Gunnar Bragi hafði heimilisofbeldi í flimtingum: „Já sundkellingin þarna, voruð þið að lemja hana? Hahaha!“

Gunnar Bragi Sveinsson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, gantaðist með að Ragn­heiður Runólfs­dóttir afreks­kona í sundi hefði orðið fyrir ofbeldi. „Sá sem lemur Röggu Run, hann á ekki séns á Vestur­landi,“ sagði Bergþór Ólason.

G

unnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, gantaðist með það á Klaustri Bar að Ragn­heiður Runólfs­dóttir, afreks­kona í sundi, hefði orðið fyrir heimilis­ofbeldi.

Magnús Þór Haf­steins­sonfram­kvæmda­stjóri þing­flokks Flokks fólks­ins

„Já sund­drottninguna já, voruði að lemja hana?“ segir hann á hljóð­upptökunni sem Stundin hefur undir höndum og skellir upp úr. 

Ragn­heiður steig fram í viðtali við Akureyri Vikublað í október 2017 og opnaði sig um heimilis­ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi barns­föður síns og sambýlis­manns til margra ára, Magnúsar Þórs Hafsteins­sonar. 

Magnús Þór, fyrr­verandi þingmaður Frjáls­lynda flokksins sem í dag er framkvæmda­stjóri þing­flokks Flokks fólksins, vísaði ásökunum á bug í fyrra og kvartaði undan því sem hann kallaði „gróft netníð“.

Á Klausturs­samkomu þing­mannanna sex var rætt um málið á léttu nótunum:

Bergþór: „Sá sem lemur Röggu Run, hann á ekki séns á Vestur­landi.“

Anna Kolbrún: „Ég veit það. Veistu, ég er sammála þér, ég skil ekkert í ykkur.“

Gunnar Bragi: „Ha? Sá sem lemur Röggu Run? Hver er það?“

Bergþór: „Já.“

Gunnar Bragi: „Já sundkellingin þarna, voruði að lemja hana? Hahahahahaha!“ 

Bergþór: „Maggi gerði það sko.“

Stundin hafði samband við Ragnheiði Runólfs­dóttur við vinnslu fréttarinnar og greindi henni frá þessum orða­skiptum. Hún vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

Ofbeldisfullt orðfæri um Lilju Alfreðsdóttur

Stundin hefur fjallað með ítarlegum hætti um þá kven­fyrirlitningu sem birtist í samskiptum þing­mannanna á Klaustri Bar. Eins og fram hefur komið kallaði Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, „húrrandi klikkaða kuntu“ auk þess sem þing­mennirnir göntuðust með að það væri eðlilegt að kona sem væri ekki jafn „hot“ og áður yrði látin gjalda fyrir það í próf­kjörum. „Það fellur hratt á hana,“ sagði Bergþór um Írisi Róberts­dóttur, bæjar­stjóra í Vestmanna­eyjum. 

„Þú getur riðið henni skilurðu“

Þá töluðu karlarnir í Miðflokknum með ógeð­felldum hætti um Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menningar­mála­ráðherra. „Hjólum í helvítis tíkina!“ sagði Gunnar Bragi. „Fuck that bitch,“ sagði Bergþór og bætti svo við: „Þú getur riðið henni skilurðu.“ Þá sagði hann: „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asna­eyrunum en hún sem ég hef ekki fengið að ríða.“ Sigmundur Davíð sagðist vona að konan hans heyrði ekki til hans, en að hann hefði „alveg verið til í þetta dæmi“. Hins vegar hefði komið í ljós að Lilju væri ekki treystandi. „Og hún spilar á karlmenn eins og kvenfólk kann.“

UN Women: Gunnar Bragi hefur skaðað HeForShe

Í ráðherratíð sinni í utan­ríkis­ráðuneytinu vakti Gunnar Bragi heims­athygli fyrir þátttöku sína í He for She átakinu um kynja­jafnrétti. „Hingað til hefur umræðan verið í höndum kvenna. En til þess að koma á varanlegum breytingum mega menn ekki vera fjar­verandi frá umræðunni. Við karlmenn erum hluti af vanda­málinu, en einnig hluti af lausninni,“ skrifaði Gunnar Bragi í grein sem birtist í The Guardian og leikkonan Emma Watson hældi.

Þá stóð Gunnar Bragi og ráðuneyti hans fyrir Rak­ara­stof­uráðstefnunni (e. Barbershop Conference) svokölluðu með Súrínam á þingi Sam­einuðu þjóðanna í New York þar sem markmiðið var að virkja karla í bar­átt­unni fyr­ir jafn­rétti kynj­anna.

UN Women á Íslandi sendi frá sér frétta­tilkynningu á föstudag þar sem fram kom að með framgöngu sinni á Klaustri Bar hefði Gunnar Bragi skaðað orðspor HeForShe. Ummæli sem hann lét falla séu óásættanleg og staðfesti hve mikið verk er enn óunnið í barátt­unni fyrir kynja­jafnrétti á Íslandi.

Árið 2015 hlaut Gunn­ar Bragi jafn­réttisviður­kenn­ingu á flokks­þing­i Framsóknar­flokksins. „Viður­kenn­ing­in er veitt fyr­ir mikið og óeig­ingjarnt starf í þágu flokks­ins sem varðar að jafna stöðu karla og kvenna,“ sagði í frétta­tilkynningu um málið. Á myndinni hér að ofan má sjá Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur, sem á þessum tíma var formaður Framsóknar­kvenna, afhenda Gunnari Braga blómvönd.

„Ég taldi mér trú um að ég yrði að vera kyrr“

„Þetta var erfitt tímabil en ég held að ég að ég hafi komið út sterkari þótt það hafi tekið sinn tíma,“ sagði Ragn­heiður Runólfs­dóttir, fyrr­verandi sund­drottning í viðtalinu við Akureyri vikublað síðasta haust.

„Ef ég horfi til baka sé ég viðvörunar­bjöllurnar sem dingluðu, strax í upphafi og út sambandið, en ég hlustaði ekki á þær. Ég vildi ekki ganga aftur í gegnum skilnað og fannst ég þurfa að standa mína plikt; að ég ætti ekki að gera mikið úr þessu, standa mig, vinna, koma börnunum út í heiminn og vera ánægð með mitt. Ég hafði allt – góða vinnu, frábæra fjöl­skyldu, húsnæði og yndisleg börn og fannst að ég hlyti að geta verið ánægð. Ég taldi mér trú um að ég yrði að vera kyrr, en smám saman gerði ég mér grein fyrir að ég vildi það ekki og ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár