Utanríkisráðherra kalli pólska sendiherrann á teppið

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, segir bréf pólska sendi­herr­ans til for­seta og for­sæt­is­ráð­herra aðför sendi­herra erlends ríkis að frjálsum fjöl­miðli á Íslandi. For­dæma­laust til­tæki ræð­is­manns á okkar tímum.

Viðbrögð Gerard Pokruszyński, sendi­herra Íslands á Póllandi, við frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar af aðkomu nýfasískra hópa að göngu sem pólskir ráða­menn leiddu um götur Varsjár síð­ast­lið­inn sunnu­dag, eru aðför sendi­herra erlends ríkis að frjálsum fjöl­miðli á Íslandi. Athæfið er for­dæma­laust sé litið til sam­tíma­sögu lands­ins og leita verður aftur til fjórða ára­tug­ar­ins til þess að finna dæmi um sam­bæri­legar aðferðir ræð­is­manns erlends ríkis á íslenskri grundu. Þetta ritar Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, í færslu á Facebook. Þá segir hann eðli­leg­ast að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra kalli sendi­herr­ann á teppið og skammi hann fyrir upp­á­tækið.

Ráðherra bregð­ist viðStundin veit ekki til þess að sendi­herra Póllands hafi sent Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra umrætt bréf, en Kristinn vill að ráð­herr­ann kalli sendi­herr­ann á teppið.

Pólski sendi­herr­ann sendi á mið­viku­dags­kvöld bréf á skrif­stofur æðstu ráða­manna Íslands, Guðna Th. Jóhann­es­son for­seta og Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, þar sem hann fór fram á að Stundin bæði pólsku þjóð­ina afsök­unar á því að hafa sagt að allir Pól­verjar sem „elska föð­ur­landið“ væru „nýnas­istar“ eða „fas­istar.“ Þá sagð­ist hann von­ast til þess að umfjöllun blaðs­ins, sem hann kallar „fals­frétt“, myndi ekki valda „alvar­legum afleið­ingum“ í sam­skiptum Íslend­inga og Pólverja. „Ég vona að þetta mun ekki valda alvar­legum afleið­ingum og muni ekki byggja upp tregðu á milli sam­landa okkar,“ sagði sendi­herr­ann sem  sendi bréfið jafn­framt á flesta starfs­menn Stund­ar­innar. Rit­stjórar Stund­ar­innar hafa hafnað ásök­unum sendi­herr­ans.

Viðbrögðin staðfesti ástandið

„Hið hræði­lega er að þetta við­bragð sendi­herr­ans er stað­fest­ing á þeim und­ir­liggj­andi ugg sem leiddi til skrifa Stund­ar­innar,“ skrifar Kristinn sem bætir við að íslenskum stjórn­völdum beri að mót­mæla hinu lúa­lega og frek­lega athæfi sendi­herr­ans.

Hann bendir á að það sé ekk­ert athuga­vert við það að sendi­herra erlends ríkis geri yfir­veg­aðar athuga­semdir við efn­is­tök fjöl­miðla sem varða land hans, telji hann ein­hverjar rang­færslur á ferð­inni. Það hefði sendi­herr­ann getað gert með rök­studdum skrifum en slíku hafi ekki verið að skipta. „Þetta er ekk­ert slíkt heldur aðför að frjálsum fjöl­miðli og nafn­greindum blaða­manni, í því ríki þar sem hann hefur stöðu,“ skrifar Kristinn sem telur „offors pólska sendi­herr­ans“ vart eiga sér for­dæmi á Íslandi sé litið til síð­ustu ára­tuga.

Sendi bréf á ráða­menn Gerard Pokruszyński, sendi­herra Póllands á Íslandi, sendi bréf á æðstu ráða­menn á Íslandi, og kvart­aði undan umfjöllun Stund­ar­innar um fasíska hópa.

Kristinn bendir á að lík­leg­ast þurfi að fara alla leið aftur til fjórða ára­tugar 20. ald­ar­innar til þess að finna sam­bæri­leg dæmi, sem birt­ust í aðferðum þýska ræð­is­manns­ins Werners Gerlack þegar hann krafð­ist þess ítrekað að íslensk stjórn­völd hefðu hemil á gagn­rýnni umfjöllun fjöl­miðla um þriðja ríki Hitlers, og varð tölu­vert ágengt.

Alþjóðlegir fjölmiðlar sakaðir um falsfréttir

Í umfjöllun Stund­ar­innar um sjálf­stæð­is­göng­una, sem fram fór í Varsjá síð­ast­liðin sunnu­dag í til­efni af hund­rað ára afmæli sjálf­stæðis Póllands, Í umfjöll­un­inni, sem byggði meðal ann­ars á frétta­flutn­ingi alþjóð­legra fjöl­miðla á borð við New York Times, Guardian og Al Jazeera, kom fram að for­seti Póllands, for­sæt­is­ráð­herra og aðrir helstu leið­togar lands­ins, hefðu mar­sérað um götur Varsjár í fylgd þjóð­ern­is­sinn­aðra hópa sem hafa verið skil­greindir sem fasískir og/eða nýna­sískir. Þessi hópar hafa skipu­lagt og sam­ein­ast í sjálf­stæð­is­göng­unni þann 11. nóv­em­ber ár hvert allt frá árinu 2010. Gagn­rýnendur hafa bent á að með því að taka þátt í sam­eig­in­legri göngu með öfga­hægri­mönnum, hafi pólsk stjórn­völd í raun veitt þessum hópum ákveðið lög­mæti.

Gangan hefur vakið athygli alþjóð­legra fjöl­miðla á borð við Al Jazeera, BBC og Euronews. „Pólskir ráða­menn mar­séra með þjóð­ern­issinnum á full­veld­is­dag­inn,“ sagði í fyr­ir­sögnum Al jazeera, U.S. News og Fox News á meðan The Times of Israel og New York Times lögðu áherslu á að pólskir ráða­menn hefðu tekið þátt í göng­unni með öfga­hægri­mönnum. „Þjóð­ern­is­sinnar sem kveiktu í blysum og héldu uppi merkjum fas­ista mar­sér­uðu á sama tíma og pólskir stjórn­mála­menn,“ sagði í frétt Guardian. 

Blaða­menn án landamæra, Amnesty International og Freedom House eru á meðal þeirra sem hafa bent á það hvernig pólsk stjórn­völd hafa þrengt að tján­ingar- og fjöl­miðla­frelsi í land­inu eftir að þjóð­ern­is­sinn­aði Laga og Rétt­læt­is­flokk­ur­inn komst þar til valda árið 2015. Þannig sé rík­is­sjón­varp lands­ins til að mynda komið algjör­lega undir hæl flokks­ins. Fréttir virtra alþjóð­legra miðla, þar sem fjallað er með krítískum hætti um ástandið í Póllandi, eru jafnan teknar fyrir í pólska rík­is­sjón­varp­inu og þær afskrif­aðar sem „fals­fréttir“. Pólland féll um 29 sæti á lista Blaða­manna án landamæra um fjöl­miðla­frelsi á milli áranna 2015 og 2016 eða eftir að flokk­ur­inn tók við stjórn­ar­taumunum. Landið var í 18 sæti á list­anum árið 2015 en var komið niður í 47 sæti árið 2016 og er nú í 58 sæti á list­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár