land­inu árið 2018. Þetta er 47% aukn­ing frá árinu á undan, en þá voru rúm­lega 16 þús­und fast­eignir aug­lýstar. Ljóst er því að fram­boð fast­eigna jókst veru­lega á sama tíma og sölu­tími hélst nokkurn veg­inn óbreyttur.

Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. Sölutími íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu breytt­ist lítið frá fyrra ári, en utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur hann styst, bæði hvað varðar sér­býli og fjöl­býli. Í fyrra var tím­inn sem tók að selja íbúð í fjöl­býli utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um 100 dagar, miðað við 270 árið 2015.

Þá segir í skýrsl­unni að leigu­verð hafi hækkað meira en íbúða­verð und­an­farið sam­kvæmt þing­lýstum samn­ingum. Leigu­verð hækk­aði um 8,2% á milli ára en sölu­verð um 6,2% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Laun hækk­uðu á sama tíma um 6,5% að með­al­tali. Loks segir að 7000 íbúðir séu í bygg­ingu þessa dag­ana, þar af 5000 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár