„Þegar maður er í leyfi frá einhverju starfi þá hefur maður engar skyldur þar“

Davíð Þór Björg­vins­son seg­ist hafa verið í góðri trú þegar hann veitti rík­is­lög­manni ráð­gjöf, í ljósi þess að hann hafi verið í leyfi frá dóm­ara­störfum. Sinnti ráð­gjöf­inni án þess að samið væri um greiðslur

„Þegar maður er í leyfi frá einhverju starfi þá hefur maður engar skyldur þar“
Ekki rætt um greiðslur Davíð Þór seg­ist telja að það hafi verið sam­eig­in­legur skiln­ingur sinn og lög­manns rík­is­ins að greiðslur hafi átt að koma til vegna ráð­gjafar Davíðs Þórs. Það hafi þó ekki verið rætt. Mynd: Af Facebook-síðu Lögfræðingafélagsins

Davíð Þór Björg­vins­son, vara­for­seti Lands­réttar, seg­ist ekki hafa litið svo á að hann væri að sinna auka­starfi þegar hann ráð­lagði emb­ætti rík­is­lög­manns varð­andi mál sem rekið er fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu og snýr að sam­dóm­urum Davíðs Þórs við Lands­rétt. Ekki hafi verið gengið frá því að hann fengi greiðslur fyrir þó hann hafi reiknað með að sam­eig­in­legur skiln­ingur væri um slíkt. Hann hafi ekki enn þegið greiðslur fyrir og ef það sam­rým­ist ekki reglum muni hann ekki þiggja þær. 

Davíð Þór var skip­aður dóm­ari við Lands­rétt um mitt ár 2017 en rétt­ur­inn tók til starfa í upp­hafi þessa árs, 2018. Davíð var hins vegar veitt leyfi til frá dóm­ara­störfum til að gegn emb­ætti setts sak­sókn­ara í Guð­mundar- og Geir­finns­málum. Hann kom til starfa við Landsdóm 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Davíð Þór var því í leyfi frá störfum þegar hann veitti emb­ætti lög­manns rík­is­ins ráð­gjöf í máli rík­is­ins fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Davíð Þór var dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn um níu ára skeið.

Stundin hafði sam­band við Davíð Þór við vinnslu fréttar um að veru­legur vafi leiki á að honum hafi verið heim­ilt að inna af hendi ráð­gjöf til emb­ættis lög­manns rík­is­ins. Stundin innti Davíð Þór eftir því hvort hann teldi að með svari nefndar um dóm­ara­störf, 24. októ­ber, hefði staða hans með ein­hverjum hætti breyst frá því sem var þegar hann lýsti því í sam­tali við frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins að hann hefði komið að ráð­gjöf­inni . Davíð Þór sagð­ist ekki hafa séð umrætt svar nefnd­ar­innar, þrátt fyrir að fram komi að honum hafi verið sent afrit af því. Þar af leið­andi vildi hann ekki tjá sig um málið að svo komnu máli.

Davíð Þór hafði svo aftur sam­band við Stundina þegar hann hafði lesið umrætt bréf nefndar um dóm­ara­störf. Hann sagði að hann liti enn svo á að hann hefði ekki verið að sinna auka­starfi sem dóm­ari, þar eð hann hefði verið í leyfi.

Segir að um lögfræðilega ráðgjöf hafi verið að ræða

„Þessi grein [45. grein laga um dóm­stóla] fjallar um auka­starf dóm­ara, með dóm­ara­störfum. Það var mitt mat á sínum tíma, þegar farið var þess á leit við mig að ég veitti ráð­gjöf með því að spjalla við rík­is­lög­mann um þetta erindi frá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum, að það væri ekki auka­starf með dóm­ara­starfi. Ég leit ekki svo á. Ég hafði aldrei tekið við þessu dóm­ara­starfi. Mér finnst ekki aug­ljóst að þetta verði skilið þannig. Þegar maður er í leyfi frá ein­hverju starfi þá hefur maður engar skyldur þar. Og það er ekk­ert í þessu bréfi nefndar um dóm­ara­störf sem tekur á því.“

„Reyndar hef ég ekki fengið neitt borgað fyrir þetta þannig að það mætti kannski hafa það í huga.“

Davíð Þór við­ur­kennir þó að auð­vitað hafi það verið lög­fræði­leg ráð­gjöf sem hann veitti rík­is­lög­manni. „Jú, að sjálf­sögðu var þetta lög­fræði­leg ráð­gjöf.“

Þegar blaða­maður bendir Davíð Þór á nið­ur­lagið í bréfi nefnd­ar­innar, þar sem segir „að almennt verði að telja að lög­fræði­leg ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi sé ekki heimil dóm­ara“ og að það sé álit nefnd­ar­innar það eigi við frá þeim tíma sem dóm­ari hefur verið skip­aður í emb­ætti svarar Davíð Þór því til að hann hafi ekki fengið greitt fyrir ráð­gjöf­ina. „Reyndar hef ég ekki fengið neitt borgað fyrir þetta þannig að það mætti kannski hafa það í huga.“

Spurður þá hvort ekki standi til að hann fái greitt fyrir þá vinnu sem hann innti af hendi svarar Davíð Þór: „Það var, ég reikna með að það hafi verið sam­eig­in­legur skiln­ingur en það hefur ekki verið farið fram á það ennþá og það er alveg óvíst að það verði gert ef ég er með því að brjóta ein­hverjar reglur. Ég verð bara að kanna það.“

Störf Davíðs Þórs tiltekin í svari forsætisráðherra 

Rétt er að geta þess að í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­is­p­urn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, frá 16. októ­ber, þar sem Sig­mundur spurði hvort réð­herran hefði fengið utan­að­kom­andi aðila til ráð­gjafar frá því núver­andi rík­is­stjórn tók til starfa, er nafn Davíðs Þór að finna. Í svar­inu segir að Davíð Þór hafi innt af hendi „Ráðgjöf vegna rit­unar grein­ar­gerðar af hálfu rík­is­lög­manns til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Greiðslur hafa enn sem komið er ekki verið inntar af hendi til verk­tak­ans.“

„Þetta bara var ekk­ert rætt“

Spurður frekar út í þessa hlið máls­ins, hvort það hafi hafi þá verið sam­eig­in­legur skiln­ingu af hálfu emb­ættis rík­is­lög­manns og Davíðs Þórs að hann ætti að fá greiðslu fyrir ráð­gjöf sína svarar Davíð Þór:

„Veistu það, ég get ekki einu sinni sagt að það hafi verið þannig. Þetta bara var ekk­ert rætt.“

-Þannig að þú féllst á að veita rík­is­lög­manni lög­fræði­lega ráð­gjöf í umræddu máli án þess að það væri um það samið að þú fengir fyrir það neinar greiðslur?

„Ja, það hefur ekki verið samið um neinar greiðslur, það hefur ekki verið gert ennþá. Og ef að af því verður þá mun ég skoða það sko, ég mun hafa sam­band við nefnd­ina og athuga hvort það sé eitt­hvað því til fyr­ir­stöðu. Að sjálf­sögðu ger­ist það ekki ef það er mat nefnd­ar­innar, sem ég reyndar veit ekki hvort hún mun fjalla um, hvort það sé mat nefnd­ar­innar hvort það sé brot á þessu ákvæði 45. greinar [dóm­stóla­laga], ég bara veit það ekki.“

-En nú hefur þú innt þessa ráð­gjöf af hendi hvort eð er og í það minnsta hálf­part­inn gert ráð fyrir að fá greitt fyrir?

„Já, ég svona gerði ráð fyrir því vegna þess að ég taldi þetta ekki vera eitt­hvað sem væri auka­starf. Ég ræddi bara við rík­is­lög­mann um hvaða taktík myndi koma best að gagni, það var nú ekk­ert meira en það. Ég hef aldrei reynt að leyna því nokk­urs staðar. Ég gerði þetta bara í góðri trú, það var bara þannig.“

Davíð Þór svar­aði því ekki efn­is­lega í sam­tali sínu við Stundina hvort hann hefði haft sam­band við nefnd um dóm­ara­störf og til­kynnt nefnd­inni fyr­ir­fram um að hann hyggð­ist taka að sér auka­starf í formi ráð­gjafar fyrir emb­ætti rík­is­lög­manns. Af svörum Davíðs Þórs má hins vegar skilja að hann hafi ekki talið ástæðu til að upp­lýsa nefnd­ina um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár