Bein útsending frá „Minna hot í ár“ ráðstefnunni

Á vef Stund­ar­innar má nú horfa á mál­þingið sem stendur yfir í Veröld - húsi Vigdísar.

Bein útsend­ing er í gangi frá mál­þing­inu „„Minna hot í ár“. Stjórn­mála­orð­ræða á Íslandi, annó 2018“ sem fram fer nú í Veröld - húsi Vigdísar á vegum Rann­sókna­stofn­unar í jafn­rétt­is­fræðum við Háskóla Íslands (RIKK) og Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.

Fjallað verður um „hæfni feðra­veld­is­ins til þess að laga sig að nýjum tímum, birt­ing­ar­myndir kynja­for­dóma, fötl­un­ar­fyr­ir­litn­ingu og hat­urs­orð­ræðu stjórn­mála­manna“ og spurt „hvort feðra­veldið sé að bregð­ast við #metoo-bylt­ing­unni og hvort enn sé litið á konur sem aðskota­hlut í stjórn­málum“, sam­kvæmt til­kynn­ingu.

Mál­þingið hefst með röð fræði­legra ör-erinda og að þeim loknum munu stjórn­mála­menn fjalla um málin í pall­borði. Mál­þingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár