Einungis hluta kvenna í störfum hjá Kópavogsbæ heimilt að taka kvennafrí

Tilmæli send til stofn­ana bæj­ar­ins um að tryggja þurfi lág­marks­þjón­ustu áður en konum verði heim­ilt að ganga út úr vinnu. Rænir stóran hluta starfs­kvenna Kópa­vogs­bæjar tæki­færi til að taka þátt í kvenn­bar­átt­unni.

Einungis hluta kvenna í störfum hjá Kópavogsbæ heimilt að taka kvennafrí
Óánægðar með Kópa­vogsbæ Konur í störfum hjá Kópa­vogsbæ lýsa óánægju sinni með fram­göngu bæj­ar­yf­ir­valda í tengslum við kvenna­frí. Mynd: Kristinn Magnússon

Hópur kvenna sem starfar hjá Kópa­vogsbæ hefur sent frá sér eft­ir­far­andi bréf, sökum óánægju með við­brögð bæj­ar­yf­ir­valda við kröfu þeirra um að fá að taka þátt í kvenna­fríi í dag:

Allt frá því fyrir helgi höfum við ýtt á eftir upp­lýs­ingum varð­andi kvenna­fríið 24. októ­ber og ynnt eftir svörum við því hvort að konur starf­andi hjá bænum hefðu það almennt í hyggju að sýna sam­stöðu og ganga út kl. 14:55. Skýr svör feng­ust ekki fyrr en seinni­part­inn í gær þegar sér­stök til­mæli bár­ust frá bænum til stjórn­enda stofn­ana Kópa­vogs­bæjar. Tilmælin voru á þá leið að hag­ræða skuli vinnu­deg­inum þannig að þær konur sem óska þess að kom­ast á bar­áttufund­inn á Arn­ar­hóli kl. 15:30 fái tæki­færi til þess svo fram­ar­lega sem lág­marks­þjón­usta sé tryggð. Þeim stofn­unum sem um ræðir verður því ekki lokað í dag kl. 14:55. Það gefur auga leið að til­mæli sem þessi eru í besta falli van­hugsuð fyrir þær stofn­anir bæj­ar­ins þar sem starfs­fólk er að mestu eða öllu leyti konur.

Um það leyti sem til­mælin bár­ust frá Kópa­vogsbæ bár­ust fregnir af því að bæj­ar­stjóri og bæj­ar­rit­ari væru ósam­þykkir kvenna­frí­inu og að ekki verði stutt við þær konur sem hafa í hyggju að taka þátt í bar­áttufund­inum á Arn­ar­hóli. Því hafi þessi ákvörðun verið tekin, að hleypa þeim örfáu konum sem bær­inn má missa og eru fyrstar til að lýsa yfir áhuga á að ganga út. Restinni er þó skipað að sitja sem fast­ast til að halda starf­sem­inni gang­andi, sem rennir stoðum undir mik­il­vægi þess að berj­ast fyrir launa­jafn­rétti, mik­il­vægi kvenna í sam­fé­lag­inu og þar með mik­il­væg­inu sem felst í slíkum bar­áttufundi.

Það skal að auki tekið fram að núver­andi bæj­ar­stjóri hrinti úr vör jafn­réttis- og mann­rétt­inda­stefnu Kópa­vogs­bæjar árið 2015 þar sem bær­inn „hefur ein­sett sér að vera í far­ar­broddi í mann­rétt­inda­málum með sér­stakri áherslu á jafna stöðu kynj­anna.“

Með bréfi þessu lýsum við yfir ósætti við stöðu mála og vonum að ákvörð­unin verði end­ur­skoðuð að ári.

Með vin­semd og virð­ingu,

Starfs­konur í Kópavogi

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár