Pyntaður með lútuleik

Í til­efni af morð­inu á Jamal Khas­hoggi segir Illugi Jök­uls­son frá upp­hafi Sádi-Arabíu og hvernig trúin og ver­ald­legt vald héld­ust þar í hendur frá upp­hafi.

Pyntaður með lútuleik
Abdulaziz bin Sád lést 1953, 78 ára gam­all Þá var orðið ljóst að gíf­ur­legar olíu­lindir leynd­ust í ríki hans, flestar upp af ströndum Persafló­ans. Vestræn ríki, ekki síst Banda­ríkin, vildu tryggja sér aðgang að olí­unni og studdu því af alefli ríkið sem kóngur hafði af mik­illi hóg­værð nefnt eftir sjálfum sér. Þau létu sig því einu gilda þótt ríkið væri í viðjum aft­ur­halds­samrar trúar Wahhabíta. Abdulaziz eign­að­ist 100 börn, þar af 45 syni, og komust 36 þeirra til full­orð­ins­ára. Mynd: Wikipedia

Arab­íu­skag­inn er í raun­inni nærri sam­felld eyði­mörk, nema strand­lengjan og sums staðar tölu­verð svæði upp af henni. Vinjar þar sem vatn sprettur upp eru á stöku stað, nógu víða til að við­halda byggð á skag­anum, ekki bara á strand­svæð­unum, heldur líka inni í eyði­mörk­inni – þar óx úr sand­öld­unum varla sting­andi strá svo séð yrði, en hins vegar harð­gert fólk sem þurfti að þola mik­inn hita á dag­inn, mik­inn kulda á nótt­unni, sand­storma þar sem smá­gerður sand­ur­inn smaug alls staðar þótt fólk reyndi að hafa slæður fyrir and­liti, og fólk þoldi hungur og vatns­leysi, þegar svo bar undir – fólk þolir ýmis­legt, eins og við vitum – svo eru alltaf ein­hverjir töfrar við lífið alls staðar, en eng­inn lifði í vellyst­ingum prakt­ug­lega í sand­öld­unum, fólk hafði í sig og á þegar best lét, eyði­merk­urlubbar sögðu þeir sem bjuggu betur ann­ars staðar, frum­stætt sveita­fólk týnt í öllum þessum sandi. 

Ófrjósamar sandöldur

Skaginn var alltaf afskekktur og úr leið, þegar menn­ing­ar­ríki tóku að spretta upp fyrir norðan, í Mið-Aust­ur­löndum, Persíu, Mesópótamíu eða Írak, Sýrlandi og Egifta­landi, svo fóru Róm­verjar líka að gera sig gild­andi þar um slóðir, fyrst hið eig­in­lega Róma­veldi og síðan fram­hald þess sem við köllum nú Býsans-ríkið.

Þarna var grillað og grætt, glímt og grafið, í langan tíma en suður á Arab­íu­skaga gerð­ist harla fátt sem komst í frá­sögur utan skag­ans: Ófrjósamar sand­öld­urnar kveiktu ekki girnd í augum inn­rás­ar­herja og svæðið var látið í friði. Í byrjun sjö­undu aldar breytt­ist það, versl­un­ar­leiðum hafði nýlega verið komið yfir eyði­mörk­ina til að sneiða hjá stríðs­svæðum Róm­ar­manna og Persa sem ein­lægt voru að berj­ast um Sýrland hið gamla; með kaup­mönnum kom auk­inn þróttur í mann­lífið á skag­anum, soldill pen­ingur, dálítið af nýjum hug­myndum og stríðs­mönnum eyði­merk­ur­innar svall móður þegar þeir upp­götv­uðu að þeir höfðu í fullu tré við hvern sem var, þar sem þeir gættu kaup­manna­lest­anna á sínum arab­ísku fákum, nú, eða rændu þær sömu lestir. 

Þeir upp­götv­uðu að þeir höfðu í fullu tré við hvern sem var

Kaupmaður gerist spámaður

Á skag­anum höfðu alltaf verið þó nokkrir ætt­bálkar sem eld­uðu yfir­leitt grátt silfur um þau stop­ulu gæði sem þarna var að finna, en nú gerð­ist það að þeir sam­ein­uð­ust og ein­hvern veg­inn kvikn­aði sú hug­mynd að fara í her­ferð norður, reyna sig gegn Býsans og Persíu sem eina ferð­ina enn voru í blóði drifnu stríði og hér um bil að ganga hvort af öðru dauðu.

Hin klass­íska sögu­skoðun hermir að það hafi verið kaup­maður á vest­ur­hluta Arab­íu­skag­ans sem kom fram á sjón­ar­sviðið sem spá­maður guðs, eða Allah, og eftir að hafa komið fótum undir nýja trú í borg­unum Mekka og Medína, hafi spá­mað­ur­inn Múhameð að vísu dáið en arf­takar hans, kalíf­arnir svo­nefndu, hafi inn­blásnir af honum og trúnni hafið her­ferð­ina í norður, út af skag­anum. 

Komið að Aröbum?

Það má líka vera að það hafi ein­fald­lega loks­ins verið kom­inn tími að Aröbunum á skag­anum, nú þegar Býsans og Persía voru í bili komin nærri að fótum fram, en hvað sem olli: arab­ísku gæð­ing­arnir báru hina harð­lyndu stríðs­menn norður og eng­inn fékk þá stað­ist, öll ríkin í norðri hrundu, herjum þeirra var sópað burt undan hinum óstöðv­andi eyði­merk­ur­vindi kalíf­anna úr suðri, Býsans-ríkið hélt að vísu velli en varð að hörfa út á Anatólíu, missti bæði Egifta­land og Sýrland, ekki svipur hjá sjón hið gamla austur-róm­verska ríki.

Og Arabar, þessir sveitalubbar, eins og íbúar sjálf­skip­aðra menn­ing­ar­ríkja í norðri höfðu kallað þá, höfðu á skömmum tíma og alveg óvænt lagt undir sig nærri allan hinn kunna heim.   

Stórríkið klofnar

Arabísku þjóð­flokk­arnir náðu sem sagt völdum um öll Mið-Aust­ur­lönd, á hinum fornu valda­svæðum bæði Persa­veldis og Rómar eða Býsans. Hinar gömlu gamla­stéttir Egifta­lands, Sýrlands, Mesópótamíu og Persíu sáu fljótt hag sínum best borgið með því að ganga til liðs við hina nýju vald­hafa, ját­uð­ust undir trú þeirra og tóku upp menn­ingu þeirra og sam­þætt­uðu sinni eigin. Þótt vest­ræn sögu­skoðun líti gjarnan svo á að í þús­und ár hafi staðið í Mið-Aust­ur­löndum massíft og eins­leitt ríki múslima sem hatað­ist við hina kristnu Evrópu, þá var raunin svo að ótrú­lega fljótt klofn­aði hið mikla stór­ríki kalíf­anna upp í meira og minna sömu gömlu valda­kjarn­ana og áður höfðu keppt um völdin í Mið-Aust­ur­löndum í þús­undir ára. 

Arabía verður aftur útkjálki

Þunga­miðjan í múslima­veld­inu færð­ist nán­ast strax frá Arab­íu­skaga og til hinna nýju svæða í norðri og brátt varð skag­inn sjálfur nákvæm­lega sami útkjálk­inn og verið hafði fyrir daga Múhameðs og arf­taka hans. Bitist var um auð og völd milli Persíu og Mesópótamíu og Egifta­lands nákvæm­lega eins og fyrr á tíð, þar sem heima­menn töl­uðu nú allir reiprenn­andi arab­ísku og köll­uðu sig Araba, hin nýja menn­ing blómstr­aði, kvæði voru sam­an­sett og stjörnur skoð­aðar, reikn­ings­dæmi reiknuð og lagt út af Kór­an­inum á ýmsa vegu, en á sand­öldum Arab­íu­skag­ans hljóðn­uðu heróp stríðs­mann­anna sem fyrrum höfðu lagt undir sig heim­inn, versl­un­ar­leið­irnar færð­ust burt af skag­anum, ennþá óx ekki sting­andi strá úti á öld­unum. 

Fátt fært í annála

Mekka var vissu­lega helgasti staður íslams og Medínu þekktu allir múslimar en þessar borgir höfðu nú fyrst og fremst trú­ar­legt og tákn­rænt gildi, ver­ald­legt vald þeirra var ekk­ert, eftir að her­sveitir Abú Bakr og Ómars og Ósmans hurfu í ryk­mekki út við sjón­deild­ar­hring þeirra á sjö­undu öld. Tíð­inda­leysi lagð­ist yfir Arab­íu­skaga, sam­heldnin rofn­aði, fólk fór aftur að skipt­ast upp í ætt­bálka sem eld­uðu grátt silfur en voru þó hver öðrum líkir. Að nafn­inu til voru Arabar á skag­anum oft­ast und­ir­sátar soldána hinna svo­nefndu Mamlúka í Egifta­landi þegar leið að lokum mið­alda en í reynd létu Egiftar þó svæðið mest­an­part afskipta­laust. Sjeikar og emírar voru yfir hverjum ætt­bálki og tóku sumir þátt í sigl­ingum og verslun á Rauða­hafi, Ind­lands­hafi og Persaflóa, aðrir sinntu um píla­grím­ana sem streymdu til Mekku, ann­ars var fátt í ann­ála fært öldum saman. 

Tyrkir koma úr norðri

Í byrjun 16. aldar varð breyt­ing á og kom úr norðri. Í tæpar tvær aldir hafði tyrk­neskt ríki á jarðri Býsans-veld­is­ins verið að naga af því sífellt stærri sneiðar, uns Býsans-ríkið hvarf með öllu en Tyrkirnir, Ottómanar svo­kall­aðir, hirtu lönd þess á Balkanskaga og í Litlu-Asíu sem þaðan í frá heitir Tyrkland.

Fyrstu átök Ottómana og Mamlúka um yfir­ráð yfir bæði hinum helgu borgum Mekku og Medínu og svo krydd­versl­un­inni til Austur-Indía höfðu endað með patt­stöðu en 1516 birt­ist öfl­ugur her Tyrkja­sold­áns­ins Selíms I á landa­mærum Egifta­lands. Selím hafði þegar hrakið Persa frá Mesópótamíu og náði nú á tveimur árum að ger­sigra Mamlúka svo þeir voru úr sög­unni. Þar með höfðu Ottómanar náð yfir­ráðum yfir Mekku og Medínu og strönd Rauða hafs­ins og töld­ust því vera herrar Arab­íu­skag­ans. 

Sama tóbakið?

Af því Ottómanar voru múslimar hneigj­umst við á Vest­ur­löndum til að líta á þá sem nán­ast sama tóbakið og Mamlúka og Araba og aðra sem ráðið höfðu og hafst við á skag­anum, en sann­leik­ur­inn er þó auð­vitað sá að íbúar skag­ans litu á Ottómana sem útlenska inn­rás­ar­menn og ekk­ert annað. Inni í eyði­mörk­inni vildu menn sem minnst með Tyrki hafa og strand­hér­að­inu Jemen réðu hin mak­ráðu soldánar Ottómana í Istanbúl ekki nema stundum og Óman alls ekki.

Leið nú enn og beið og hver kyn­slóð tók við af annarri.

Um miðja 18. öld gerð­ist næsti stór­við­burður í þeirri sögu sem ég er að rekja. Múhameð bin Sád hét emír nokkur sem braust til valda í kast­ala­borg­inni Ad-Díríaj sem stóð nálægt vin inni á miðjum Arab­íu­skaga. Þar var býsna blóm­legt um að lit­ast miðað við gróð­ur­vana eyði­mörk­ina allt í kring. Múhameð bin Sád gerð­ist stönd­ugur og var líka flinkur stríðs­maður svo fyrr en varði var hann orð­inn alls­ráð­andi á allri háslétt­unni á miðjum skag­anum, land­svæði sem yfir­leitt var og er enn kallað Najd. 

Hönd í hönd með trúnni

Stóran þátt í vel­gengni Múhameðs bin Sád átti banda­maður hans og nafni, Múhameð ibn Abd al-Wahhab. Sá var af heldur lít­ils meg­andi ætt­bálki sem hvorki var kunnur fyrir menntir né trú­ar­hita, en því breytti al-Wahhab. Honum rann til rifja hve slöpp og menguð íslams­trú væri orðið og vildi hefja orð og lög­mál spá­manns­ins til vegs og virð­ingar að nýju.

Eldmóður, ströng siða­boð og trú­boð al-Wahhabs urðu und­ir­staða bæði nýrrar trú­ar­vakn­ingar meðal súnnímúslima og veldis Múhameðs bin Sád í Najd. Bandalag þeirra var inn­siglað með hjóna­bandi sonar Bin Sáds og dóttur al-Wahhabs. Með því að tengja ver­ald­legt vald sitt við þá sið­bót sem al-Wahhab boð­aði tókst Bin Sád að sýna sig sem sér­legan vernd­ara trú­ar­innar og í því skjóli hefur Sád-fjöl­skyldan skákað æ síðan. 

Ruðst út af hásléttunni

Abdulaziz, sonur Bin Sáds og tengda­sonur al-Wahhabs, varð arf­taki föður síns 1765. Hann kall­að­ist ímam en ekki emír til að leggja áherslu á trú­ar­lega stöðu leið­toga hins upp­renn­andi Sád-veldis. Abdulaziz treysti und­ir­stöður veld­is­ins og fór meðal ann­ars í ráns­ferðir norður til Íraks þar sem hann lét myrða þús­undir sjíamúslima sem féllu í hendur manna hans.

Vildu menn ekki und­ir­gang­ast hinn stranga boð­skap al-Wahhabs með góðu var óhikað gripið til sverðs­ins

Sonur þessa Abdulaziz tók við 1803, hann er yfir­leitt kall­aður ein­fald­lega Sád og útþensla ætt­ar­innar tók nú nýja stefnu þegar her Sáds rudd­ist út af háslétt­unni í vest­ur­átt og hrifs­aði Medínu og Mekku af Ottómönum en veldi þeirra fór þá óðum hnign­andi. Að ráða hinum helgu borgum var að sjálf­sögðu mik­ill álits­auki fyrir Sád-ætt­ina og var nú enn ýtt um siða­boð­skap að hætti al-Wahhabs hvar sem Sádar komu. Og vildu menn ekki und­ir­gang­ast hinn stranga boð­skap al-Wahhabs með góðu var óhikað gripið til sverðs­ins. 

Tyrkjum nóg boðið

En nú var Ottómönum nóg boðið. Land­stjóri þeirra í Egifta­landi hét Múhameð Alí og réði því sem hann vildi ráða. Her Ottómana var nær allur bund­inn í Evrópu svo nú fólu þeir Múhameð Alí að kveða í kút­inn þessa uppi­vöðslu­sömu eyði­merkur-Araba og það tókst syni Múhameðs Alís satt að segja fremur auð­veld­lega. Seinast féll Ad-Díríaj í hendur Egifta.

Þá var Abdúllah, sonur Sáds, orð­inn ímam og var hann hand­samaður og fluttur til Istanbúl þar sem hann var dreg­inn fyrir dóm 1818 fyrir að hafa van­helgað heilagar borgir og moskur og sví­virt hina trú­uðu, ekki síst sjíamúslima. Abdúllah var svo heit­trú­aður Wahhabisti að hann hafði til dæmis lagt blátt bann við tón­list í ríki sínu svo Ottómanar dæmdu hann til að hlusta á fagran lútu­leik langa hríð, en svo var hann háls­höggv­inn. 

Nýr ættarlaukur

Virtist nú fokið í flest skjól fyrir Sád-fólk­inu en þá reis upp nýr ætt­ar­laukur gegn tyrk­neskri stjórn. Sá var son­ar­sonur hins upp­haf­lega emírs Múhameðs bin Sáds og bar nafnið Turki sem óneit­an­lega hlýtur að telj­ast kald­hæðn­is­legt. Árið 1824 náði Turki Ad-Díriaj (sem nú heitir Ríad) frá Tyrkjum og egifskum banda­mönnum þeirra. Fremur en að efna til alls­herjar stríðs kaus hann svo að vera í orði kveðnu léns­maður Tyrkja­sold­áns. Turki var myrtur ára­tug síðar af frænda sínum en Fajsal, sonur hans, náði þá völdum.

Það gekk á ýmsu næstu ára­tug­ina, hið nýja sádíska ríki hafði ekki bol­magn til að teygja sig aftur til Hejaz, en svo kall­ast Rauða­hafs­strönd Arab­íu­skag­ans og upp­sveit­irnar þar sem Medínu og Mekku er meðal ann­ars að finna. Þróaðist þar á end­anum sér­stakt kon­ungs­ríki. 

Uppreisnir og mótþrói

Veldi Sád-ætt­ar­innar var því bundið við háslétt­una Najd og svo strönd Persafló­ans, þar sem þó skrimtu líka ýmis fursta­dæmi á útkjálkum. Erjur innan Sád-ætt­ar­innar voru líka tíðar og valda­ættin Rasída hjá Haíl veitti henni æ meiri keppni er á 19. öld­ina leið. Fajsal dó 1865 og synir hans bit­ust um völdin og geis­aði sann­kallað borg­ara­stríð um tíma. Að lokum náði Abdul Rahman völdum en mátti enn kljást við upp­reisnir og mót­þróa og að lokum not­aði Rasíd-ættin tæki­færið og sóp­aði Sádum frá völdum árið 1891. Abdul Rahman leit­aði hælis fyrst frá furst­anum í Katar, svo í Bahrein og síðan Kúveit.

Abdul átti marga syni og þeirra var Abdulaziz elstur, fæddur árið 1875. Hann var gramur mjög yfir því að ættin væri nú frá völdum fallin og setti saman ráns­flokka sem fóru með grip­deildum um land­svæði Rasída í nokkur ár. 

Enn stuðst við trúna

Abdulaziz bin Sád reynd­ist bæði kænn for­ingi og lagið að hrífa menn með sér. Hann var afar hávax­inn, hraustur og atorku­samur alla tíð á öllum sviðum. Árið 1902 var hann aðeins 27 ára gam­all en náði þá að brjót­ast yfir borg­ar­múra Ríad með 40 manna lið og tók borg­ina af Rasída. Margir íbúar Najd flykkt­ust þá til liðs við hann og þótt Rasídar köll­uðu á aðstoð Ottómana kom það fyrir lítið. Árið 1906 sigr­aði her Sáda her­sveitir Rasída í úrslita­orr­ustu um yfir­ráðin í Najd og Abdulaziz gat farið að treysta sig í sessi sem valds­herra. Hann studd­ist enn við hina ströngu trú Wahhabíta líkt og for­feður hans og íslömsk lög voru í heiðri höfð.

Á árum fyrri heims­styrj­aldar komu Bretar mjög til sögu á svæð­inu því þeim var umhugað um að kveða Tyrki end­an­lega í kút­inn, því trénað Tyrkja­veldið hafði bundið trúss sitt við Þjóð­verja, fjendur Breta. Gegn Tyrkjum studdu Bretar við kon­ung­inn í Hejaz og þó einkum hinn svo­nefnda sjaríf í Mekku og í lok heims­styrj­ald­ar­innar virt­ist Hussein bin Alí sharíf og kóngur standa uppi með pálmann í hönd­unum í mest­öllum hinum arab­íska heimi. Synir hans urðu vissu­lega kóngar í Jórdaníu og Írak en sjálfur varð hann að hrökkl­ast frá völdum 1824.

Konungsríkið Sádi-Arabía stofnað

Þá hafði Abdulaziz bin Sád treyst sig svo í sessi í Najd að hann var kom­inn í útrás um mest­allan Arab­íu­skaga og náði Hejaz undir sig og með þar með Medínu og Mekku. Abdulaziz naut þess að hafa stuðn­ing Breta og fékk hjá þeim mikið magn vopna sem þeir skildu eftir í Mið-Aust­ur­löndum þegar heims­styrj­öld­inni lauk.

Abdulaziz var nokkuð ótraustur í sessi fyrstu árin, hluti her­afla hans gerði upp­reisn og vildi fá að halda áfram útþenslu og leggja til dæmis undir sig litlu fursta­dæmin sem enn lifðu við Persaflóa og auk þess eyða Jórdaníu sem fáir skildu hvaða til­veru­rétt átti, en Abdulaziz taldi rétt að láta staðar numið í bili. Hann bældi niður upp­reisn­ina með hjálp Breta og 1932 stofn­aði hann kon­ungs­ríkið Sádi-Arabíu.

Heilagt bandalag?

Það voru enn sex ár þangað til olían fannst, svo þetta var fátækt ríki, þjóðin var illa menntuð og atvinnu­vegir fábreyttir. Trúin var alls­ráð­andi og alltum­lykj­andi. Sá sem furðar sig á því að Sádi-Arabía skuli halda svo fast í hina wahhabísku trú, sem leyfir enga upp­lýs­ingu, engar nútíma­túlk­anir á orðum spá­manns­ins, sá hinn sami áttar sig ekki á því að ríkið og trúin hafa verið óað­skilj­an­leg frá því þeir Múhameð bin Sád og Múhameð al-Wahhab hitt­ust og gerðu með sér banda­lag um miðja 18. öld.

Heilagt bandag, segja hinir ótelj­andi prinsar Sád-ætt­ar­innar. Van­heil­agt banda­lag, myndu aðrir segja.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár