Starfsfólk UN Women harmi slegið vegna Gunnars Braga

Gunnar Bragi Sveins­son hefur skaðað orð­spor HeForShe að mati stjórnar og starfs­fólks UN Women á Íslandi. Ummælin sem voru látin falla séu óásætt­an­leg og stað­festi hve mikið verk er enn óunnið í bar­átt­unni fyrir kynja­jafn­rétti á Íslandi.

Starfsfólk UN Women harmi slegið vegna Gunnars Braga
Stjórn UN Women á Íslandi Stjórn og starfs­fólk UN Women á Íslandi telur Gunnar Braga hafa skaðað orð­spor HeForShe-átaks­ins með hátt­erni sínu.

Lands­nefnd UN Women á Íslandi for­dæmir þá kven­fyr­ir­litn­ingu og hat­urs­orð­ræðu sem Gunnar Bragi Sveins­son og fimm aðrir alþing­is­menn við­höfðu á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem lands­nefndin sendi fjöl­miðlum.

Í til­kynn­ing­unni segir að þau ummæli sem vitnað hefur verið til séu algjör­lega óásætt­an­leg og stað­festi hve mikið verk er enn óunnið í bar­átt­unni fyrir kynja­jafn­rétti á Íslandi. Þar er haft eftir Stellu Sam­ú­els­dóttur, fram­kvæmda­stýru UN Women á Íslandi, að stjórn og starfs­fólk UN Women á Íslandi sé harmi slegið og sér­stak­lega von­svikið yfir því að fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra hafi með þessum hætti skaðað orð­spor Bar­bers­hop-verk­færakist­unnar og HeForShe hreyf­ingu UN Women sem gangi ekki síst út á að upp­ræta niðr­andi tal um konur. Sjálf sé hún nú við störf í Malaví við inn­leið­ingu Bar­bers­hop-verk­færakist­unnar í fyrsta sinn í Afríku, við frá­bærar und­ir­tektir í helsta sam­starfs­landi íslenskra stjórn­valda í þró­un­ar­sam­vinnu. 

Í gegnum tíð­ina hefur Gunnari Braga tals­vert verið hampað fyrir stuðn­ing við jafn­rétt­is­mál.  Hann gegndi stöðu utan­rík­is­ráð­herra á árunum 2013-2016 og var í því nafni í for­svari fyrir HeForShe-her­ferð UN Women, sem ætlað er að hvetja karl­menn til þátt­töku í jafn­rétt­is­bar­átt­unni. Hann skrif­aði meðal ann­ars grein sem birt­ist í Guardian sem vakti tals­verða athygli, ekki síst í ljósi þess að leik­konan Emma Watson vitn­aði í grein­ina á Twitter-síðu sinni. Gunnar Bragi tal­aði fyrir jafn­rétti á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna og á ýmsum alþjóð­legum ráð­stefnum.

„Við viljum brýna karla til að stefna að raun­veru­legu jafn­rétti, að breyta staðalí­myndum og gera sér grein fyrir því að jafn­rétt­is­mál eru fyrst og fremst mik­il­vægt mann­rétt­inda­mál,“ var meðal ann­ars haft eftir Gunnari Braga í grein sem birt var á heima­síðu Fram­sókn­ar­flokks­ins í til­efni af svo­kall­aðri Rak­ara­ráð­stefnu sem Ísland og Súrínam stóðu sam­eig­in­lega fyrir í New York í jan­úar 2015. Sama ár hlaut hann jafn­rétt­is­við­ur­kenn­ingu Fram­sóknar, sem veitt var á flokks­þingi í apríl. Við það til­efni var honum gef­inn verð­launa­grip­ur­inn „Hnar­reist stönd­um við sam­an“, skúlp­túr sem átti að tákna að „við stönd­um öll á sama grund­velli og horf­umst í augu, burt séð frá til dæmis kyni, kyn­þætti, aldri eða sam­fé­lags­stöðu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár