Fengu skammir fyrir að vekja athygli á að sjúklingur þyrfti að sofa á klósettinu

Móðir Berg­lindar Sig­urð­ar­dóttur þurfti að sofa inni á sal­erni á lyf­lækn­inga­deild Land­spít­al­ans vegna pláss­leysis. Berglind og systir hennar voru skammaðar fyrir að birta myndir af aðstöð­unni á Facebook.

Fengu skammir fyrir að vekja athygli á að sjúklingur þyrfti að sofa á klósettinu
Þurfti að sofa á kló­sett­inu 92 ára gömul kona var látin sofa á kló­setti á Land­spít­ala vegna pláss­leysis.

92 ára gömul kona var látin sofa inni á sal­erni á lyf­lækn­inga­deild Land­spít­ala síð­ustu nótt, með kúa­bjöllu til að gera vart við sig. Ástæðan var sögð pláss­leysi. Konan datt illa fyrir rúmri viku og fékk slæmt höf­uð­högg. Dætur kon­unnar segj­ast hafa fengið skammir frá sjúkra­hús­starfs­fólki fyrir að taka mynd af aðstöð­unni og birta á Facebook til að vekja athygli á stöðu mála.

Berglind Sig­urð­ar­dóttir

„Við fengum skammir fyrir að vekja athygli á þessu í morg­un­matnum í morgun, þegar komið var með hann og honum nán­ast skellt ofan á kló­sett­set­una,“ segir Berglind Sig­urð­ar­dóttir, dóttir kon­unnar, í sam­tali við Stundina. „Okkur var sagt að ekki væri leyfi­legt að taka myndir af aðstöð­unni. Við svöruðum því til að við gætum ekki annað, við hefðum bara fengum bara áfall þegar við sáum við hvaða aðstæður hún þurfti að búa. Við báðum um að henni yrði í það minnsta rúllað fram svo hún fengi nú að borða morg­un­mat­inn sinn frammi á gangi frekar en inni á kló­sett­inu.“

„Skyldu ráð­herr­arnir láta bjóða sér þetta ef þeim yrði rúllað hér inn.“

Þegar blaða­maður tal­aði aftur við Berg­lindi nú í hádeg­inu var búið að koma móður hennar fyrir inni á sjúkra­stofu. Í gær var okkur sagt að þeir vissu ekki hversu langur tími myndi líða þar til hún fengi inni á deild. Okkur var sagt að þetta væri bara staðan, svona væri heil­brigð­is­kerfið og væri búið að vera í tutt­ugu ár. Það síð­asta sem hún sagði við okkur í gær­kvöldi, grát­andi, var: „Skyldu ráð­herr­arnir láta bjóða sér þetta ef þeim yrði rúllað hér inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár