Telur Davíð Þór vanhæfan í öllum málum sem varða íslenska ríkið

Veru­legur vafi á því að Davíð Þór Björg­vins­syni, vara­for­seta Lands­réttar, hafi verið heim­ilt að veita rík­is­lög­manni ráð­gjöf. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður segir að hann hafi gert sig van­hæfan með því og krefst þess að Davíð Þór taka ekki sæti sem dóm­ari í málum sem Vil­hjálmur rekur fyrir Lands­rétti.

Telur Davíð Þór vanhæfan í öllum málum sem varða íslenska ríkið
Vafi á hæfi Veru­legur vafi er uppi um hvort Davíð Þór Björg­vins­syni hafi verið heim­ilt að veita rík­is­lög­manni ráð­gjöf í máli fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, eftir að hann var skip­aður dóm­ari við Lands­rétt. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hefur kraf­ist þess að Davíð Þór dæmi ekki í neinum þeim málum sem Vil­hjálmur rekur fyrir Lands­rétti.

Davíð Þór Björg­vins­son, vara­for­seti Lands­réttar, veitti rík­is­lög­manni lög­fræði­lega ráð­gjöf í máli íslenska rík­is­ins fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu sem varðar stöðu sam­dóm­ara Davíðs Þórs í Lands­rétti með beinum hætti. Veru­legur vafi leikur á að Davíð Þór hafi verið það heim­ilt, þrátt fyrir að hann hafi verið í leyfi frá dóm­ara­störfum.

Almennt er dóm­urum ekki heim­ilt að veita lög­fræði­lega ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi . Nefnd um dóm­ara­störf telur að reglan um að dóm­ara sé ekki heim­ilt að veita lög­fræði­lega ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi eigi við frá þeim tíma sem dóm­ari hefur verið skip­aður í emb­ætti.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður telur að með ráð­gjöf sinni hafi Davíð Þór gert sig van­hæfan í öllum málum sem varða íslenska ríkið. Hann krefst þess að Davíð Þór taki ekki sæti í neinu því máli sem Vil­hjálmur rekur fyrir Lands­rétti.

Staðfest að Davíð Þór veitti ráðgjöf

Davíð Þór Björg­vins­sonDavíð Þór taldi, í ljósi þess að hann var í leyfi frá störfum við Lands­rétt, að sér væri heim­ilt að veita emb­ætti rík­is­lög­manns ráð­gjöf í máli sem snýr að sam­dóm­endum Davíðs Þór við rétt­inn.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður gætir hags­muna Guð­mundar Andra Ást­ráðs­sonar í máli gegn íslenska rík­inu sem nú er rekið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum.

Í mál­inu er tek­ist á um þá nið­ur­stöðu Hæsta­réttar að Arn­fríður Ein­ars­dóttir geti með réttu talist hand­hafi dóms­valds og dæmt í Lands­rétti þrátt fyrir að framin hafi verið lög­brot þegar hún var tekin fram yfir aðra sem metnir voru hæf­ari við skipun í dóm­inn.Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra braut lög með því að skipa Arnfríði, Ásmund Helgason, Jón Finn­björns­son og Ragn­heiði Braga­dóttur sem dóm­ara við Lands­rétt, þvert á mat hæfn­is­nefndar.

Vil­hjálmur telur að í ljósi þess að lögum var ekki fylgt við val á Lands­rétt­ar­dóm­urum hafi verið brotið á rétti skjól­stæð­ings hans til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli þegar Arn­fríður dæmdi í máli hans. 

Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu sendi íslenska rík­inu fyr­ir­spurn­ar­bréf vegna kæru Vil­hjálms og Guð­mundar Andra veitti Davíð Þór emb­ætti rík­is­lög­manns ráð­gjöf. Þetta hefur Einar Karl Hall­varðs­son rík­is­lög­maður stað­fest, og Davíð Þór sjálfur síðar. Sjón­ar­mið Davíðs Þórs má sjá hér. 

Settur dómari en síðan kippt út

Gerð var sú breyt­ing á máli, sem Vil­hjálmur rekur gegn Lands­bank­anum fyrir Lands­rétti,  8. októ­ber síð­ast­lið­inn, að Davíð Þór var þar settur dóm­ari í stað Jóns Finn­björns­sonar.

Vil­hjálmur sendi skrif­stofu­stjóra Lands­réttar, Birni L. Bergs­syni, fyr­ir­spurn 10. októ­ber þar sem hann grennsl­að­ist fyrir um það hvort Davíð hefði gegnt fyrr­nefndum auka­störfum fyrir rík­is­lög­mann eftir að hann var skip­aður dóm­ari við rétt­inn. Taldi Vil­hjálmur brýnt að upp­lýst yrði um það, þar eð hann hefði efa­semdir um að Davíð Þór væri hæfur til að taka sæti í mál­inu, ef rétt væri.

Sama dag sendi Björn Vil­hjálmi svar þess efnis að Davíð Þór myndi ekki taka sæti dóm­ara í mál­inu en vís­aði að öðru leyti spurn­ingum um auka­störf Davíðs Þórs til emb­ættis rík­is­lög­manns. Þá sendi skrif­stofa Lands­réttar frá sér til­kynn­ingu, síð­degis 10. októ­ber, þar sem greint var frá því að Jón Finn­björns­son hefði aftur tekið sæti í umræddu máli.

Í milli­tíð­inni, eða 9. októ­ber, sendi Vil­hjálmur erindi til bæði rík­is­lög­manns, þar sem hann fór fram á að fá svör við því hvort Davíð Þór hefði unnið að grein­ar­gerð rík­is­lög­manns í mál­inu sem um ræðir auk ann­arra mála, og einnig til nefndar um dóm­ara­störf, þar sem var farið fram á að nefndin upp­lýsti hvaða auka­störfum Davíð Þór hefði gegnt síðan hann var skip­aður dóm­ari við Lands­rétt og hvort hann hefði leitað sam­þykkis nefnd­ar­innar fyrir þeim störfum.

Landsréttur svarar ekki Vilhjálmi

Loks sendi Vil­hjálmur Lands­rétti kröfu 14. októ­ber um að Davíð Þór tæki ekki sæti í dómi í neinum þeim málum sem Vil­hjálmur færi með í Lands­rétti. Rök­semdir Vil­hjálms fyrir því voru að „alkunna“ væri að Davíð Þór hefði samið grein­ar­gerð íslenska rík­is­ins í máli Guð­mundar Andra fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. „Ég lít svo á að auka­starfið sem Davíð Þór tók að sér fyrir rík­is­lög­mann sé í eðli sínu lög­manns­starf og því sé Davíð Þór ásamt öðrum lög­mönnum rík­is­lög­manns að reka dóms­mál gegn mér fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Á meðan svo er getur Davíð Þór ekki tekið sæti í dómi í málum sem ég flyt fyrir Lands­rétti.“ Við þess­ari kröfu hefur Vil­hjálmur ekki fengið svar.

Einar Karl Hall­varðs­son rík­is­lög­maður svar­aði erindi Vil­hjálms 19. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í svar­inu kemur fram að emb­ætti rík­is­lög­manns telji sér ekki skylt að veita upp­lýs­ingar um hvort Davíð Þór hafi  unnið fyrir emb­ættið eftir að hann var skip­aður dóm­ari við Lands­rétt. Samkvæmt reglum um auka­störf dóm­ara er dóm­urum almennt óheim­ilt að taka að sér önnur störf án þess að fá til þess heim­ild nefndar um dóm­ara­störf fyr­ir­fram.

Hins vegar upp­lýsti emb­ættið engu að síður að Davíð Þór hefði veitt ráð­gjöf í tengslum við umrætt mál. „Davíð Þór var á þeim tíma sem ráð­gjöfin var látin í té í leyfi frá störfum sem dóm­ari við Lands­rétt og tók ekki til starfa við rétt­inn fyrr en fyrsta þessa mán­aðar,“ segir jafn­framt í svari Einars Karls. Í engu var svarað nán­ari spurn­ingum, svo sem hvort Davíð Þór hefði komið að öðrum dóms­málum fyrir emb­ætti rík­is­lög­manns, hvenær störf hans hófust og hvort þeim væri lokið eða hvað hann hefði fengið greitt fyrir þau störf. Þær spurn­ingar hefur Vil­hjálmur ítrekað en ekki fengið svör. Þess ber einnig að geta að þegar Stundin ræddi við Einar Karl í síð­ustu viku og óskaði svara um störf Davíðs Þórs fyrir emb­ætti rík­is­lög­manns vék Einar Karl sér undan því að svara þeim á grund­velli þess að ekki væri búið að svara fyr­ir­spurn Vil­hjálms og eðli­legt væri að það yrði gert áður en fjöl­miðlum yrði svarað.

Davíð Þór sjálfur stað­festi í sam­tali við frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins að hann hefði komið að ráð­gjöf fyrir rík­is­lög­mann í mál­inu, en sagð­ist ekki hafa þegið fyrir það greiðslu. Hann sagði einnig að ráð­gjöfin myndi ekki sam­ræm­ast dóm­ara­störfum en hann hefði ekki verið tek­inn til starfa við Lands­rétt þegar ráð­gjöfin var veitt. Davíð stað­festi þessi atriði einnig þegar Stundin hafði sam­band við hann. 

Reglan á við frá því skipað er í embætti

Hinn 22. októ­ber síð­ast­lið­inn sendi Vil­hjálmur annað erindi til nefndar um dóm­ara­störf með við­bót­ar­gögnum og sjón­ar­miðum, þar sem hann færði rök fyrir því að Davíð Þór hefði sinnt margs konar störfum í Lands­rétti síðan hann tók við emb­ætti 1. jan­úar 2018. „Í fyrsta lagi mætti hann reglu­lega á skrif­stofu sína í Lands­rétti frá 1. jan­úar til 1. októ­ber 2018. Í öðru lagi þá mætti hann á dóm­ara­fundi og tók þátt í stjórn­sýslu rétt­ar­ins s.s. kosn­ingu for­seta og vara­for­seta rétt­ar­ins og kosn­ingu í stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar. Í þriðja lagi var hann kos­inn vara­maður í stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar og mætti þar á fundi sem full­trúi Lands­réttar og þáði greiðslur fyrir. Það er því ljóst að Davíð Þór hefur verið við störf í Lands­rétti frá því að skipun hans tók gildi 1. jan­úar 2018 þó að hann hafi ekki tekið sæti í dómi fyrr en eftir 1. októ­ber 2018.“

Hjördís Hákon­ar­dóttir, for­maður nefndar um dóm­ara­störf, svar­aði erindi Vil­hjálms 24. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í svari hennar kemur fram að í ljósi þess að Davíð Þór sé ekki lengur settur dóm­ari í mál­inu sem Vil­hjálmur rekur fyrir Lands­rétti telji nefndin að Vil­hjálmur hafi ekki rétt á því fyrir hönd umbjóð­anda síns að fá umbeðnar upp­lýs­ingar um auka­störf Davíðs Þórs, það er hvort hann hafi sinnt slíkum auka­störfum og hvort hann hafi sent nefnd­inni umsókn þar um.

Hins vegar vísar Hjördís í svari sínu, að því er varðar spurn­ingu um ráð­gjaf­ar­starf dóm­ara fyrir rík­is­lög­mann, til 6. greinar reglna um auka­störf dóm­ara sem á sér stoð í dóm­stóla­lögum, en í henni kemur fram að dóm­ara sé óheim­ilt að taka að sér mál­flutn­ings­störf og sama gildi um önnur hefð­bundin lög­manns­störf ef end­ur­gjald komi fyrir. Þá segir einnig að það sé álit nefnd­ar­innar að sú regla eigi við „frá þeim tíma sem dóm­ari hefur verið skip­aður í emb­ætti“.

Óviðeigandi að Davíð Þór tjái sig um
mál fyrir Mannréttindadómstólnum

Davíð Þór tjáði sig um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli Egils Ein­ars­sonar í nóv­em­ber 2017, eftir að hann var skip­aður dóm­ari við Lands­rétt, þar sem hann sagði að nið­ur­staða dóm­stóls­ins væri ekki hafin yfir gagn­rýni.

