Shooters var til skoðunar árið 2015 vegna vændisstarfsemi og innsiglaður um helgina

Lög­reglan gefur að sinni ekki frek­ari upp­lýs­ingar um hús­leitir sem fram fóru um helg­ina og rann­sókn í tengslum við þær. Skemmti­stað­ur­inn Shooters hefur verið inn­sigl­aður.

Shooters var til skoðunar árið 2015 vegna vændisstarfsemi og innsiglaður um helgina
Inn­sigl­uðu Shooters Skemmti­stað­ur­inn Shooters var inn­sigl­aður í aðgerðum lög­reglu um liðna helgi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gefur engar upp­lýs­ingar um gang mála við rann­sókn í tengslum við hús­leitir á átta stöðum aðfar­arnótt laug­ar­dags­ins síð­asta. Meðal ann­ars var gerð hús­leit á skemmti­stað í mið­borg­inni, en Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að um væri að ræða skemmti­stað­inn Shooters í Aust­ur­stræti, sem hefði verið inn­sigl­aður. Rann­sóknin snýr að umfangs­mik­illi brota­starf­semi að því er fram kom í til­kynn­ingu frá lög­reglu og er hún meðal ann­ars unnin í sam­vinnu við skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins snýr málið meðal ann­ars að skatta­laga­brotum, ætl­uðu man­sali og milli­göngu um vændi. Stundin greindi frá því árið 2015 að Shooters væri til rann­sóknar vegna gruns um vænd­is­starf­semi. 

Í hús­leit­unum var lagt hald á gögn, búnað og fjár­muni og höfð afskipti af 26 manns. Tíu þeirra voru færðir til yfir­heyrslu á lög­reglu­stöð en sleppt að yfir­heyrslum loknum. Karl Steinar Valsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá mið­lægri rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir í sam­tali við Stundina að lög­reglan sjái sér ekki fært að veita frek­ari upp­lýs­ingar að sinni heldur en þær sem fram komu í til­kynn­ingu um helg­ina, vegna rann­sókn­ar­hags­muna. „Það verður þannig í ein­hverja daga. Við erum bara að ná utan um ákveðna hluti. Ég er að von­ast til að við getum greint frá fleiru undir lok vik­unnar.“

Herraklúbbur rannsakaður vegna gruns um vændisstarfsemi

Karl Steinar vildi ekki stað­festa að um skemmti­stað­inn Shooters væri að ræða og ekki heldur hvers kyns brota­starf­semi væri til rann­sóknar. Hins vegar hefur Shooters æði oft verið umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla á umliðnum árum vegna vafa­samrar starf­semi. Þannig greindi Stundin frá því árið 2015 að skemmti­stað­ur­inn væri til rann­sóknar lög­reglu vegna gruns um milli­göngu með vændi.

Shooters Coyote Club gefur sig út fyrir að vera herra­klúbbur eða gentlemen's club upp á ensku. Í lýs­ingu á heima­síðu stað­ar­ins segir að hann bjóði upp á hið besta sem finna megi í Reykja­vík þegar kemur að full­orð­ins­skemmtun, „Adult Enterta­in­ment“ en það orða­lag er almennt notað um kyn­lífs­iðnað af ýmsu tagi. Tiltekið er að á starfs­menn stað­ar­ins séu hinir fal­leg­ustu og að þar starfi æsandi dans­arar, auk þess sem stað­ur­inn bjóði upp á einaka­her­bergi.

„Ég er að von­ast til að við getum
greint frá fleiru undir lok vik­unnar“

Af myndum á heima­síðu stað­ar­ins að dæma eru dans­arar þar létt­klæddir. Samkvæmt lögum um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald er hvorki heim­ilt að bjóða upp á nekt­ar­sýn­ingar né með öðrum hætti að gera út á nekt starfs­manna eða ann­arra sem á skemmti­stöðum eru.

Starfs­konur ShootersKonurnar voru sóttar rétt fyrir klukkan níu á fimmtu­dags­kvöldi líkt og nágrannar höfðu sagt blaða­manni. För þeirra var heitið í miðbæ Reykja­víkur.

Í fréttum Stund­ar­innar árið 2015 var því lýst hvernig fáklæddar konur gengu um stað­inn þegar blaða­maður heim­sótti hann. Þá var rætt við heim­ild­ar­mann sem lýsti því að stund­aður væri nekt­ar­dans á efri hæð stað­ar­ins og borgað væri fyrir slíkan dans með rán­dýrum drykkjum. Þá var því lýst hvernig erlendar konur sem störf­uðu á staðnum voru sóttar í hús í Teigunum á kvöldin og þær keyrðar þangað aftur á nótt­inni, fáklæddar að sögn nágranna.

Vafasamur ferill

Sé leitað á vefnum eftir skemmti­staðnum Shooters koma upp fjöld­inn allar af nið­ur­stöðum en nokkrar vekja meiri athygli en aðrar. Meðal ann­ars er stað­ur­inn nefndur á síð­unni brot­hel-in.com, síðu sem gefur sig út fyrir að halda skrá yfir vænd­is­hús og kyn­lífs­klúbba um heim allan. Þá greindi DV frá því í árs­byrjun 2016 að lög­blindur Banda­ríkja­maður hefði kært eig­endur Shooters fyrir að hafa gjald­fært tæpar þrjár millj­ónir út af kredit­kortum hans þegar hann var að skemmta sér á staðnum sum­arið 2015. Stærsta færslan hljóð­aði upp á 980 þús­und krónur.

Næst ekki í eigendur og rekstraraðila

Rekstr­ar­fé­lag Shooters er félagið Kfk ehf. sem einnig er sagt, í árs­reikn­ingi fyrir árið 2017, reka annað sem teng­ist slíkr starf­semi „ásamt því að koma lista­mönnum á fram­færi“. Rekstar­tekjur árs­ins 2017 námu sam­kvæmt árs­reikn­ingi rúmum 345 millj­ónum króna og var hagn­aður fyrir skatta tæpar tvær millj­ónir króna. Hagnaður árs­ins var hins vegar nokkru minni en svo, þar sem félagið mátti greiða 600 þús­und krónur í fjár­sektir, en ekki kemur fram hverju þær sektir sættu. Það er þó ekki í fyrsta skipti sem félagið þarf að greiða fjár­sektir því árið áður, 2016, námu fjár­sektir á félagið krónum 250 þús­und. Eignir félasins námu tæpum 42 millj­ónum króna, að lang­mestu leyti fólgnar í skamm­tíma­kröfum sem námu um 33,5 millj­ónum króna. Handbært fé nam rúmum 7 millj­ónum króna.

Eini eig­andi Kfk ehf. og þar með Shooters, sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá, er Þórdís Elva Guð­munds­dóttir. Stundin náði ekki sam­bandi við hana við vinnslu frétt­ar­innar. Stundin gerði þá einnig til­raun til að ná sam­bandi við Kristján Georg Jósteins­son, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri stað­ar­ins, en síma­númer sem reynt var að hafa sam­band við hann í gegnum reynd­ist lokað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár