Arnarlax lofar bót og betrun út af níu strokulöxum

Níu af ell­efu eld­is­löxum sem veidd­ust í íslenskum ám og Haf­rann­sókna­stofnun upp­runa­greindi koma frá Arn­ar­laxi. Stjórn­ar­for­maður Arnarlax harmar slysa­slepp­ing­arnar. Leigu­takar lax­veiðiáa á Norð­ur­landi þar sem tveir eld­is­laxar veidd­ust segja nið­ur­stöð­una slæma.

Arnarlax lofar bót og betrun út af níu strokulöxum
Eld­is­lax­inn úr Vatns­dalsá Eld­is­lax­inn sem veidd­ist í Vatns­dalsá síð­sum­ars í fyrra reynd­ist hafa sloppið frá Arn­ar­laxi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum. Mynd: Hafrannsóknarstofnun

„Við til­kynntum um nokkur atvik og slysa­slepp­ingu í fyrra, því koma þessar upp­lýs­ingar í raun ekki á óvart. Okkur þykir afskap­lega leitt að þetta slys hafi orðið og að laxar hafi sloppið,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, aðspurður um þá stað­reynd að níu af ell­efu eld­is­löxum, sem Haf­rann­sókna­stofnun greindi eftir að þeir höfðu veiðst í íslenskum ám í fyrra, reynd­ust hafa sloppið úr eld­iskvíum fyr­ir­tæk­is­ins. 

Haf­rann­sókna­stofnun opin­ber­aði nið­ur­stöður grein­ing­ar­innar á milli jóla og nýárs í lok síð­asta árs og komu allir lax­arnir sem stofn­unin taldi sig geta upp­runa­greint frá tveimur eld­is­stæðum Arnarlax á suð­vest­an­verðum Vest­fjörðum, ann­ars vegar í Laug­ar­dal í Tálkna­firði og hins vegar úr Hrings­dal í Arn­ar­firði. Óljóst er hvaðan tveir af löx­unum ell­efu sluppu, sam­kvæmt mati Haf­rann­sókna­stofn­unar, en ekki er ómögu­legt að þessir laxar hafi einnig sloppið frá Arn­ar­laxi, sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands. 

Harmar slysinKjartan Ólafsson hjá Arn­ar­laxi harmar slysa­slepp­ing­arnar.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu