Klaustursþingmenn höfða mál gegn Báru - boðuð fyrir dóm rétt fyrir jól

Reimar Pét­urs­son lög­maður hefur að beiðni fjög­urra ein­stak­linga óskað eftir vitna­leiðslun og öflun sýni­legra sönn­ung­ar­gagna fyrir dómi.

Klaustursþingmenn höfða mál gegn Báru - boðuð fyrir dóm rétt fyrir jól

Báru Hall­dórs­dóttur, upp­ljóstr­ara í Klaust­urs­mál­inu, barst í dag bréf frá hér­aðs­dóm­ara þar sem sagt er að dóms­mál kunni að vera höfðað gegn henni.

Bréfið sem Bára fékk sent

Undir bréfið ritar Lár­entsínus Krist­jáns­son, dóm­ari í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Í bréf­inu segir að beiðni hafi komið frá Reimari Pét­urs­syni lög­manni, fyrir hönd fjög­urra ein­stak­linga, um vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna.

Er Bára boðuð til þing­halds vegna beiðn­innar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur næst­kom­andi mánu­dag. „Með­fylgj­andi beiðni verður ekki skilin öðru­vísi en svo að dóms­mál kunni að verða höfðað á hendur þér í kjöl­far umbeð­innar gagna­öfl­unar,“ segir í bréf­inu.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­menn Mið­flokks­ins, voru á Klaustri bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og ræddu við Ólaf Ísleifs­son og Karl Gauta Hjalta­son, þing­menn Flokks fólks­ins, um að ganga í Mið­flokk­inn. Orða­skiptin voru mjög hávær, áttu sér stað í vitna við­ur­vist og náð­ust að hluta á upp­töku, sem Stundin hefur undir höndum.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag, 7. des­em­ber, steig Bára fram í for­síðu­við­tali í Stund­inni og afhjúpaði sig sem mann­eskj­una sem tók upp sam­töl stjórn­mála­mann­anna. Þangað til hafði hún verið þekkt undir dul­nefni sem hún not­aði þegar hún sendi fjöl­miðlum upp­tök­urnar, nafn­inu Marvin sem er til­vísun í Hitchhiker's Guide to the Galaxy, eina af hennar upp­á­halds­bókum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár