Gagnrýndi stjórnvöld Filippseyja fyrir morð án dóms og laga

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra gagn­rýndi stjórn­völd í Fil­ipps­eyjum harð­lega í ræðu hjá Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna í Genf á dög­unum. Þá sagði hann íslensk stjórn­völd ákveðin í því að upp­ræta kyn­bund­inn launa­mun og kyn­bundið ofbeldi.

Gagnrýndi stjórnvöld Filippseyja fyrir morð án dóms og laga
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Gagn­rýndi mann­rétt­inda­brot og ofbeldi yfir­valda á fundi Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna í Genf. Mynd: xd.is

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra gagn­rýndi nokkur aðild­ar­ríki Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna í ræðu sinni á fundi þess á dög­unum. Beindi hann sér­stak­lega orðum sínum að stjórn­völdum í Fil­ipps­eyjum, sem hafa staðið fyrir drápum án dóms og laga í tengslum við stríð sitt gegn eit­ur­lyfjum. Kallaði hann eftir frek­ari við­brögðum ráðs­ins ef stjórn­völd snúa ekki af þess­ari braut.

„Ríki sem eiga aðild að ráð­inu ættu að sýna for­dæmi og búast við því að þeirra fram­ganga í mann­rétt­inda­málum sæti sér­stakri skoðun á meðan þau eru aðild­ar­ríki,“ sagði Guð­laugur og benti á að Fil­ipps­eyjar ættu aðild um þessar mundir. „Ef Mann­réttinda­ráðið dregur ekki eigin aðild­ar­ríki til ábyrgðar til að tryggja að þau séu í for­ystu um útbreiðslu og vörn mann­rétt­inda, hver mun þá gera það?“

Talið er að yfir 14 þús­und manns hafi verið drepnir síðan Rodrigo Duterte var kos­inn for­seti Fil­ipps­eyja vorið 2016 fram til mars 2017. Duterte hefur hvatt til þess að eit­ur­lyfjafíklar verði myrtir án dóms og laga og sætir rík­is­stjórn hans nú rann­sókn Alþjóða­saka­mála­dóm­stóls­ins vegna glæpanna.

Þá benti Guð­laugur Þór á að Sádi-Arabía, Venes­ú­ela og Egypta­land séu líka aðilar að ráð­inu, en ríkin hafi öll sætt gagn­rýni að und­an­förnu vegna mann­rétt­inda­brota.

Munu fullgilda Istanbúl-samninginn

Í lok ræðu sinnar lýsti ráð­herra mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar í jafn­rétt­is­málum. „Rík­is­stjórn mín er ákveðin í því að eyða kyn­bundnum launa­mun og, í anda alþjóð­legu #metoo bylt­ing­ar­innar, að stöðva kyn­bundið ofbeldi, þar með talið á net­inu. Við stefnum einnig að því að full­gilda Istanbúl-samn­ing­inn um að koma í veg fyrir og berj­ast gegn ofbeldi gegn konum og heim­il­is­of­beldi.“

Loks fjall­aði hann um mál­efni hinsegin fólks og sagði að Ísland muni þiggja boð um aðild að Equal Rights Coalition, sem er nýr sam­starfs­hópur meira en þrjá­tíu ríkja sem vilja beita sér fyrir grund­vall­ar­rétt­indum hinsegin fólks. „Við munum áfram tala fyrir, á þessum vett­vangi og öðrum, rétt­indum LGBTI-fólks,“ sagði Guð­laugur Þór. „Heima fyrir stefnir rík­is­stjórn mín að metn­að­ar­fullri lög­gjöf um kyn­rænt sjálf­ræði.“ 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Utanríkismál

FréttirUtanríkismál

Sig­mundur Davíð skoð­aði lagn­ingu sæstrengs með Cameron „til að sýna fram á að það hent­aði ekki“

Þing­heimur hló þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagð­ist ein­göngu hafa sam­þykkt stofnun vinnu­hóps með Bretum um lagn­ingu sæstrengs árið 2015 til þess að ekk­ert yrði af verk­efn­inu. Hann mælir með að Bretland gangi í EES, þrátt fyrir að utan þess yrði sæstrengur ill­mögu­legur eftir Brexit.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár