Ólöglegt inn­grip Lögbann sýslu­manns á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar var and­stætt lýð­ræð­is­hefðum og grunn­gildum tján­ing­ar­frelsis að mati Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem hafn­aði kröfum Glitnis HoldCo. Lands­réttur stað­festi svo nið­ur­stöð­una.

Stundin heldur áfram umfjöllun upp úr Glitnisskjölunum

Frétta­flutn­ingur um fjár­mál æðsta hand­hafa fram­kvæmda­valds­ins var stöðv­aður með valdi í aðdrag­anda síð­ustu Alþing­is­kosn­inga. Nú hafa hins vegar dóm­stólar tví­vegis kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að lög­bannið sé ólög­mætt og stang­ist á við lýð­ræð­is­hefðir og grunn­gildi tján­ing­ar­frelsis.

Þann 16. októ­ber 2017, rétt fyrir alþing­is­kosn­ingar, lagði sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar um við­skipti þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og fjöl­skyldu hans fyrir hrun sem byggði á viða­miklum gögnum innan úr Glitni banka. 

Þrotabú Glitnis, Glitnir Holdco, fór fram á lög­bannið og lögðu nokkrir þeirra sem komið höfðu fyrir í umfjöllun Stund­ar­innar fram yfir­lýs­ingar um að þeir teldu að brotið hefði verið gegn lög­vörðum rétt­indum þeirra með birt­ingu upp­lýs­ing­anna.  Harlem Désir, full­trúi Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu á sviði fjöl­miðla­frelsis, lýsti hins vegar áhyggjum af lög­bann­inu og skor­aði á íslensk stjórn­völd að aflétta því.

Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður og tveir starfs­menn emb­ætt­is­ins voru kall­aðir á opinn fund alls­herjar- og mennta­mála­nefndar þann 19. októ­ber 2017 og svör­uðu spurn­ingum um lög­bannið og for­sendur þess. Sviðs­stjóri hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu kom af fjöllum þegar hann var spurður hvort emb­ættið hefði vegið og metið hvort sú skerð­ing á tján­ing­ar­frelsi sem fælist í lög­bann­inu teld­ist nauð­syn­leg í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi, en bæði tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu gera kröfu um að slíkt mat fari fram áður en stjórn­vald tak­markar tján­ing­ar­frelsi. 

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur synj­aði öllum kröfum Glitnis HoldCo gegn Stund­inni þann 2. febr­úar 2018 og komst að þeirri nið­ur­stöðu að lög­bann sýslu­manns á upp­lýs­inga­miðlun fjöl­mið­ils um við­skipti vald­hafa hefði verið ólög­mætt og stang­ast á við lýð­ræð­is­hefðir og grunn­gildi tján­ing­ar­frelsis. Í dóm­inum var sýslu­manns­emb­ættið gagn­rýnt harð­lega, meðal ann­ars fyrir að hafa vikið frá þeim almennu reglum sem gilda um fram­kvæmd lög­banns­gerðar þegar ákveðið var að til­kynna ekki gerð­ar­þol­anda, Stund­inni, með hæfi­legum fyr­ir­vara um fram­komna lög­banns­kröfu.

Úr nýjasta tölu­blaði.

Glitnir HoldCo áfrýj­aði mál­inu til Lands­réttar sem stað­festi nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms þann 5. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þegar þetta er skrifað, tutt­ugu dögum eftir að Lands­réttur stað­festi að lög­bannið væri ólög­mætt, hefur Glitnir HoldCo ekki gefið upp hvort mál­inu verði áfrýjað til Hæsta­réttar. Áfrýj­un­ar­frestur til Hæsta­réttar er fjórar vikur. Stundin hefur engu að síður ákveðið að halda áfram birt­ingu frétta sem byggja á þeim gögnum sem um ræðir. Í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar sem barst áskrif­endum í morgun eru 12 blað­síðar helg­aðar slíku efni. 

Ákvörðun um áfram­hald­andi umfjöllun byggir á lög­fræði­legum og sið­ferð­is­legum grunni. Í fyrsta lagi kemur fram í lögum um kyrr­setn­ingu og lög­bann að þegar þrjár vikur eru liðnar frá synjun dóm­stóla falli lög­bann niður. Þrjár vikur eru liðnar frá og með útgáfu­degi þessa tölu­blaðs Stund­ar­innar.

Þá byggir Stundin á þeirri stað­reynd að í lög­bannslögum er ekki gert ráð fyrir til­vist Lands­réttar. Þannig kemur fram að lög­bann hald­ist eftir áfrýjun til „æðri dóms“, en ef æðri dómur stað­festir ákvæði hér­aðs­dóms um synjun um stað­fest­ingu gerðar felli hún úr gildi frá dóms­upp­sögu þar. Æðri dómur, Lands­réttur, hefur þegar úrskurðað lög­bannið ólög­mætt, og er því sam­kvæmt óupp­færðum lögum um lög­bann metið óþarft af lög­mönnum Stund­ar­innar að bíða nið­ur­stöðu Hæsta­réttar. 

Hvað varðar sið­ferð­is­lega þátt­inn telur rit­stjórn Stund­ar­innar ekki rétt­læt­an­legt að eft­ir­láta þrota­búi gjald­þrota banka rit­stjórn­ar­vald yfir umfjöllun, hvað þá umfjöll­unum sem renna stoðum undir að starfs­menn, eig­endur og stórir við­skipta­menn bank­ans – þar á meðal einn valda­mesti stjórn­mála­maður lands­ins – hafi forðað per­sónu­legum fjár­munum sínum og komið þeim í var á sama tíma og þeir höfðu aðgengi að mik­il­vægum upp­lýs­ingum um alvar­legan vanda bank­ans.

Loks telur rit­stjórn Stund­ar­innar ill­rétt­læt­an­legt út frá sið­ferð­is­legum sjón­ar­miðum að bíða með birt­ingu þegar mik­ill vafi er á því að Glitni HoldCo sé lög­fræði­lega stætt á því að við­halda lög­bann­inu.

Fyr­ir­vari: Stundin er aðili að mál­inu sem hér er fjallað um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár