Donald Trump Múrinn þyrfti að vera um tólf metra hár og ná minnst tveggja metra dýpt til að bera til­ætl­aðan árangur. Það þýðir að í heild­ina þyrfti um fimmtán milljón rúmmetra af steypu í slíkt stór­virki, sem myndi duga til að byggja 85 Kára­hnjúka­virkj­anir.

„Ekki komist yfir nema fuglinn fljúgandi“

Deilan um landamæramúr Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta hefur lamað rík­is­stofn­anir þar sem hann neitar að skrifa undir fjár­lög nema múr­inn verði fjár­magn­aður. En hversu raun­sæjar eru hug­myndir hans, hvað myndi verk­efnið kosta og hvernig stenst það sam­an­burð við stærstu fram­kvæmdir sem mann­kynið hefur tekið sér fyrir hendur?

Hinn 8. jan­úar síð­ast­lið­inn ávarp­aði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti þjóð sína í beinni útsend­ingu á besta útsend­ing­ar­tíma, eða klukkan níu um kvöldið að stað­ar­tíma á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Allar helstu sjón­varps­stöðvar sýndu beint frá Hvíta hús­inu sem ger­ist sjaldan á þessum tíma kvölds. George W. Bush fékk að flytja slíkt ávarp árið 2006 en þegar Obama hugð­ist gera það sama árið 2014 var honum neitað.

Tilefnið af ávarpi Trumps var enda ærið; banda­rískum rík­is­stofn­unum var lokað á dög­unum vegna þess að hann gat ekki kom­ist að sam­komu­lagi við þing­menn Demókra­ta­flokks­ins um fjár­lög. Bit­beinið er 5 millj­arða doll­ara fjár­veit­ing sem Trump krefst til að geta haf­ist handa við að reisa múr á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Afleið­ingar þess að loka rík­is­stofn­unum með þessum hætti eru ekki miklar í fyrstu en marg­fald­ast hratt eftir því sem dag­arnir líða og opin­bera kerfið byrjar að riða til falls.

Það var eng­inn sátt­ar­tónn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár