Stingur upp á hryðjuverkalögum til að verjast náttúruverndarsinnum

Í skýrslu frá Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands er því velt upp hvort Íslend­ingar ættu að setja hryðju­verka­lög vegna hætt­unnar á hryðju­verkum umhverf­is­vernd­ar­sinna.

Stingur upp á hryðjuverkalögum til að verjast náttúruverndarsinnum

Íslandi stafar lík­lega ógn af sam­tökum sem fremja hryðju­verk í nafni nátt­úru­verndar. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um þjóð­hags­leg áhrif hval­veiða sem unnin var fyrir atvinnu­vega­ráðu­neytið.

Aðal­höf­undur skýrsl­unnar er Oddgeir Á. Ottesen, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi þing­fram­bjóð­andi og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir Suð­ur­kjör­dæmi. 

Skýrslu­höf­undur segir hryðju­verkaógn­ina ekki vera „af þeirri stærð­argráðu að Íslend­ingar eigi að hætta að veiða hvali“. Þá verði að huga að því að fleiri kröfur geti komið frá hryðju­verka­mönn­unum ef þeim finn­ist þeir hafa náð árangri.

„Benda má á að mörg lönd í heim­inum hafa sett sér­stök lög til að vinna gegn upp­gangi hryðju­verka­sam­taka. Ef til vill er til­efni til slíkrar laga­setn­ingar á Íslandi,“ segir í skýrsl­unni. 

Bent er á að sam­tökin Sea Shepherd hafa látið til sín taka víða um heim allt frá 1977 og núver­andi leið­togi sam­tak­anna, Paul Watson, er eft­ir­lýstur af Alþjóða­lög­regl­unni fyrir inn­brot, eigna­spjöll, ofbeldi og fleira. 

Eins og frægt er sökktu félagar í sam­tök­unum Sea Shepherd tveimur bátum Hvals hf. í Reykja­vík­ur­höfn árið 1986 í mót­mæla­skyni gegn hval­veiðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár