Kennarinn sagði mér að það vantaði ljósið í augun mín

Catarina Rebello var týnd í skóla þangað til kenn­ar­inn hennar spurði hana hvernig hún vildi sjá sjálfa sig í fram­tíð­inni.

Ég var í nátt­úru­fræði­tíma þegar ég var sextán ára ef ég man rétt. Mér fannst ég vera svo týnd, ég vissi ekki hvort ég vildi vera í skóla eða hvort ég vildi bara hanga með vinum mínum. Kenn­ar­inn minn kall­aði mig til sín og spurði mig hvernig ég sæi sjálfa mig í fram­tíð­inni og ég sagði bara: „Ég veit það ekki, ég er týnd og veit ekk­ert hvað ég vil gera, allt er svaka glatað akkúrat núna!“

Þá sagði hún að það væri ekk­ert blik í aug­unum mínum, sem er portú­galskt mál­tæki. Ég myndi sjá eftir þessu augna­bliki þegar ég væri orðin 21 árs og búin með skóla, það er ef ég myndi ekki ná áttum og bara svona ... demba mér í eitt­hvað. Þegar maður er í skóla þá hugsar maður bara: „Ég þoli þetta ekki, ég er bara föst hérna inni með fullt af fólki,“ en á full­orð­ins­árum þá fattar maður að þetta er tími sem maður á að njóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár