Boða til málþingsins „Minna hot í ár“

Stjórn­mála­menn munu ræða Klaust­urs­upp­tök­urnar og kven­fyr­ir­litn­ingu í stjórn­málum á opnu mál­þingi á morgun. Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, ein stjórn­mála­kvenn­anna sem rætt var um á upp­tök­unum, situr í pall­borði.

Boða til málþingsins „Minna hot í ár“

Rann­sókna­stofnun í jafn­rétt­is­fræðum við Háskóla Íslands (RIKK) og Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands hafa boðað til mál­þings um kven­fyr­ir­litn­ingu, þöggun og tví­skinn­ung í íslenskri stjórn­mála­orð­ræðu á morgun. Ber mál­þingið yfir­skrift­ina „„Minna hot í ár“. Stjórn­mála­orð­ræða á Íslandi, annó 2018“.

Fjallað verður um „hæfni feðra­veld­is­ins til þess að laga sig að nýjum tímum, birt­ing­ar­myndir kynja­for­dóma, fötl­un­ar­fyr­ir­litn­ingu og hat­urs­orð­ræðu stjórn­mála­manna“ og spurt „hvort feðra­veldið sé að bregð­ast við #metoo-bylt­ing­unni og hvort enn sé litið á konur sem aðskota­hlut í stjórn­málum“, sam­kvæmt til­kynn­ingu.

Dag­skráin fer fram í Veröld - húsi Vigdísar, mið­viku­dag­inn 5. des­em­ber frá klukkan 11:30 til 13:15. Mál­þingið hefst með röð fræði­legra ör-erinda og að þeim loknum munu stjórn­mála­menn fjalla um málin í pall­borði. Mál­þingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.

Til máls munu taka Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, Þor­steinn Víglunds­son, alþing­maður og fyrr­ver­andi jafn­rétt­is­ráð­herra, Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, alþing­is­maður og Inga Björk Mar­grétar Bjarna­dóttir, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar og bar­áttu­kona fyrir rétt­indum fatl­aðs fólks.

Silja Dögg er ein þeirra kvenna sem heyra mátti rætt um á Klaust­urs­upp­tök­unum svoköll­uðu.

Mál­þing­inu verður streymt í beinni útsend­ingu á Facebook-síðu RIKK.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár