Kaupmönnum hefur nú tekist að festa hina amerísku Halloween-hátíð í sessi á Íslandi. Hún er, eins og æ fleira í menningu okkar, komin beina leið úr Hollywood-myndum og amerísku sjónvarpi. Það er sama þótt menn geti grafið upp heimildir um einhverjar svipaðar hátíðir og uppákomur í Evrópu og jafnvel einhverjar hátíðarnefnur á Íslandi fyrr á tíð, þá er Halloween nútímans samt komið frá Ameríku. Við það er auðvitað ekkert að athuga í sjálfu sér. Ef fólk skemmtir sér á Halloween má einu gilda þótt hugmyndin og framkvæmdin séu innflutt. Flest allt í okkar menningu dæmist hvort eð er vera innflutt sé nógu langt litið aftur. Vonandi er samt að kaupmenn fari þá að líta víðar en bara til Bandaríkjanna þegar þeir finna upp á einhverju nýju til að selja okkur dót. Því líta þeir ekki til Hakata Dontaku-hátíðarinnar í Japan, eða Ganesh-hátíðar Indverja? Kaupmenn hljóta að geta fundið leið til …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

























































Athugasemdir