Þá tjáði Davíð Þór sig einnig um málið sem Vil­hjálmur rekur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum nú, málið sem Davíð Þór veitti ráð­gjöf í, og sagði að ef dóm­stóll­inn dæmdi íslenska rík­inu í óhag þýddi það ekki að dóm­arar missi stöðu sína við Lands­rétt eða dómar þeirra verði ógildir. Þá sagð­ist hann efast um að dóm­ar­arnir fjórir sem ekki voru skip­aðir við Lands­rétt, þrátt fyrir að hafa verið metnir hæf­ari en þeir fjórir dóm­arar sem Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra tók fram yfir þá, myndu fá háar bætur. 

Vil­hjálmur gagn­rýnir þessa fram­göngu Davíðs Þórs. „Það er full­kom­lega óvið­eig­andi að emb­ætt­is­dóm­ari tjá sig um dóms­mál með þeim hætti sem hann gerði, og sam­rým­ist með engum hætti stöðu við­kom­andi,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Dómarinn virð­ist hafa verið í þeirri lög­villu, sem nefnd um dóm­ara­störf hefur nú gert hann aft­ur­reka með, að hann væri ekki bund­inn af lögum og reglum um skyldur dóm­ara þar til hann tæki sæti í dómi í Lands­rétti.“

Gagnrýnir leynimakk

Hvað varðar það álit nefndar um dóm­ara­störf um að dóm­urum sé almennt óheim­ilt að veita lög­fræði­lega ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi og að það eigi við frá þeim tíma að dóm­ari er skip­aður í emb­ætti segir Vil­hjálmur að hann vísi þá ein­fald­lega í orð Davíðs Þórs sjálfs. „Sem sagði að ef hann hefði ekki verið í fríi hefði það ekki sam­rýmst dóm­ara­störfum að veita þessa ráð­gjöf.“

„Ef að emb­ætt­is­dóm­ari tekur að sér
ráð­gjaf­ar­störf og lög­manns­störf
fyrir fram­kvæmd­ar­valdið er það mjög
alvar­legt. Hann hefur þá dæmt sig úr leik“

Þegar Vil­hjálmi er bent á að Davíð Þór full­yrði að hann hafi ekki fengið greitt fyrir umrædda ráð­gjöf segir hann það engu betra, ef satt sé. „Ég tel að hvort end­ur­gjald hafi komið til fyrir ráð­gjöf­ina skipti engu máli í þessu sam­hengi. Í raun og veru sé það hugs­an­lega enn alvar­legra ef dóm­ar­inn telur að hann hafi verið að gera ein­hverjum greiða, án þess að þiggja greiðslu, með því að taka að sér þennan starfa.“ Vil­hjálmur vísar í þessu sam­hengi til 60. greinar stjórn­ar­skrár Íslands þar sem segir að dóm­arar skeri úr öllum ágrein­ingi um emb­ætt­is­mörk yfir­valda. „Ef emb­ætt­is­dóm­ari tekur að sér ráð­gjaf­ar­störf og lög­manns­störf fyrir fram­kvæmd­ar­valdið er það mjög alvar­legt. Hann hefur þá dæmt sig úr leik.“

Spurður hvort hann telji að Davíð Þór sé í þessu ljósi van­hæfur til að dæma í málum er varða íslenska ríkið játar Vil­hjálmur því. „Já, ég tel það. Það leyni­makk sem hefur verið í kringum þetta, hvað menn hafa verið seinir til svara og sumir ekki svarað spurn­ingum fjöl­miðla og þeirra sem eiga hags­muna að gæta, er bara fallið til þess að auka tor­tryggni í þessu sam­bandi.“

Þá telur Vil­hjálmur einnig veru­legan vafa leika á því að Davíð Þór sé hæfur til að taka sæti sem dóm­ari í Lands­rétti með þeim fjórum dóm­urum hverra hags­muna hann var að gæta með störfum sínum fyrir emb­ætti rík­is­lög­manns. „Hæfi emb­ætt­is­dóm­ara þarf að vera hafið yfir allan vafa.“

Fyr­ir­vari: Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður er bróðir Inga Freys Viljálms­sonar, blaða­manns á Stund­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár